Vikan


Vikan - 11.08.1977, Síða 14

Vikan - 11.08.1977, Síða 14
 Vanc/amálin /eysast ekki með einni eða annarri hugmyndafræði, þau leysast eingöngu með þviaö gjörbreyta hugsunarhætti fó/ksins." Það er skrítið með breytingar. Við höfum gert stórkostlega hluti, þegar eitthvað hefur þurft að breytast, en annars stendur allt í stað. Það er hægt að finna líffræðilegar forsendur fyrir þessu. Aðalmunurinn á okkur og öpum er sá, að apinn getur ekki gefið. Hann getur ekki sleppt banana, sem hann einu sinni hefur náð taki á. Það hefur verið sannað sálfræðilega að þetta er aðalmunurinn og gerðar hafa verið margar tilraunir með apa á þessu sviði. Því miður er kerfið í okkur ekki nema nokkurra milljóna ára gamalt. Við getum gefið eitthvert smáræði eins og banana, en við finnum litla hvöt hjá okkur til þess að gefa meira. Til þess að við getum haldið áfram, þurfum við að geta þróað eiginleikann til að gefa. Við höfum þann eiginleika í okkur og ef við flytjum þetta af persónulegu sviði yfir á veraldarsviðið, þá eru lönd, sem hafa mikiö, og önnur, sem hafa lítið. Þau lönd, sem hafa mikið, vilja ekki gefa neitt frá sér að ráði til fátæku landanna. Innanlands eru yfirstéttir, sem hafa mjög mikið, en gefa lítið af sínu. Þetta er ekki vandamál í sambandi við stefnur. Auðvitað er sósíalismi miklu þróaðri stefna en kapítalismi. Það er miklu þróaðra að hugsa þannig, að fólk hafi nokkurn veginn jafna möguleika og að þjóðfélagið sjái um þá, sem eiga við erfiðleika að stríða. Auðvitaö er það miklu gáfulegra frá sjónarmiði lífsins. Við getum litið á þetta allt saman og gleymt því aö við erum hluti af lífinu. Frá sjónarmiöið lifsins er þjáning, hvort sem um er að ræða einstaklingsþjáningu eða þjóðfélagsþjáningu, fáránleg. Það er léleg nýting á starfsorku. Sósíalismi er frá sjónarmiði lífsins betri hagnýting. Náttúran reynir líka alltaf sjálf að nota sem minnst afl og gera allt á sem bestan hátt. HUGSUNARHÁTTUR OKKAR DÁLÍTIÐ Á APASTIGINU__________________________ Við gleymum því alltof oft að við erum hluti af lífinu sjálfu. Við gleymum þvi, þegar okkur finnst mikilvægt, hvort við reykjum Camel eða Chesterfield. Frá sjónarmiði lífsins skiptir það engu máli. Menn hugsa: ,,Ég verð að fá mér nýjan bíl. Hann verður að vera rauður, en ekki blár." Frá sjónarmiði lífsins kiptir það engu máli. Það skiptir kannski máli að maöur hafi bfl, því það er bara þróun. Bíllinn er eins konar framlenging á fótum mannsins, eins og talvan er framlenging á heilanum. Við erum á þeim tímamótum núna, að þessi litla pláneta okkar er að verða mjög samtengd. Hugsunarháttur okkar er hins vegar ennþá dálítiö á apastiginu. Við höfum þó möguleika á að beyta þessu og það verðum við aö gera. Ef það gerist ekki á næstu 10 árum, þá er allt búið að vera. Þessi breyting á hugsunarhætti er fólgin í því að byrja á einhverju án þess aðj einhver segir manni að gera það. Ekki vegna þess að ríkisstjórnin segi: „Þú verður að breyta hugsunarhætti þínum," heldur vegna þess að það sé eðlilegt. Það þýðir ekkert aö segja 14 VIKAN 32. TBL. við fólk. ,,Þú verður að elska náungann," ef fólkinu líður illa. Hver fer að elska einhvern, þegar honum líður illa? Ekki nokkur maður. Það væri miklu skynsamlegra að reyna að fá fólk til þess aö skilja orsök persónugæða sinna. Það er bara eðlileg tilfinning gagnvart náunganurr, að elska hann ekki, þegar manni líður illa, og elska hann, þegar maður er kátur og líður vel. Það er hægt að segja: ,,Þú átt að gera þetta eða hitt. Þetta er hin eða þessi stefna." En þetta eru bara dæmi. Þessi sami hugsunar- háttur hefur alltaf ríkt. Áður voru guð og skrattinn, nú eru það kapítalismi og sósíalismi. Þetta er sami hugsunarháttur. Fólk er sett í hópa og það gleymist oft innan þeirra. Þessir hópar mótast t.d. af þjóðerni, aldri, kynferði, klæðnaði eða hugsjónum, en þetta skiptir engu máli. Það sem skiptir máli er að við erum hluti af stórum lífsþræði, sem nær miklu lengra en allar þessar stefnur. Sumir eru undrandi á því, að menn eins og Nixon skuli hafa getaö stjórnað Bandaríkjunum og staðreyndin er sú, að það er fullt af fólki út um allan heim, sem hefur völd, og er dálítið brenglað. Mér finnst merkilegast að við skulum hafa búið við atómsprengjur í 30 ár og með alls konar vitleysinga, sem hafa getað stutt á takkann, en ekki gert það ennþá. Það finnst mér miklu merkilegra en það, að þjóðum sé stjórnað af vitleysingum. Það gefur mér líka góða von um, að lífsneistinn sé miklu sterkari en hvort þessi eða hinn náunginn sé vitlaus. Ég veit að það eru mjög margir svartsýnir á framtíðina og það er ekki vafi á því, að við verðum að taka stór stökk í framtíðinni. Hjá því verður ekki komist. Alls konar breytingar munu eiga sér stað. Það verða kreppur og annað slíkt. Það er óhjákvæmilegt. Hins vegar held ég að það sé nauðsynlegt að hugsa og hegða sér sem mannkyn,sem heild, og það er auðvitað ekki auðvelt, ef menn eru að burðast með hreppapólitik alla sína ævi. Það getur orðið erfitt, aö þurfa allt í einu að hugsa um alheiminn. ÞEGAR DAVlÐ HITTI GOLlAT — Þú fórst til Kúbu eftir dvölina í Chile. Hver voru tildrög þess? — Það var dálítið merkilegt, því eins og svo margt annað var það hreinasta tilviljun. Til þess að skýra það, sem á undan hafði gerst, þá var Castró forsætisráðherra Kúbu, búinn að vera í Chile í tvo mánuði og hafði gert þar allt, sem honum hafði dottið í hug. Castró er afskaplega leiðinlegur við blaðamenn, fer oft mjög illa með þá, hlær að þeim og kemur þeim í vandræði hvað eftir annað. Hann var semsagt búinn að vera þarna I tvo mánuði og á þeim tíma var Chile aö lagfæra áfskaplega margt hjá sér. Vinstri menn litu auðvitað á Castró sem skurðgoð, en aðrir litu á hann sem djöfulinn. Ég lenti svo í þvi að tala við hann á blaða- mannafundi sem var sjónvarpað og hljóðvarp- að út um alla Suður-Ameríku, og þetta var að miklu leyti eins og getraun. Þarna var þessi stóri og mikli karl, ( grænum skæruliöaklæön- aði en ég lítill, brosandi, Ijóshærður og á stutterma skyrtu. Þetta var eins og þegar Davíð hitti Golíat. Við töluðum saman í hálftíma eða klukkutfma og þvældum fram og 4

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.