Vikan - 11.08.1977, Qupperneq 44
Sakamálasaga eftir C.B. Gilford.
Sér grefur gröf
Netið var svo kænlega spunnið, að
jafnvel hinn snjalli lögfræðingur, Hugh
Hannon, sá það ekki fyrr en of seint.
Netið átti að veiða hann sjálfan, og ef
hann léki ekki með, var bæði frami
hans og heiður konu hans i veði.
HaNN hefði átt að vita betur, og
hann var sannarlega áhyggjufullur.
hann varlögfræðingur.oghann hefði
átt að vita. að þegar farið var fram á
peninga til að gera upp gamalt mál, er
fyrsta skrefið tekið. án þess að hafa
nokkra hugmynd um. hvert næsta
skref liggur. Ef viðskiptavinur hefði
spurt hann. hvortþaðværi viturlegt,
sem hann gerði nú. hefði hann
sennilega ráðið honum frá því. En
það er svo einfalt að sitja bak við
skrifborðið og gefa góð ráð. þegar
maðurerekki í beinum tengslum við
málið. Það er allt annað og alls ekki
svo einfalt. þegar málið snertir mann
sjálfan. þegar maður vill vernda
einhvern. sem skiptir mann miklu
máli.
— Fimm þúsund í hundrað dollara
seðlum. var ekki svo? spurði
gjaldkerinn. Það var ekki öllu meira í
bnkinni. Þetta var umtalsverð
upphæð.
D OMINIC Bar var innréttaður
með dökkum viðarþiljum, þarna var
skuggsýnt. og verslunarmenn hitt-
ust þarna gjarna fyrrihluta dags.
Maðurinn. sem hann ætlaði að
hitta. beið hans í innsta básnum.
Hannon gekk til hans og stakk
hendinni í innri jakkavasann, án
þess að setjast. — Ég er með
peningana, Trask, sagði hann.
Mel Trask var dökkur yfirlitum
með brún hundsaugu, hrokkið hár,
og þegar hann brosti, skein í mjalla-
hvítar tennur. Hann var í meðallagi
hár. grannur og spengilegur. Vafa-
laust kvenhollur. Smásvindlari,
hæfileikalítill og vitgrannur, en þó
ekki vitlausari en það, að hann
vissi. að einu hæfileikar hans voru
aðdráttarafl hans á konur.
— Jæja, herra Hannon. Þér hafið
komist að þeirri niðurstöðu, að ást
yðar til konu yðar sé fimm þúsund
dollara virði. Röddin var jafn slétt
og felld og útlitið. — En ég vona, að
þér gerið yður grein fyrir einu
mikilvægu í þessu máli. Þessi fimm
þúsund tryggja aðeins, að ég hverfi
úr Iífi Alix. Þeir tryggja ekki, að
hún komi aftur til yðar. Þegar mér
hefur verið rutt úr vegi, reynið þér
að fá Alix til yðar aftur. En setjum
svo, að yður mistakist? Setjum svo,
að hún vilji ekki koma til yðar
aftur? Við skulum segja, að ég gefi
yður þrjá mánuði og að ekkert
gangi, þér hafið fengið tækifærið,
sem þér borguðuð fyrir, og ég ætti
þá að hafa rétt til að koma fram
aftur.
Hannon reyndi að hafa hemil á
sér.
— Þér hafið víst misskilið mig,
Trask. Ég kaupi ekki Alix fyrir
fimm þúsund. Ég borga fimm
þúsund, svo hún geti verið laus við
yður. Eins og tannpínu, ég borga
tannlækninum, svo hún losni við
kvalirnar.
Trask yppti öxlum, tæmdi glasið
i botn og lagði báðar hendur fram á
borðið.
— Látið mig hafa peningana,
Hannon sagði hann bara.
n ANNON sat eftir með reikn-
inginn, reiði sína og þá óþægilegu
tilfinningu, sem hann hafði fundið
áður fyrir — að kannski hefði verið
viturlegra að láta hlutina eiga sig og
að hann .vissi ekki, hvað hann hafði
látið hafa sig út í, eða hvernig þetta
myndi enda.
Það hafði auðvitað bara verið hans
sök. Hann var bitur og eyðilagður,
þegar hann vaknaði næsta dag.
Herbergið —• öll íbúðin— var
ennþá, eins og Alix væri nýgengin
út. Þegar hún fór burtu, hafði hann
ekki breytt neinu eða hreyft
nokkurn hlut. Fyrst og fremst
vegna þess að hann vonaði, að hún
myndi sjá að sér og snúa heim á ný.
Hann saknaði hennar. Hann
elskaði hana ennþá. Hann vildi fá
hana aftur. Hann hlaut að hafa
verið vitlaus. Afsakanir höfðu
ekkert að segja. Alix hafði farið úr
bænum, þegar hann og Chrys
Waring voru önnum kafin við
McCalmon málið. Gott og vel,
honum hafði frá fyrstu verið það
ljóst, að Chrys væri ástfangin af
honum. Hún var afbragðs góður
einkaritari, og hún hafði svo
sannarlega lagt sig alla fram í
McCalmon málinu. Svo féll dómur-
inn, og McCalmon var fundinn
saklaus, og þá hafði hann boðið
Charys með sér út að borða í tilefni
dagsins. Chrys var afar aðlaðandi.
Þau fengu sér nokkur glös af víni,
og hann fór með hana i ökuferð.
öllu meira var það nú ekki. Kannski
ekki alveg laust við daður og
smáatlot, en alls ekki eins slæmt og
fólk gæti ímyndað sér. En hann
hafði verið vitlaus að ganga svona
langt.
Nei, það var ekki nóg að losna við
Mel Trask, það eitt gat ekki breytt
því, sem áður hafði átt sér stað.
Allt þetta með Mel Trask var
hans sök lika. Óbeint, en samt hans
sök. Ef Alix hefði ekki farið ein út,
hefði hún aldrei orðið hrifin af
öðrum manni. Ef hún hefði ekki
verið svona áköf í að niðurlægja
mann sinn, hefði hún aldrei lent í
höndunum á jafn hættulegum
manni og Mel Trask. Alix var
einmitt sú kona, sem Mel Trask
hreifst af, hún var falleg kona,
eiginkona, sem vildi vera frjáls og
auk þess gift lögræðingi á uppleið.
Jf þetta var algjörlega hans sök.
Nú reyndi hann bara að greiða
flækjuna og vinda upp það, sem var
orðið svona þvælt.
■A. skrifstofunni sá hann morgun-
blöðin. Þar stóð, að Mel Trask,
þekktur þorpari með langan af-
brotaferil að baki, hefði verið
skotinn til bana.
Hugh Hannon las blöðin ná-
kvæmlega næstu daga. Á vissan
hátt var honum léttir að frétta
dauða Trasks. Dauður maður kæmi
ekki aftur til að heimta nýja
summu. Honum var líka alveg
sama um það, hver hefði framið
morðið. Hann var að hugsa um
Alix.
En blöðin nefndu hana ekki á
nafn. Þau birtu nokkuð fullkomna
frásögn um Trask, að hann hefði
þrisvar verið tekinn fastur, fengið
dóm fyrir fjárkúgun, samband hans
við Rossiter-flokkinn, kunnings-
skap hans við listamenn í nætur-
klúbbunum, eins og Gale Gray og
Lísu Norman. Hann var viss um, að
ef einhver blaðamaður hefði upp-
götvað samband hans við Alix
Hannon, hefði sá hinn sami ekki
legið í fréttinni. Þeir hefðu notið
þess að birta hana. Það hefði verið
efni í pólitíska frétt, sem var
uppsláttarefni í sjálfu sér. Kona
Hugh Hannon, kannski tilvonandi
rikissaksóknara, hafði verið i tygj-
um við afbrotamann. Fyrst ekkert
stóð í blöðunum um þetta, benti það
til þess, að böðin vissu ekkert um
málið.
Og það var það sama og að Trask
hefði ekki gortað við neinn af
sambandi sínu við Alix. Þetta
ruglaði Hannon dálitið. Það voru
auðvitjað mörg svör til við þessu,
en það besta var, að Trask hefði
trúað á framtíð hans í stjórn-
málunum. Ef Hugh Hannon yrði
einhverntima skipaður í háttsett
embætti, gæti kunningsskapur
hans við frúna komið sér vel.
En hvar voru dollararnir, þessir
fimm þúsund? Þeir voru ekki
nefndir einu orði. Það höfðu ekki
fundist neinir peningar hjá þeim
myrta, svo að lögreglan gekk út frá
þi, að rán hefði átt sér stað.
44 VIKAN 32. TBL.