Vikan - 26.10.1978, Blaðsíða 20
arhringinn seni tveggja barna föður. í
samanburði við l’öður hennar líktist
hann meira barni en foreldri. Barni, sem
lyktaði af rakspira.
„Skilur þú þetla núna? Með að bregða
eða bjóða?"
„Hvað er boðlcgt?"
„Poppkorn. Sælgæti. Hvaðsent er."
„Myndu þau vilja kökusncið?"
Maðurinn og stúlkan horfði bæði á
kökuna. sem lýsti fyrir framan arininn.
Nokkur hinna örsmáu kerta voru brunn
in niður og logarnir slokknaðir. Önnur
voru að slokkna.
„En þetta er afmæliskaka.” sagði
maðurinn.
Stúlkan hvarf frá útidyrunum og fór
inn i cldhúsið. Skúffa opnaðist. og skáp
hurð skelltist. Hún kraup fyrir framan
kökuna með vaxpappir og hníf.
„Þú ættir ekki að gera það,” sagði
Hallet.
„Ætti ckki hvað?” spurði stúlkan. sem
þcgar hafði dregið linu með hnifsodd-
inum i silkikennda sykurbráðina.
„Skera kökuna. Bara fvrir þau, meina
ég."
„Vilja þau hana ekki?"
„Jú. en . . .". Rauð hönd lyftist fyrir
framan regnfrakkann i hálfgerðu mót
mælaskyni. en féll aftur.
„Falleg kaka.”
Stúlkan dró hnifinn gegnum Ijósgulan
snjóinn.
Hann sneri sér við til að gá út um
gluggann. Siðan sagði hann allt i einu:
„Hvarer móðir þin?"
Stúlkan einbeitti sér að því að skera
kökuna. Maðurinn beið. Ætlaði hún
ekki að svara spurningu hans? Hún lyfti
upp fyrri sneiðinni. áður en hún svaraöi.
„Móðir mín er dáin.”
„En pabbi þinn er hér þó.” Maðurinn
hnusaði út i loftið og gerði miklu mcira
úr þvi, sem hann fann. en tilefni var til.
„Hann reykir franskar sigarettur. er það
ekki?”
Stúlkan reif stórt stykki af vaxpapp
irnum, brciddi úr þvi og vafði sneiöinni
vandlega i hann.
„Er það rétt? Með frönsku sigarett
urnar?”
„Já.”
Fingurinn á rauðu hendinni vaggaði.
„Þá cr hann mjög Ijótur maður."
Stúlkan, sem var að skera seinni
sneiðina. leit ekki upp.
„Franskar sigarettur. hó hó." Ljótur
hlátur ntannsins innlimaöi stúlkuna i
goðsögnina. Þjóðsöguna um. að allt
franskt, jafnvel sígarettur, væri synd-
samlegt. Hann flissaði aftur. „Franskar
Litla stúlkan við
endann á
trjágöngunum.
sigarettur? Hérna úti á eyju? Utan ferða-
mannatímans? Ógurlega ljótt.” Aðdrótt-
anir mannsins virtust ófullkomnar, án
þess að hann fylgdi þeim eftir með
íbyggnum hlátri.
Stúlkan vafði pappir utan um seinni
sneiðina. Hún skóf sykurinn af fingrun
um nteð hnifnum. en borðaði hann ekki.
„Faðir ntinn er alls ekki Ijótur. Hann
er skáld.” Hún var að horfa inn í loga
kertanna. sent cnn brunnu.
„Uppi?” spurði maðurinn.
Hún leit yfir logana á manninn við
gluggann.
„Hver?"
„Pabbi þinn?”
„Nei." sagði hún. „i vinnuherberginu
sinu.”
„Skáld."
„Já."
„Móðir min scgir lika. að hann sé
skáld, og þegar ntóðir min segir eitthvað.
þá verður það að vera satt. Það myndi
ekki þora annað. Það er hún. scnt er i
fasteignaumboðinu og leigði föður
þinum þctta hús."
Stúlkan reis upp af eikargólfinu og
bar kökusneiðamar tvær yfir til ntanns
ins. Hana kligjaði. þegar hún fann sterk
an ilntinn af honunt.
„Krakkarnir verða stórhrifnir." sagði
hann og rétti út höndina eftir fórninni.
Rauðar hendur hans snertu granna.
hvita fingur stúlkunnar. Hún ntissti
nærri kökurnar. þcgar hún kippti að sér
höndunum.
Manninum fannst hún stara heila
eilifð á hendur hans. Hendur. Eftir því
sent l’aðir hennar sagði. sögðu hendur
meira um manneskjuna en andlitið.
Þessar hendur voru smáar og mjúkar,
eins og konuhendur. Og þó svo þær
væru rauðar af kulda. þá voru handar-
bökin þakin stóruni svitaholunt, cins og
svinaleðursseðlaveski, sem föður hennar
var einu sinni gefið. Veski sem hann
fleygði seinna, af þvi að óþægileg lyktin
hvarf ekki úr leðrinu. Litla stúlkan var
viss unt. að cf þessi ntaður snerti hana
aftur. ntyndi holdið hrökkva af beinun-
unt á henni.
„Það er að létta til." sagði maðurinn.
„Rignir ekki nteira í kvöld. Bara drullu-
pollar l'yrir krakkana til að ösla i gegn
unt."
Stúlkan gekk aftur að sófaborðinu.
tók hnífinn og vaxpappirinn og bar það
l'rant i eldhúsið.
„Svo ntikil kyrrð." sagði hann. og nú
fyrst lækkaði Itann röddina. „Hlustaðu.
Stundunt getuni ntaður heyrt i hafinu
hingað. í kvöld heyrist bara í vindin-
— Ef ég á að segja alveg eins og er — þá
líkar mér alls ekki munstrið.
yn m m ií
ss iffl ii B1
ka *-• t- ii l
/ jslgipr I I
— Mér var sagt, að hér væru seldar bækur.
um.” Úr eldhúskróknum horfði stúlk-
an á manninn þvert yfir herbergið.
„Flest fólk heldur. að það sé svo ein-
manalegt hérna á veturna." sagði hann
og þurrkaði móðuna af rúðunni með
frakkaerminni. „í rauninni eruð þið
pabbi þinn heppin að vera hér á þessum
árstima. Um leið og haustar tinir allt
sumarfólkið saman föggur sínar. setur
hlera fyrir gluggana og þýtur aftur til
New York og skrúfar frá hitanum. Vct-
urinn kentur. og allir gyðingarnir skila
staðnum aftur til hinna innfæddu.”
Nú horfði maðurinn á kertin á af-
mæliskökunni brenna niður og dcyja.
eitt ogeitt.
„Þú ert þrettán ára?"
„Nei."
„At' hverju þá þrcltán kcrti?"
„Égátti ekki lleiri."
„Ertu fjórtán?" •
„Faðir ntinn birti lýrsta Ijóðið. þegar
hann varellefu ára."
„í Englandi. er þaðekki?”
„Jú."
„Það er auðveldara að vera skáld í
Englandi." Rauð höndin rann yfir hárið
og færði til lýjurnar. sent lágu yfir skalla
blettinn. „Hér i Ameriku ertu i skátun-
unt. þcgar þú ert ellefu ára."
Gat hann ekki skilið. að hún vildi ekki
tala við hann?
„Ég skrifaði Ijóð." sagði hann. „í
gaggó. Fyrir skólablaðið. Yrkir þú?"
„Já."
„Unt hvað?”
Hún yppti öxlum. Þessu gat hún sist
svarað. Af hverju hélt hann áfram að
tala? Ekkert virtist geta hamið hann.
„Gefið það út?" Þögn hcnnar virtist
ekki letja hann. „Ljóðin þin?”
Hún kinkaði kolli.
„Skólablaðinu?”
Í eldhúsinu lokaði hún skúffu. en
svaraði honunt ekki.
„Dagblöð? Tímarit?"
í arninum brann viðarbútur sundut^
og féll niður, svo kolin ultu fram á gólf-
ið. Stúlkan hljóp úr eldhúsinu og greip
skörunginn.
„Mig langar að lesa ljóðip þin ein-
hvern tinta.”
Stúlkan ýtti glóðinni aftur inn i arin-
inn.
„Faðir þinn heitir Leslie Jacobs. er
þaðekki?”
„Jú."
„Og þú?”
„Rynn."
„R-Y-N-N. Þaðer mjögóvenjulegt."
Stúlkan ýtti glóandi kolantola undir
grindina.
„Þú hlýtur að vera mjög vel gefin."
Hann leit í kringum sig. „Búa bara pabbi
þinn og þú hér?"
Hún svaraði ekki. lyfti lokinu á eldi-
viðarkassanunt og lét skörunginn falla
niður i hann.
„Bara þið tvö?" spurði ntaðurinn
aftur.
„Já."
Framhald (næsta blaði.
20VIKAN 43.TBL.