Vikan - 07.02.1980, Síða 5
5. Esjuberg
hrindandi matur. Hráefnið virtist þó
vera gott, hvaðan sem það var ættað,
því kjötið var lungamjúkt og alveg laust
við seigju.
Að því leyti hefði það átt að reynast
„lítið steikt”. Liturinn var hins vegar
grár langt inn í kjöt og bleikur einungis i
miðju, alveg eins og kjötið væri mitt á
milli „miðlungs” og „fullsteikts”. Svo
reyndist það þurrt og gersamlega bragð-
laust, eins og um þrælsteikt kjöt væri að
ræða.
Á þessu furðuverki hef ég enga
skýringu. Einkunnin er hreint núll. í stíl
við kjötið voru svo 100% bragðlausar
belgbaunir (úr dós?|. Hins vegar slapp ég
við hveitisósu. Og frönsku kartöflurnar
voru frambærilegar, sem og þær, er
fylgdu öðrum réttum Esjubergs.
Verðið er 6.130 krónur, „bortkastede
penge”.
Lambalæri
Marineraðar lambalærissneiðar voru
á matseðli dagsins, þunnar sneiðar,
harkalega grillaðar og dálítið brenndar,
gráar í gegn og ótæpilega kryddaðar.
Samt var enn eftir í þeim dálítill safi, svo
að þær voru alveg ætar.
Brúna hveitisósan, sem fylgdi, var
svakalega pipruð. Og gratineruðu
kartöflusneiðarnar voru vægast sagt
óhugnanlegur óskapnaður. Það er
furðulegt, að starfsfólk I eldhúsi skuli
vera látið hafa svona mikið fyrir jafn-
vondum mat og þarna kom í ljós.
Verðið er 3.600 krónur.
Svínahryggur
Svinahryggur Róberts var einnig á
matseðli dagsins og líka með sama
óhugnanlega meðlætinu, hveitisósunni,
hinum ólýsanlegu kartöflusneiðum og
piparsósunni. Einnig fylgdu hinar bragð-
lausu belgbaunir sem áður er getið og
einn einmana biti af gulrót úr dós.
Svínakjötið sjálft var hins vegar vel
meyrt og ágætt á bragðið. Það átti
sannarlega ekki meðlætið skilið.
Verðið er 4.770 krónur.
Kínverskar pönnukökur
krónur. Einnig má nefna rauðvínin
Mercurey og Saint-Emilion.
Vínveitingar hafa ekki spillt andrúms-
lofti eða yfirbragði Esjubergs. Hin langa
og góða reynsla, sem þar hefur fengist af
hófsemi gesta, ætti að vera yfirvöldum
tilefni til að leyfa veitingar léttra vína i
fleirum af hinum snyrtilegri veitinga-
húsum borgarinnar.
Of lítill munur
I Meðalverð 10 forrétta, millirétta og
eggjarétta er nokkuð hátt á Esjubergi,
2.500 krónur. Það er eins hátt og í
Naijsti og næstum eins hátt og á öðrum
vínveitingahúsum, sem veita þó
þjónustu til borðs.
Meðalverð 19 aðalrétta úr fiski eða
kjöti er 4.700 krónur á móti 8.000-8.500
krónum á vínveitingahúsunum með
þjónustu, Sögu, Holti, Nausti og Loft-
leiðum. Sá verðmunur virðist vera minni
en sem svarar hæfilegri endurspeglun
gæðamunar.
Esjuberg býður aðeins upp á fjóra
eftirrétti, þar af þrjá hversdagslega ísa og
svo skyr. Meðalverðið er tæpar 900
krónur. Auk þess má kaupa þar nokkrar
tegundir af tertum. Veitingastofan er
því nánast stikkfrí í eftirrettum.
Einkunnir nokkurra
Ef keypt er þríréttuð máltíð með kaffi
og hálfri vínflösku (Chianti) á mann,
ætti meðalmáltíðin að kosta um 10.300
krónur á móti 14.500-16.300 krónum á
hinum vínveitingahúsunum. Þessi
munur finnst mér of litill.
Mér mundi hins vegar ekki finnast
hann of lítill, ef matsveinar hússins
tækju á sig rögg og byrjuðu að elda af
innlifun, starfsgleði, nákvæmni og
virðingu fyrir góðum hráefnum. Á það
skortir mjög eins og prófunin leiddi
greinilega í ljós.
Gallar matreiðslunnar eru þess eðlis,
_að ekki ætti að vera kostnaðarsamt að
bæta úr þeim. Innlifun, starfsgleði,
nákvæmni og virðing fyrir hráefnum
kostar ekki peninga. Og alténd mætti
spara innkaupá dósamat.
Fjölskyldusnarl
Esjuberg er ekki staður til að kaupa
sér dýran, flókinn og viðamikinn veislu-
mat. Enginn ætti að búast þar við
matargerðarlist. Kostir staðarins eru á
allt öðru sviði.
Þetta er fjölskyldustaður, þar sem
hægt er að fá einfalt snarl eins og sild,
eggjaköku eða hamborgara fyrir
skikkanlegt verð — og jafnvel dreitil af
léttu, ef hugurinn er móttækilegur. Og
ekki má gleyma frönsku kartöflunum.
Mest um vert er þó, að ráðamenn
Esjubergs eru óvenju vinsamlegir í garð
barna, eins og hér hefur verið rakið að
framan. Barnakrókurinn er ein af
athyglisverðustu nýjungum í veitinga-
rekstri hér á landi.
Á Esjubergi kostar marinerað sildar-
flak 2.170 krónur, eggjakaka 1.500
krónur, hamborgari 1.130-1.370 krónur
og smurbrauð 2.090 krónur. En ekki má
heldur gleyma því, að hinir vönduðu
matsölustaðir bjóða lika upp á tiltölu-
lega ódýra rétti fyrir börn og fullorðna.
1 Nausti kosta þrjár tegundir síldar
2.935 krónur og smurbrauð 2.075
krónur. 1 Holti kostar smurbrauð 1.875
krónur, eggjakaka 2.275 krónur og djúp-
steiktar rækjur 3.100krónur. Á Loftleið-
um kostar eggjakaka 2.530 krónur og
síldarbakki 2.850 krónur. Og á Sögu
Kínverskar pönnukökur voru rúsínan í pylsuenda þessarar prófunar, ofsalega vondar á bragðið. Pönnukökurnar voru þykkar og tinar og hveitibragðið leyndi Marg- feldi veitingahusa Loft- Saga leiðir Holt Naust Esju- berg kostar smurbrauð 1.850 krónur, eggja- kaka 2.150 krónur, kræklingur 2.185 krónur, síldarbakki 2.970 krónur og smálúða 3.010 krónur.Hamborgara fyrir
sér ekki. Innvolsið var enn ógeðslegra. Matur x5 8 6 9 4 2 börn ætti að vera hægt að fá á þessum
Það var blanda til helminga af hrís- Þjónusta x2 9 6 7 9 (2) stöðum, þótt þess sé ekki getið á
grjónum og mataroliu. Vínlisti x 1 6 6 6 4 2 matseðlunum.
Ég minnist þess ekki að hafa komist í Umhverfi x2 7 7 7 9 7 Matreiðslan á Esjubergi fær tvo í
snertingu við óhugnanlegri mat á Samtals xlO 78 62 79 60 30 einkunn, vínlistinn tvo, umhverfi og
ævinni. Ég fæ gæsahúð af endur- minningunni. Einkunnin er mínus 21. Verðið er 2.620 krónur. Vín Esjuberg hefur ákaflega takmarkað vínúrval á boðstólum. Innan um eru þar góð vín: Af rauðvínum Chianti Classico Einfölduð heildar- einkunn: . Meðalverð aðalrétta í krónum: 8 8.500 6 8.300 8 8.100 6 8.000 3 4.700 andrúmsloft sjö. Ekkert er gefið fyrir matarþjónustu, því að hún er engin, en fyrir vínþjónustu fær Esjuberg dálitla hækkun. Heildareinkunn hússinser þrir. Jónas Kristjánsson
á 3.840 krónur og af hvitvínum Chablis
á 4.675 krónur og Edelfráulein á 3.840
6. tbl. Vikan S
i