Vikan - 07.02.1980, Síða 7
brigður félagsskapur og til að ýta undir
aukna félagshyggju leyfði hann okkur
að halda fundi í stóra matsal Ráðherra-
bústaðarins. Sumir sögðu að ég héldi
formannsembættinu út á það!
— Félagið Röskir drengir hélst alveg
fram á menntaskólaárin. 1 2. bekk lá ég i
einangrun í 6 vikur vegna skarlatssóttar.
Þegar ég fór svo á fund Röskra drengja á
Landakotstúninu sá ég að sumir voru
farnir að reykja. Mér brá töluvert í brún
því þetta var síður en svo á dagskrá hjá
Röskum drengjum. Clausen-bræður
lögðu til að félagsmönnum yrði bannað
að reykja og var tillagan samþykkt með
1 atkvæðis mun. Þá sögðu þeir sem
reyktu sig úr félaginu og það lognaðist
útaf.
— Annars á ég ótal skemmtilegar
minningar frá veru okkar í Ráðherra-
bústaðnum. Oft fórum við í eltingarleiki
eftir göngunum sem enduðu svo með þvi
að við stukkum fram af svölunum og
niður á tún. Móðir min, Vigdís, hafði
miklar áhyggjur af þvi að við gætum
slasað okkur, og eitt sinn er u.þ.b. 10-12
manna lið hafði horfið fram af
svölunum sáum við hvar faðir minn
kom á harðaspretti á eftir okkur og beint
yfir handriðið. Við áttum hálfpartinn
von á skömmum, en hann sagði bara: —
Þetta er ekkert hættulegt, strákur. Ég
skal tala við hana mömmu þina.
BJartsýnn þrétt fyrir erfiðleika.
Unniö við innréttingu á gufubaði.
— Faðir minn var ákaflega góður
félagi þrátt fyrir miklar annir. Við fórum
mikið á skíði og ég byrjaði ungur að
stunda með honum veiðar, bæði lax- og
rjúpnaveiðar. Hann keypti byssu handa
mér en gætti þess vandlega að ég notaði
hana aldrei nema undir eftirliti hans.
Þess á milli var hún læst inni og lágu
ströng viðurlög við þvi að snerta hana
án leyfis. Og þegar pólitíkin íþyngdi
honum átti hann oft til að stinga upp á
þvi að við hyrfum til fjalla. Ég tók þá
eftir því að hugur hans var stundum
viðsfjarri. aðalatriðið hafði bara verið
að komast í burtu. Siðan hef ég
reynt þetta á sjálfum mér. Fátt er betra
þegar vandamálin steðja að en að
gripa i smiðarnar eða að skreppa á skíði
meðfjölskyldunni.
Lögreglukylfan
skipti sköpum fyr-
ir valdahlutfallið í
hverfmu. Enginn
þorði að leggja í
okkur þegar við
birtumst með
hana.
Faðir minn kom
á harðaspretti og
beint yfir hand-
riðið. Við áttum
von á skömmum,
en hann sagði:
Þetta er ekkert
hættulegt. Ég skal
tala við mömmu
þína.
Þjóðmál og vegavinna
— Fékkstu snemma áhuga á stjórn-
málum?
— Nei, ekki stjórnmálum sem slíkum
heldur þjóðmálum i heild. Sem strákur
hafði ég gaman af þvi að sitja á skrif-
stofu föður míns og hlusta á þær
umræður sem þar fóru fram. Svo var ég
6 sumur í sveit á æskustöðvum hans og
eftir að mér óx fiskur um hrygg vann ég
hin margvíslegustu störf á sumrin. Ég
vann t.d. i sildarverksmiðju, sigldi á
millilandaskipi og var í vegavinnu. Allt
þetta gaf mér víðari sjóndeildarhring
hvað þjóðlifið snertir og aflaði mér
ómetanlegs lærdóms. Annars lá við að
við Matthías Johannessen ættum ekki
afturkvæmt úr vegavinnunni eitt
sumarið. Við vorum saman í tjaldi og
höfðum primus til upphitunar. Eitt
kvöldið höfðum við skrúfað niður í
honum án þess að eldurinn slokknaði
alveg. Hann ósaði mjög en við vorum
steinsofnaðir. Það vildi okkur til lifs að
einn af vinnufélögum okkar kom seint
heim um nóttina, sá reykinn og reif upp
tjaldið. Ég rankaði fljótlega við mér. en það
tók töluverðan tima að koma Matta til.
En ég ætlaði mér alls ekki að verða
stjórnmálamaður. Til þess vissi ég alltof
vel hvað það kostaði. Órólegt líf þar sem
frí gafst ekki nema gripin væri hver
stund sem aflögu var. Og svo
blöskraði mér það álag sem hvildi á
móður minni sem eiginkonu stjórnmála-
manns. Hjá okkur var stöðugur gesta
gangur og fjöldinn allur af mönnum úr
kjördæmi föður míns gisti hjá okkur ef
þeir voru í Reykjavík. Þar að auki varð
hún að standa fyrir öllum þeim veislum
sem haldnar voru i Ráðherrabústaðnum
á meðan við bjuggum þar.
— Móðir min var á ýmsan hátt mjög
sérstök kona. Hún var trúuð og afar
góð kona og móðir. Ég er sannfærður
um að hún notaði aldrei blótsyrði á sinni
ævi. Venjulega fann hún hverjum þeim
manni eitthvað til bóta sem hún heyrði
hallmælt, t.d. ef faðir minn hafði þung
orðum einhvern.
Og aldrei heyrði ég hana kvarta
6. tbl. Vikan 7