Vikan - 07.02.1980, Page 17
Eitt grundvallareinkenni geðklofans er
óumræðilega mikil angist. Það liggur
alltaf mjög sterk hræðsla til grundvallar
viðbrögðum sjúklingsins. Annað áber-
andi einkenni geðklofasjúklings er að
tengsl hans við umheiminn rofna yfir-
leitt.
Margir geðklofasjúklingar hætta að
hafa áhuga á félagslegum samskiptum.
Þeir vilja vera einir út af fyrir sig. Sumir
loka sig alveg af og geta lifað algjörlega í
eigin heimi. Hugsanir og mál sjúklings-
ins geta orðið öðrum alveg óskiljanleg.
Fólki finnst geðklofasjúklingar oft virka
mjögsljóirogdaufir.
Æði-deyfð
Þessi sjúkdómur einkennist yfirleitt af
því að hann kemur í köstum. Hann
getur varað í nokkra mánuði eða ár en
siðan gengið yfir. Sjúkdómurinn kemur
fram í þvi, að annaðhvort verður
maðurinn þunglyndur eða mjög hátt
stemmdur. Margir fá bara annað kastið
og eru þunglyndisköst mun algengari en
æðisköst.
Þegar maður er þunglyndur getur
hann verið fullur af sjálfsásökunum,
finnst hann einskis nýtur, engum þyki
vænt um hann og þviumlikt. Þunglynd-
ur maður getur átt erfitt með að taka sér
nokkuð fyrir hendur, öll vinna og öll
framkvæmd getur orðið honum kval-
ræði.
Gagnstætt þunglyndi er maður í
æðikasti mjög hátt stemmdur og finnst
að hann geti auðveldlega sigrað
heiminn. Hann er fullur af bjartsýni,
hann getur allt og allt gengur frábærlega
vel. Oft tekur fólk í æðikasti sér ýmislegt
fyrir hendur sem það myndi ekki gera i
eðlilegu ástandi, og það er ekki fært um
að taka afleiðingum gerða sinna.
maður getur oft ekki aðskilið raunveru-
leika og ímyndanir. Ein mesta
visbending um hvort kalla megi mann
geðveikan eða ekki er skynjun hans á
sjálfum sér og umhverfi sínu.
Tveir mikilvægustu og algengustu
geðsjúkdómamir eru geðklofi
(schizofreni) og æði-deyfð (manio-
depressive) geðveiki.
Geðklofi
Geðklofi er ekki einn sérstakur ákveð-
inn sjúkdómur, heldur samheiti fleiri
sjúkdóma sem hafa viss sameiginleg
einkenni.
Erlent
Móðir Jackie
0. á brúðarbekk
Brúðhjónin Janet Lee
Auchincloss og Bingham Morris
höfðu þekkst allt frá barnæsku —
þó að þau skelltu sér ekki i það
heilaga fyrr en hún var orðin 71
árs og hann 73 ára. Janet Lee, sem
er móðir Jackie Kennedy Onassis,
hefur ákveðið að búa í húsi i
Newport. í því eru 28 herbergi og
það var þar sem þau Jackie og
John Kennedy eyddu tilhugalifinu
að mestu. Henni hefur borist tilboð
frá væntanlegum kaupanda sem sér
fram á að geta þénað vel á húsinu
með því að breyta því í
Kennedysafn.
Janct Lee Auchincloss fyrir framan
hús sitt I Newport — þar ■ ^m
dóttir hennar Jackie og John
Kennedy, síðar forseti Bandarikj-
anna, áttu sér ómældar sælustundir.
b.tbl. Vikan 17