Vikan - 07.02.1980, Page 19
„Ég átti engra kosta völ.”
„Það hentaði þér að ég var þarna,
Tara Kane, og neitaðu þvi ekki.” Smith
hló. „Hvernig sem ég fer að get ég ekki
unnið. Ef ég hjálpa þér er það vegna þess
að ég vil eignast þig. En ef ég léti þig
eina um að sjá um þig væri ég þorpari.
Et eg útvega þér mat og þak yfir höfuðið
væri það þannig að ég gæti dregið þig á
tálar, sem er ólöglegt. Ef ég væri á eftir
þér trúi ég ekki öðru en ég gæti sannfært
þig á meira áberandi hátt.”
„Jæja, af hverju hjálpaðirðu mér þá?”
„Af því að mig langaði til þess,” sagði
hann lágri röddu.
„Ég trúi þér ekki, Jeff, af þvi að ég
trúi ekki að þú hafir nokkurn tima ggrt
nokkuð án leynds tilgangs," hreytti hún
i hann.
„En leiðinlegt að svona góðhjörtuð
kona hafi svona litla trú,” sagði hann
hugsandi og brosti dapurlega. „Þér
skjátlast um mig, Tara — og um sjálfa
þig, ef þú heldur að þú hafir komið
hingað vegna eiginmanns þíns. Þú
hljópst á brott til að finna sjálfa þig, til
að sjá að þú gætir staðið á eigin fótum.”
Töru var brugðið. Smith gaf henni
ekki tækifæri til að verja sig og hélt
áfram: „Svo núna, þegar við skiljum
hvort annað, ætla ég að bjóða þér vinnu.
Vertu hægri hönd mín, Tara. Hjálpaðu
mér að ná þvi sem er rétt og sómasam-
legt fyrir þetta bölvaða landsvæði —
framtíð. Hvernig væri að hjálpa mér að
laga þessar skýrslur?”
Hann einblindi á hana. Tara var orð-
laus. „Ef þú ert sú kona sem ég held að
þú sért, Tara, þá tekur þú áskorun
minni. Á þann hátt get ég ekki átt þig. Á
þann hátt hættir þú kannski að skamm-
ast þin fyrir að eiga Jefferson Smith að
vini. Ég veit að þú metur sjálfsvirðingu
þína mikils og ég ætla að gefa þér tæki-
færi til að sanna það.” Hann leit hrein-
skilnislega á hana. „Þú getur gert mig að
einhverjum öðrum. Þú getur gert mig að
virtum manni. Helviti, ég get ekki einu
sinni skrifað sómasamlegt viðskipta-
bréf!”
Hann sá efasvipinn á henni. „.Allt i
lagi, ég hef logið og svikið, en núna ætla
ég að reyna að verða annað en harður
fjárhættuspilari.”
Hann stóð upp og leiddi Töru að dyr-
unum. Tara, sem var mjög undrandi,
ætlaði að ganga út þegar hann tók hönd
hennar og kyssti hana. „Ég trúi á þig,
eins og ég veit að þú trúir á mig,"
hvíslaði hann.
Tara var undarlega hrærð af orðum
Smiths. Hún varð að hugsa sig vel um.
Þegar Lydia fór út með John seinna
þennan sama dag skrifaði Tara bréf til
Jefferson Smiths.
Kæri hr. Smith.
Með tilvísun til boðs þins um vinnu
mun ég með ánægju taka við stöðu sem
aðstoðarmaður þinn með þvi skilyrði að
eftirfarandi skilmálar verði samþykktir.
Mér skilst að ég eigi ekki að vinna við
ólögleg viðskipti.
Ég mun krefjast launa sem væru eitt
hundrað dalir á mánuði og frítt fæði og
húsnæði fyrir mig og John og þjónustu
Lydiu.
Ég vonast til að heyra frá þér ef þú
getur samþykkt áðurtalda skilmála.
Virðingarfyllst,
Tara Kane.
■ „Tara, þú ert óborganleg!” voru
fyrstu orð Smiths þegar hann gekk inn i
kofann. Hann veifaði bréfinu. „Ég held
að við höfum hér undirstöðuatriði til
umræðu. Það eru aðeins ein vandræði
— peningar. Ég ætla að borga aðstoðar-
manni mínum að minnsta kosti tvö
hundruð dali á mánuði.” Tara gapti af
undrun. „Þú verður að taka á móti
gestum fyrir mig þegar það er nauðsyn-
legt og verður að vera til taks þegar ég
segi svo. Algjör viðskipti,” sagði hann
hraðmæltur. „Þú þarfnast vinnu, ég
þarfnast einhvers sem ég get treyst, til
að halda bókhald fyrir mig, til að semja
bréf fyrir mig.”
Tara reyndi að forðast augnaráð
hans. Hún vildi enga hlutdeild í viðskipt-
um hans. Samt varð hún að vinna sér
nógu mikið inn fyrir heimferðinni með
John, og meðan Lydia leit eftir barninu
hafði hún tima til að vinna.
„Jæja,” sagði hún rólega. „Ég get séð
um bókhaldið fyrir þig. Ég býst við að ég
séfullfær bókhaldari."
„Allt í lagi, frú Kane, þú ert þá
ráðin.”
Næsta morgun vísaði Smith henni á
skrifborð i skrifstofu sinni. Hún varð
fljótlega niðursokkin í bréfaskriftir og á
meðan laumaðist Smith í burtu.
í hádeginu kom þjónn með mat og
setti bakkann á stóra skrifborðið hans
Smiths. Á meðan Tara drakk kaffið eftir
matinn tók hún eftir stóru leðurmynda
albúmi og byrjaði að blaða í þvi.
Fyrir framan hana birtist ævi Jeffer-
son Smiths. Það voru Ijósmyndir, blaða-
úrklippur, blaðsiða eftir blaðsíðu af
minningum. Aðeins maður með mikið
sjálfsálit gat haldið saman svona ná-
kvæmu safni. Þarna var máð Ijósmynd
af öldruðu pari. Erfitt að trúa að af-
sprengi þessara prúðmannlegu hjóna
væri hinn alræmdi Sápu-Smith! Það
voru myndir af Smith sjálfum, ein af
honum sem litlum dreng með svo
mikinn englasvip að Tara skríkti. Önnur
mynd var af honum fullorðnum i ein-
6. tbl. Víkan 19