Vikan - 07.02.1980, Side 25
Ragna Ragnars
sjón varpsm yndaþ ýðandi m.m.:
ímynd
fullkomnunarinnar
og rjúpur
„Ég hefði áhuga á að bjóða Steingrimi
Hermannssyni í niðurgreitt lambakjöt og
reyna í leiðinni að komast að því hvaða
sjarmi olli þvi að næstum hálf þjóðin
kauá Framsóknarflokkinn i siðustu
kosningum. Til vara byði ég Neró
keisara því ég vildi gjarnan heyra hann
spila á líru á meðan hann borðaði
eitthvað grillað. Ef hvorugur þessara
vildi koma þá byði ég Katrínu miklu og
Kleópötru saman, bæri 50 smárétti á
borð fyrir þær og sæti svo og hlustaði,
kæmi þá væntanlega eitthvað nýstárlegt
leða gamaldags) I Ijós, kvenréttindi, karl-
menn og stjórnmál. Einnig gæti verið
gaman að ræða skáldskap við Baudelair
yfir rauðvínsglasi, ég er viss um að ég
þyrfti ekki að bjóða honum neitt annað
því hann var alltaf lystarlaus.
En ef ég ætti að nefna þann sem ég
raunverulega vildi bjóða í mat þá væri
það Hannes Hafstein fv. ráðherra. Hann
er að minu mati ímynd fullkomnun-
arinnar, glæsilegur og mikið karlmenni,
auk þess af góðum ættum, gáfaður og
menntaður. Samfara karlmennskunni
fer blíðlyndi og skáldskapargáfa og hjá
mér fengi hann rjúpur.”
Ólafur Geirsson
cand. oecon og blaðamaður:
Fjallkonu frekar
en eitraðan hákarl
„Það koma auðvitað margar persónur
sögunnar upp í hugann þegar maður fær
svona kostaboð. Fyrst kemur mér i hug
fræg bandarísk sundkona sem lengi
hefur reynt að synda frá Flórída til
Kúbu. Hlýtur að vera stórmerkileg
manneskja, sem leggur slikt á sig þrátt
fyrir alla hættuna af hákörlum og
öðrum ódráttum. Við mundum væntan-
lega fá okkur hákarl og brennivín en þar
sem ég get ómögulega ímyndað mér
hvað ræða skuli við svona konu verður
víst aðsleppa henni.
Ég verð víst líka að sleppa skáld-
konunni Auði Haralds í þessu matarboði
þar sem ég ætti það annars á hættu að
lenda í næstu skáldsögu hennar.
Liklega væri það helst hin fagra og
alræmda Lucretia Borgia, sem uppi var
á Italíu um 1500, sem ég vildi bjóða til
min í mat. Hún var uppi á endurreisnar
tímanum, var sjálf nefnd verndari lista
og vísinda og mun í alla staði hafa verið
hin áhugaverðasta kona. Einn væri þó
Ijóður á því að bjóða henni, en hann er
sá að bræður hennar með Cesar
nokkurn Borgia i broddi fylkingar þóttu
skæðir með að drepa á eitri alla þá karl-
menn sem nálægt systurinni kom. Hún
fær þess vegna ekki boðið.
Þrautalendingin verður þvi Fjall-
konan okkar. Við hana er að sjálfsögðu
ekki hægt að ræða annað nú um stundir
en verðbólguna og á matseðlinum
verður að sjálfsögðu niðurgreitt lamba-
kjöt.”
Katrin Pálsdóttír
blaðamaður:
Fiskur fyrir
snilling
„Það væri stórkostlegt aðgeta stokkið
aftur i 18. öldina og geta boðið Wolf-
gang Amadeus Mozart i mat því hann
hefur samið þá fallegustu tónlist sem ég
þekki. Ég byði honum náttúrlega i
trausti þess að hann settist við hljóð-
færið að mat loknum og léki Eine kleine
Nachtmuzik fyrir mig. Ég er slæmur
kokkur en myndi líklega reyna að snúa
saman einhvern fiskrétt handa
snillingnum og bjóða honum hvitvín
með.”
6. tbl. Víkan 25