Vikan - 07.02.1980, Page 26
Borðfélagar
honum breytingarnar. Ef viö ættum svo
að snæða saman þá vildi ég að hann réði
matseðlinum. Ég myndi spyrja hann
hvernig geirfugl væri á bragðið og um
laxveiði í Elliðaánum hér áður fyrr. svo
ég tali ekki um álinn í Tjörninni. Mjög
líklega hefur hann reynt hann. En ef
hann þvertæki fyrir að ráða
matseðlinum myndi ég bera á borð fyrir
hann ýmsa íslenska rétti, svo sem skyr
og aðrar mjólkurafurðir, og gera saman-
burð á þeim miðað við hvernig hann
þekkti þá. Ég held að hann væri ekki
spenntur fyrir einhverju útlensku fíniríi
eins og við þekkjum það í dag.”
Skop
sagnfræöingur:
Samanburður á
mjólkurafurðum
„Ef ég fengi ráðið þá yrði lngólfur
Arnarson gestur minn. Það væri gaman
að spjalla við hann og spyrja hann út i
sjóferðina til íslands, hvernig á þvi stæði
að hann hefði verið svo framsýnn að
flytja til þessa dásamlega lands, og ekki
væri verra að ganga með honum um
höfuðbólið eins og það er i dag og sýna
Skúii Hansen
matreiðslumeistari:
Lifandi ostrur —
innfluttar!
„Ég á þá ósk að fá að borða með
Georg Ágúst Escoffier sem nú er látinn
en hann er Ifkast til einn mesti
matreiðslusnillingur sem uppi hefur
verið. Hann uar Frakki og starfaöi bæði
í heimalandi sinu og Englandi. Ég myndi
að sjálfsögðu bjóða honum í Hótel Holt
þar sem ég útbyggi gratíneraðar ostrur
sem ég að vísu þyrfti að flytja inn. Yfir-
leitt eru ostrur borðaðar lifa'ndi en.í
þessu tilviki myndi ég byrja á því að
sjóða þær i hvítvíni, hella síðan ostasósu
yfir þær og láta þær gratinerast þannig i
ofni. Með þessu yrði borið fram ristað
brauð og Chablis hvítvín árg. 1964. Yfir
borðum yrði að sjálfsögðu rætt um
matargerðarlist og ég er viss um að ég
gæti margt lært af Escoffier.”
26 Víkan 6. tbl.