Vikan - 07.02.1980, Side 30
Draumar
Þrír minnisstædír
draumar
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að biðja þig
um að ráða fyrir mig drauma.
sem mig hefur dreymt og ég
get ekki hætt að hugsa um.
Einn er svona: Ég var stödd
i stóru svörtu skipi að mig
minnir. Ég ráfaði um. Við
áttum að spila fótbolta, ég og 7
aðrir krakkar, 2 unglingar og 2
börn í liði. En mér fannst ég
vera að leita að einhverjum. Ég
veit ekki hverjum. Svo sé ég
sjónvarp og sé 2 yngri systkini
mín I því og frænda minn sem
er 8 ára. Ég skipti mér ekkert
af því. Þau voru að spila fót-
bolta og ég hélt þau vera að
bíða eftir mér og skólabróður
mínum, en hann stóð á bryggj-
unni og reyndi að finna leið til
að komast um borð. Svo hitti
ég nokkrar stelpur sem ég
þekki og spyr hvort þær hafi
séð vissa persónu sem við
skulum kalla T. Mig minnir að
þær hafi sagt nei. Ég labba því
næst að dalli, hálffullum af
fiski (smáum). Ég lít ofan í
hann og labba svo áfram. Svo
sé ég vinkonu mína standa um
borð og horfa á bryggjuna. Svo
allt í einu var ég stödd á kaðli
sem var milli skipsins og
bryggjunnar. Ég var aftarlega
og hékk á honum. Svo fannst
mér kaðallinn falla og ég var
allt I einu voða neðarlega og
hvort ég var á milli skips og
bryggju eða fyrir ofan bryggj-
una man ég ekki. Mig minnir
það fyrrnefnda.
Svo fannst mér að vinkona
mín héngi fyrir ofan mig og ég
var að reyna að laga mig til.
Ég man ekki hvort skipið var
að fara af stað eða það
hreyfðist og mér fannst það
vera að fara til útlanda. Svo
vaknaði ég. Annar draumurinn
er svohljóðandi: Mér fannst ég
vera stödd í Bankastræti eða á
Laugavegi með gamalli
vinkonu minni og annarri
stelpu sem ég þekki vel. Allt í
einu vorum við vinkona mín
orðnar einar og vinkona mín
var búin að stela 2 tann-
burstum en ég búin að kaupa
einn. Hann kostaði minnir mig
um 500 krónur. Svo var hin
stelpan komin. (Hún kom oft á
milli fram í draumnum.) Við
, vorum að bíða eftir einhverju
ég held það hafi verið þrír
strákar sem áttu að koma með
fugvél (einn þeirra er látinn).
Svo sjáum við vinkona mín
verkfœrabúð og við héldum að
hún væri mannlaus og
ætluðum inn að stela. Þegar
við fórum inn birtist maður
(búðarmaður að sjálfsögðu).
Ég held ég haf spurt hann
hvort það væri til naglaskafa
eða eitthvað svoleiðis. Svo fékk
ég allt I einu hláturkast. Ég
held að ég hafi hlegið og
hlegið. Við ætluðum að fara
niður í Lækjargötu á veitinga-
hús og fá okkur samloku. Ég
man mjög óskýrt hvað gerðist
þar en allt í einu vorum við
komnar aftur á Laugaveginn,
við þrjár. Þá koma 2 fugvélar
akandi niður Laugaveginn á
fullrí ferð og fólkið, sem var
ósköp fátt, þeyttist í allar áttir.
Við vissum að slys hafði orðið
og mér fannst að vélarnar
hefðu keyrt yfir eina
manneskju, ég held að það hafi
veríð lítill strákur. Fleira man
ég ekki úr þessum draumi.
Og hér kemur sá þriðji: Ég
var einnig stödd á Lauga-
veginum og var með vinkonu
minni. Við vorum staddar á
horni og allt í einu þeyttist
strætó framhjá og í honum sat
frekar gamall maður. Ég tók
greinilega eftir svipnum á
honum, sem var Ijótur og lýsti
geðveiki. Hann heldur áfötu
fullri af drasli og ryki, ló og
svoleiðis. Hann teygir
hendurnar og fötuna út um
gluggann á strætónum og hellir
öllu yfir mig. Ég segi við
vinkonu mínæ Reykjavík er
ekkert annað en ryk, sjáðu. Ég
lét puttann á bíl og sýndi henni
rykið sem kom á hann. Þá tek
ég eftir gamalli konu, svart-
klæddri (I sorgarbúningi minnir
mig) og hún lítur voða hvasst á
mig eins og hún œtli að gera
mér eitthvað. Hún var voða
skýr. Svo vorum við vinkona
mín allt í einu staddar í húsi
einu, fullu af ryki, og í því
áttum við að taka til og sofa
um nóttina. Fleiri voru þarna
inni en ég man ekki hvað þau
hétu hin. Ég held að systir
vinkona minnar hafi verið
þarna. Ég var að þurrka af ein-
hverju gráu járni sem var fast
milli tveggja veggja, kringlótt.
Svo sat ég á því og eitthvað
held ég að ég hafi talað við
krakkana. Síðan hélt ég áfram
að taka til og ég tók eftir því
að vinkona mín var að sópa.
Ég fór að þurrka undan
rúmunum og ég var að kafna
úr ryki. Hreinlega ætlaði ég
ekki að ná andanum.
Svartklædda konan var mér
efst í huga I draumnum, en
hvort hún birtist aftur man ég
ekki. Mér leiddist þarna. Svo
held ég að við höfum verið
búnar að gera upp herbergið
þegar ég vaknaði.
Innilegar þakkir fyrir birting-
una, með von um svar fijótt.
Bleik mey.
Fyrsti draumurinn er þér fyrir
einhverjum miklum breyt-
ingum, jafnvel utanlandsferð, og
ýmislegt bendir til að þú ættir að
fara mjög varlega í því
sambandi.
Annar draumurinn undir-
strikar þann fyrri á þann máta
að þar er tæpt á þessum sömu
varhugaverðu atvikum og mun
þér mjög þýðingarmikið að fara
mjög varlega í að láta stjórnast
af varhugaverðum kunningjum.
Mikil vonbrigði bíða þín í
tengslum við einhvern vin eða
kunningja og þar átt þú sjálf ein-
hverja sök á atburðarásinni.
Þriðji draumurinn er svo enn
frekari undirstrikun hinna fyrri
og boðar mikil vonbrigði og
árekstra við nána ættingja eða
vini. Þú ættir að fara þér hægt í
öllum framkvæmdum, varastu
það sem ekki þolir dagsins ljós
og þú vildir ekki þurfa að svara
fyrir hvar og hvenær sem væri.
I miðri Viku
30 Vik.an6.tbl.