Vikan - 07.02.1980, Page 38
Smósaga
HJOL
FYRIRTVO
Jes var einn af þessum ævintýramönnum, sem
virðast algjörlega ábyrgðarlausir og án nokkurs
markmiðs í lífinu. Greger var algjör andstæða
hans og álitlegt mannsefni. En Maríanna átti eftir
að reyna, að ekki er allt gull sem glóir.
Eg hafði ímugust á Lísu Thorsen frá því
fyrsta, þegar hún sigldi inn á skrifstof-
una mína. Há og grönn eins og ljós-
myndafyrirsæta, klædd í smekklega
buxnadragt sem sannarlega fór henni
vel. Hárið féll mjúklega niður axlimar
— einmitt þannig sem mitt hár gat aldrei
verið. Andúð min óx til muna þegar hún
ávarpaði mig mjúkmál: — Ert þú
Maríanna Larsen? Ef svo er, þá er þetta
auðvitað skrifborðið mitt! Herra
Malling sagðist vera búinn að boða
komu mína.
Ég var fegin að ég skyldi hafa vandað
klæðnað minn venju fremur þennan dag
og reyndi að bera mig mynduglega þegar
ég sagði þurrlega: — Reyndar er þetta
mitt skrifborð.
Hún brosti hýrlega. — Auðvitað.
Þessa vikuna alla vega. Þetta er verulega
flott og ábúðarmikið borð.
Hún lét vel snyrta höndina gæla við
viðinn, greinilega hæst ánægð að eiga i
vændum að sitja í leðurklædda stólnum
minum við mína fullkomnu rafmagnsrit-
vél. Ég hafði alltaf verið ánægð með
skrifborðið mitt, það líktist forstjóra-
borði, þungt og efnismikið.
— Ég er alsæl yfir að hafa hlotið
starfið, sagði Lisa létt. — Maður hlýtur
að hitta hér fjölda af spennandi
mönnum...
Sú var frökk, það hafði mér ekki
flogið í hug þegar ég hóf störf fyrir Erik
Malling og varð hans hægri hönd. En
hún áttaði sig greinilega á því að fyrir-
tæki eins og Innréttingaval hefði marga
mikilvæga viðskiptavini. Herra Malling
var löngu þekktur fyrir öruggan og
smekklegan stil, einfaldan en jafnframt
glæsilegan. Til hans sótti því margt fyrir-
manna, sem óskuðu eftir ráðleggingum
hans varðandi innréttingar. Ég hafði
reyndar kynnst Greger, unnusta
minum, hér á skrifstofunni. Hann hafði
komið hingað til að ræða við Malling
um innréttingar á nýju skrifstofu-
húsnæði sem hann var að taka i notkun.
Eftir að hann hafði setið inni á einka-
skrifstofu Mallings gekk hann við hjá
mér og mér til mikillar undrunar bauð
hann mér í miðdegisverð.
Ég gat þvi með sanni sagt Lísu að
vissulega hitti maður marga áhugaverða
menn i þessu starfi. — Reyndar eru líka
sérlega ánægjulegir strákar á auglýsinga-
stofunni hérna hinum megin við
ganginn, sagði ég og reyndi að vera
óþvinguð, — ég get beðið Jes Backer að
kynna þig fyrir þeim. Já, þetta er
skemmtilegt starf, ég hætti einungis
vegna þess að ég ætla að gifta mig.
Ég sá að hún kom auga á iburðar-
mikinn hringinn sem ég bar á vinstri
baugfingri. Amma Gregers hafði átt
þennan hring og hann var dýrmætt
erfðafé.
— Ohó, guð, en sá hringur! sagði hún
áfjáð, — hugsa sér ef ég yrði eins
heppin.
Ég fann hárin risa á höfði mér,
dæmalaust var stúlkan opinská.
— Já, hann er fallegur, þetta er erfða-
gripur, sagði ég fálega. Ég kærði mig
ekkert um að láta fólk halda að Greger
væri einhver auðkýfingur. Hann hafði
sagt að það væri allt í lagi þó fólk héldi
að hann hefði rúman fjárhag. Hann var
á uppleið og allt benti til þess að hagur
hans yrði ekki sem verstur er fram liðu
stundir. Annars var það ekki þess vegna
sem ég ætlaði að giftast Greger.
Reyndar hafði ég ekkert á móti fjárhags-
legu öryggi í framtíðinni. Foreldrar
mínir höfðu verið heldur illa stæðir, en
þó hafði ég átt hamingjusama æsku. Ég
valdi Greger fyrst og fremst vegna þess
að hann vissi hvað hann vildi. Ég elskaði
hann af því að hann var ákveðinn og ég
fann öryggi og ró i návist hans.
Ég ætlaði að fara að segja eitthvað í
þessa átt þegar dyrnar opnuðust hægt og
hönd með stóra, bláa leirkrús kom i Ijós í
dyragættinni. Rétt á eftir stakk Jes
úfnum kollinum inn, hann var með
tunguna lafandi niður á höku og augun
ranghvolfdust. Vissulega áhrifamikil
sjón.
Ég skellti upp úr. — Þú ert of snemma
á ferðinni, asninn þinn. Teið er ekki til-
búið. Hættu þessum skrípalátum og
heilsaðu heldureftirmanni mínum.
— Jes er teiknari á auglýsinga-
stofunni, sagði ég við Lisu. — Hann er
hér eins og grár köttur, drekkur teið mitt
og fælir burtu viðskiptavini okkar.
Jes skellti krúsinni á skrifborðið og
gaut augunum út undan sér á Lísu. —
Gott að Malling hefur smekk fyrir
álitlegu kvenfólki. Þú átt áreiðanlega
eftir að kunna vel við þig hérna, vinan.
— Reyndar er Jes sjálfur að hætta,
svo þú átt ekki eftir að hafa mikið af
honum aðsegja, sagði ég.
— Jæja, á hún ekki eftir að hafa neitt
af mér að segja. Jes gretti sig. Svo greip
hann báðar hendur hennar: — Reyndu
ekki að sleppa, mín fagra. Ég ætla að
fara burtu með þig á reiðhjólinu minu,
við skulum fljúga saman til Suður-
hafseyja!
Lísa flissaði: — Er hann alltaf svona?
— Alltaf, sagði ég. — Það versta er að
hann hefur raunverulega I hyggju að
fara á hjóli til Suðurhafseyjanna! Hann
bindur bara bagga sína — hviss — og
svoer hann horfinn.
— Þessi kjánastelpa, hélt Jes áfram,
— neitar að leyfa mér að nema sig á
brott. Ég hef meira að segja boðið henni
einkahjól! En ekki til að tala um. Hún
ætlar að vera eftir hér heima og giftast
Steinriki.
— Þú mátt ekki tala svona, Jes, sagði
ég örg. — Það passar ekki.
— Uhumm, sagði hann efablandinn á
svip. — Annað hefði ég nú haldið. Svo
er maðurinn algjörlega eins og höggvinn
í stein. Reyndar hef ég séð að hann
hreyfir varirnar þegar hann talar, en ég
veit ekki hvað myndi gerast ef maðurinn
færi aðhlæja.
— Hættu, sagði ég snöggt, — annars
hendi ég þér út og þú færð ekkert te.
Mér þótti miður að Greger og Jes féll illa
hvorum við annan. Greger þoldi Jes ekki.
— Hann hefur ekki bein í nefinu, sagði
Greger. — Það er útilokað að ræða
skynsamlega við hann. Ég hafði reynt að
fullvissa Greger um að hægt væri að
ræða allt milli himins og jarðar við Jes
en Greger hafði ekki látiðsannfærast.
Meðan viðdrukkum teiðsagði Lísa að
hún væri að leita að íbúð. Hún sagðist
búa á gistiheimili eins og sakir stæðu og
það væri auðvitað bæði kostnaðarsamt
og leiðinlegt.
— Ég er ekki viss um að búið sé að
leigja íbúðina mína ennþá, sagði ég. Ég
flyt eftir viku og var reyndar búin að
greiða þriggja mánaða leigu fyrirfram.
— Ætlarðu að gifta þig svona fljótt?
Jes leit skelkaður á mig.
— Nei, Skki fyrr en eftir nokkra
mánuði. En við fengum íbúð sem ég
ætla að flytja í strax. Þú gætir orðið
mér samferða heim eftir vinnu, Lísa, og
litiðá íbúðina.
Lisa var jafnvel ennþá hrifnari af litlu
íbúðinni minni heldur en skrifstofunni
minni. Ég hefði líklega átt að vera upp
með mér af hrifningu hennar en sífelldar
upphrópanir hennar fóru vægast sagt i
taugarnar á mér. — Fylgir þetta með
íbúðinni? spurði hún stanslaust.
Sumt af húsgögnunum var leigt með
en ég átti þó mest af því sem prýddi
íbúðina. Ég féllst á að selja henni bóka-
skáp, sem ég sá ekki að eftirsjá yrði í, en
málverkið yfir sófanum hvarflaði ekki
að mér að selja.
— Já, en það passar svo stórkostlega
þarna. Litirnir og stærðin. Ég verð að
eignast það. Eða annað sem er eins.
— Nei, alls ekki, hvæsti ég.
Hún leit undrandi á mig. — Hvað er
að, hvað í ósköpunum? Hvað hef ég
sagt?
Ég gat ekki skýrt það fyrir henni.
Tilhugsunin um að Lisa byggi hér í
minni ibúð óbreyttri var hreint og beint
óþolandi.
Þegar Greger kom var Lisa ófarin.
Hún þreyttist ekki á að skoða og bolla-
leggja hvernig hún myndi hafa það
þegar hún kæmi sér þarna fyrir. Ég
kynnti hana fyrir Greger og hún var
greinilega jafnheilluð af unnusta mínum
eins og íbúðinni minni — og starfi mínu.
Þegar hún tautaði nokkru seinna
eitthvað á þá leið að hún mætti til með
að fara hafði Greger engar vöflur á,
heldur bauð henni með okkur út að
borða. — Við ætlum að fá okkur ostrur,
sagði hann. — Þykja þér góðar ostrur?
Lísa kinkaði kolli og brosti blítt.
— Ljómandi, er það ekki Maríanna?
— Mig hefur alltaf dreymt um að ganga
inn á veitingahús með glæsilegar stúlkur
sina við hvora hlið — rétt eins og mafíu-
foringi. Lísa flissaði og sagði að hann
væri eins og skapaður i hlutverkið.
Meðan ég skipti um föt ók Greger
Lísu til gistiheimilisins til að hún gæti
skipt um föt. Hún var ekki siður glæsileg
i rjómagula kvöldkjólnum en buxna-
dragtinni sem hún klæddist fyrr um
daginn. Mér fannst græni kjóllinn minn
falla í skuggann, þó hafði Greger sagt að
hann færi vel við lit augna minna.
Ég bað þess í hljóði að Greger færi
ekki á uppáhalds veitingahúsið okkar
við ströndina. En hann gerði það nú
einmitt. Og Lisa var heilluð. Hún talaði
stöðugt, dásamaði útsýnið, rómaði
matinn og þjónustuna og virtist i einu
orði sagt bergnumin. Greger kinkaði
stöðugt kolli, hrcykinn eins og hani á
haug, rétt eins og öll þessi dýrð væri
honum að þakka. — Þetta er alveg rétt!
Þú hefur á réttu að standa! Það finnst
38 Vikan 6. tbl.