Vikan - 07.02.1980, Blaðsíða 62
Pósturinn
Finnst þér þetta
hægt?
Kœri Póstur!
Ég ætla að biðja þig að
hjálpa mér með tvö vandamál
(í mínum augum). Sko, ég er 14
ára og ég 'má ekki neitt fyrir
foreldrum mínum, ekki fara í
9-bíó og diskótek nema með
náðarsamlegu leyfi og svo
framvegis. Einu sinni ætlaði ég
að fara með öllum í bekknum á
bíó, á mynd sem var reyndar
bönnuð innan 14 ára (þá var
ég 13 ára). Eftir mikið rifrildi
fékk égþó að fara. Þegar út úr
bíóinu kom þá var beðið eftir
mér eins og ósjálfbjarga barni.
Finnst þér þetta hægt? Á ég að
rifast í þeim eða fara bara
þegar mig langar til þess? Eða
þá hlýða þeim? En þdð er það
sem ég get bara alls ekki gert.
Svo er hitt vandamálið: Ég
byrjaði að hafa blæðingar um
miðjan nóvember sl. en hef
ekki haft neinar hingað til. Er
óalgengt að það líði meira en
mánuður á milli?
Með fyrirfram þökk fyrir
svar.
Ein áhyggjum vafin
Reyndu að forðast að rífast við
foreldra þína, það gefur miklu
betri árangur ef málin eru rædd í
bróðerni. Þú getur verið fullviss
um að foreldrum þínum gengur
gott eitt til en það getur
vissulega verið þreytandi þegar
umhyggjan gengur út í öfgar.
Gerðu þeim fullljóst að þú sért
fullfær um að bjarga þér af eigin
rammleik og þú viljir helst gera
það sem mest. En gleymdu samt
ekki að þú ert enginn öldungur
ennþá og því ýmislegt sem þú
ættir að varast, og það skaðar
þig ekki að hlusta á það sem
foreldrarnir hafa til málanna að
leggja. Taktu alls ekki það ráð
að fara bara þegar þig langar til
og reyndu að fylgja settum
reglum því þeim er alltaf hægt
að breyta með samkomulagi.
Hins vegar missir þú traust
þeirra um leið og þú hættir að
standa við gefin loforð og þá
verður jafnframt erfiðara að ná
samkomulagi árekstralaust í
næstu skipti.
Það er allá -ekkert .óalgengt að
blæðingar séu óregluiegar í
byrjun, jafnvel fyrsta árið. Ef
þetta kemst ekki í lag af sjálfu
sér innan tíðar skaltu hafa
samband við lækni.
Var Amanda Lear
karlmaður?
Kæri Póstur.
Viltu vera svo góður að
segja okkur hvort Amanda
Lear hafi verið karlmaður og
látið gera aðgerðir á sér svo
hún myndi líkjast konu. Við
erum hérna tvær vinkonur og
erum að velta þessu fyrir okkur
og viljum gjarna fá svar ef þú
getur.
Við höfum aldrei skrifað
áður.
Tvær forvitnar
Samkvæmt mjög áreiðanlegum
upplýsingum mun Amanda
Lear vera ósvikinn kvenmaður á
allan máta. Hún hefur einungis
sérstæða og mjög hása rödd,
sem reyndar ýmsar aðrar heims-
þekktar söngkonur hafa orðið
frægar fyrir á undan henni, svo
sem Marlene Dietrich og Helen
Shappiro.
Pcnnavinif
Mrs. Christine Hamm, 51 Witcombe,
Yate Bristol, Avon. BS17 4 SX,
England, er 31 árs gömul, gift og á eitt
barn. Hún óskar eftir íslenskum penna-
vinum á svipuðum aldri og hún skrifar
aðeinsensku.
Ragnar Birgisson, Bergstaðastræti 30,
101 Reykjavik, óskar eftir að skrifast á
við stúlkur á öllum aldri. Áhugamál
hans eru ferðalög, hestamennska, hlusta
á góða popptónlist o.m.fl. Mynd fylgi
fyrsta bréfi ef mögulegt er. Hann er 24
ára.
Sogblettár — en
eftir hvern?
Kæri Póstur!
Þetta er I fyrsta sinn sem ég
skrifa Vikunni og ég veit hver
Helga er, vona að hún sé södd.
Þannig er málið: Ég er hrifn
af strák og hef verið það lengi.
Við erum góðir vinir en ég
held að hann sé með stelpu eða
svo segir hann. Ég trúi þvj
alveg en stelpurnar sem ég er
alltaf með segja að hann sé að
stríða mér.
Mér ftnnst það nú skrítið því
hann hefur verið með sogbletti
sem ég veit ekki hver gerði.
Hann káfar oft á mér, heldur
mér fastri til þess að geta gert
það. Hann hefur yndi af að
pína mig og gerir það í hvert
skipti sem hann kemur til
okkar þegar við erum að passa
ogþegar við förum heim til
hans. Ég er hrifin af honum
þótt hann píni mig ég er hætt
að finna fyrir því. Ekki segja
það sé nóg af fiskum í sjónum.
Hvað á ég að vera þung ef
ég er 1.65 á hæð? Fyrirfram
þökk fyrir birtinguna.
S. M. S.
Æ, æ, hváð á Pósturinn þá að
segja? Það er einmitt heilmikið
af fiskum í sjónum. Annars er
vel skiljanlegt að þér finnist
þetta spennandi og lítil ástæða
til jress að segja þér að hætta að
hafa áhuga á honum. Á meðan
þú hefur gaman af þessu sjálf
hlýtur tilganginum að vera náð,
en gættu þess samt að láta hann
ekki blekkja þig á nokkurn
máta.
Ég xtla aldrei aftur i sumarleyfi til Evrópu — þeir hafa ekki efni á að ferðast nema á úlföldum nú orðið.
62 Vikan 6. tbl.