Vikan - 25.09.1980, Blaðsíða 28
Vikan og tómstundir
xp>y
!\! A K N A
i \i/ \Kr\n
r
1
Eldspýtur hafa verið við lýði í
fjölda ára og hefur notagildi
þeirra verið hið fjölbreytilegasta.
Þær hafa verið notaðar til að
kveikja eld, stanga úr tönnum,
hreinsa eyru, til að halda tánum
útglenntum í sólbaði og síðast en
ekki sist til að mynda eldpýtna-
þrautir.
Hér eru sex þrautir sem bæði
fullorðnir og börn ættu að geta
haft gaman af... og ekki kíkja á
lausnirnar á bls. 47 fyrr en þið
eruð búin að reyna alla
möguleika til fullnustu. Góða
skemmtun!
Með því að bæta átta eldspýtum
við þessar 16, sem fyrir eru,
eigið þið að geta skipt myndinni
niður í fjóra hluta sem aliir lita
út eins og frummyndin.
Eldspýturnaf mynda hér með
rómverskum tölum ójöfnuna:
tveir eru jafnt og þrír. Færið
eina eldspýtu þannig að jafnan
verði sönn.
Úr níu eldspýtum höfum við
myndað þrjá þríhyrninga.
Flytjið til þrjár eldspýtur þannig
að úr verði fimm þríhyrningar.
Hér mynda 12 eldspýtur fimm
jafnhliða þríhyrninga. Færið
fjórar eldspýtur til, þannig að úr
verði þrfr jafnhliða
þríhyrningar.
Raöið upp tiu eldspýtum hlið við hlið.
Myndið fimm krossa með því að hoppa
með hverja eldspýtu yfir tvær eldspýtur.
(Ath. að einn kross er að sjálfsögðu tvær
eldspýtur og þvf nægir, þar sem þvi verður
komið við, að hoppa yfir einn kross.)
28 Vikan 39. tbl.