Vikan - 25.09.1980, Blaðsíða 7
ösp hf. í ‘Stykkishólmi er tré-
smiðja sem hefur verið starfrækt
allt frá árinu 1963. Síðustu 6
árin hafa verið smíðuð timbur-
hús þar en þær teikningar sem
nú er verið að kynna eru nýjar
og aukin áhersla er nú lögð á
smíði einingahúsa hjá fyrir-
tækinu. Reyndar er Ösp hf. líka
með steypustöð á sínum
snærum „eiginlega í samkeppni
við okkur sjálfa,” sagði Gunnar
Haraldsson, sem gaf allar
nauðsynlegar upplýsingar
fúslega, er þessi þáttur var
unninn.
Timburhúsin hafa verið í
áberandi sókn á seinustu árum,
og Gunnar taldi margar ástæður
fyrir því, þau væru meira lifandi
en steinhús, viðhald væri ekki
meira en á steinhúsum, svo það
ætti ekki að fæla menn frá því
aðfá sér timburhús.
Einingahúsin frá Ösp hf. eru
sem stendur framleidd í þrem
stærðum, 95 mJ, 115 m2 og 138
m2 vinkilhús, og mun
miðstærðin vera vinsælust. Ot
frá grunnteikningunum er hægt
að vikja, breyta herbergja-
skipan, svo og öðrum atriðum
að einhverju leyti. Húsin eru
afhent á nokkrum byggingar-
stigum, allt frá því að vera
uppsett fullfrágengin að utan en
ólituð, þá eru útveggir einangr-
aðir og klæddir að innan, og til
þess að vera fullbúin að öllu
leyti, afhent með lykli, eins og
sagt er.
Uppsetningu sjá menn frá
Ösp um og það er skilyrði til að
tryggja rétta uppsetningu.
Flutningskostnaður, sem er
hverfandi lítill, bætist á heildar-
verðið, en það var í byrjun júlí
frá 20 milljónum upp í rétt
rúmar 30 milljónir, eftir
stærðum, á fyrstnefndu
byggingarstigi, þ.e. fullbúið að
utan, án málningar. Verðið
fylgir síðan okkar margrómuðu
vísitölu gegnum þykkt og
þunnt. Og auðvitað verður
kaupandi að vera búinn að
koma upp plötu og huga að
þessum venjulega undirbúningi
LÓÐ — LÁNUM — GRUNNI
OG PLÖTU.
Asparhúsin eru heldur dýrari
en önnur einingahús á markaði
og það er fyrst og fremst vegna
óvenjumikillar einangrunar sem
r
í kynningarbæklingnum frá Ösp hf. cr
m.a. þcssi tciknint* og auk þcss allar
hclstu uppfVsingar um stærö, pcrö,
afhcndingarskilmála og annaö scm
gctur vcriö forvitnilegt væntanlcpum
kaupanda.
auðvitað skilar sér í lægri
kyndingarkostnaði. Það er svo
alltaf matsatriði hvað mönnum
þykir hagkvæmast hverju sinni.
Auk einangrunarinnar hefur
áhersla verið lögð á mikla vinnu
við þéttingar og útkoman er þá
væntanlega hlýrri hús.
Afgreiðslufrestur húsanna er
4-6 mánuðir, sem er heppilegur
tími til að búa allt undir komu
hússins, og þeir sem heillast af
Asparhúsunum fá allar nánari
upplýsingar á skrifstofunni í
Stykkishólmi. Algengustu
greiðsluskilmálar eru að borga
40-50% kaupverðs fyrir
afhendingu og eftirstöðvar á 12-
18 mánuðum.
Þrátt fyrir að engin opinber
fyrirgreiðsla sé við fyrirtæki sem
framleiða einingahús hefur verið
mikill hugur í þeim sem í þessari
framleiðslu standa. Fólk kann
vel að meta að geta byggt falleg
hús á hagkvæman hátl og
óneitanlega hlýtur að vera golt
fyrir byggðarlög eins og t.d.
Stykkishólm að slík fyrirtæki
blómstri. Nú er á 3. tug manna
starfandi hjá ösp hf. og sem
betur fer er bjartsýni ríkjandi og
mikill hugur í mönnum og varla
ástæða til annars.
aöb.
39. tbl. Vlkan 7