Vikan - 25.09.1980, Blaðsíða 26
Fimm mínútur með Willy Breinholst
Stúlkan
frá Mars
Ég er fótgönguliði nr. 1187-13
og hjálögð er nákvæm skýrsla
mín í öllum smáatriðum um
hina einstæðu og einkennilegu
atburði sem urðu í nótt þegar ég
var að kanna varðstöð nr. 2 á
seinni vakt. Klukkan 0.17,
nákvæmlega, var athygli mín
- Vakin, er ég heyrði ógreinilegt
suð í loftinu fyrir ofan mig. Þó
sá ég ekkert en stóð í
viðbragðsstöðu, tilbúinn að
skjóta aðvörunarskoti með
sekúndu fyrirvara. Suðið
nálgaðist hratt og allt í einu sá ég
stóran kringlóttan málmkennd-
an hlut sem leit helst út eins og
risastór djúpur diskur eða súpu-
skál og nálgaðist jörðina hægt.
Hluturinn lenti á umráðasvæði
hersins, u.þ.b. 200 m frá varð-
• stöð nr. 2.
Ég hljóp þangað og sá þegar
að þetta var fljúgandi diskur frá
annarri plánetu. Ég kallaði
aðvörunarorð að honum með
Stjörnuspá
fingurinn á gikknum en fékk
ekkert svar. Mér tókst að brjóta
upp hurð og þrengja mér inn í
stjórnklefann. Við flókið mæla-
borð sátu þrír gaddfreðnir Mars-
búar, eins og ísdrangar. Við fjar-
skiptaborð sat ung freðin stúlka
frá Mars.... hún var sömuleiðis
í ískufli. Ég er nú bara einfaldur
bóndadrengur úr sveit og veit
ekki mikið um lofthjúpa og þess
háttar en svo mikið skildi ég að
þau höfðu farið í gegnum mjög
köld loftlög og allir um borð
voru hnepptir í kristallaðan ís.
Ég reyndi að brjóta íslagið
utan af stúlkunni frá Mars með
byssustingnum mínum. Mér
tókst það og þegar ég lagði
eyrað að hjartastað henni
heyrði ég að hjartað sló veikum
mætti. Mér tókst að draga hana
út fyrir, braut glerhjálminn, sem
hún hafði á höfðinu, og tók eftir
að hún var nákvæmlega eins
sköpuð og þær kvenverur sem
eruhérniðri ájörðinni.
Ég var alveg ákveðinn í að
reyna að bjarga lífi hennar, . . .
púlsinn sló nú mjög veikt . . .
svo ég skellti henni upp á
axlirnar og bar hana upp í
tómt herbergi í varðturninum á
stöðinni og vafði hana inn í
ullarteppi frá hernum til að
reyna að þíða hana.
Meðan hún lá þarna og
þiðnaði hljóp ég í hasti út í
birgðatjald að ná í áfengi til að
reyna að þíða hana innanfrá.
Mér tókst að hella í hana af
innihaldi flöskunnar og í fátinu
sem á mig hafði komið fékk ég
mér nokkra sopa svona til að
hressa mig.
Ég hljóp síðan aftur að
geimfarinu til að reyna að þíða
þá að innanverðu líka en þegar
ég kom á staðinn var geimskipið
horfið. Hin milda nótt hafði
greinilega brætt íshjúpinn af
þeim svo þeir gátu tekið um
stjórnvölinn á geimskipinu á ný.
Ég hljóp í hendingskasti aftur
í varðstöðina, og þar fann ég
konuna frá Mars komna til
meðvitundar. Greinilegt var að
drykkurinn sterki hafði gert
henni gott.
Eitt andartak stóð ég og
horfði á hana hríðskjálfandi. Ég
ákvað að ég yrði að tilkynna
ofurstanum eins fljótt og
mögulegt væri hvað gerst hafði
og gefa honum nákvæma
skýrslu um hin undarlegu atvik
sem höfðu orðið þess valdandi
að ég hafði, þvert ofan í allar
llrulurinn 2l.m;irs 20.;i|»ril
\;iulið 2l. .pril 2l.ni;u
l \ihur;irnir 22.m;ii 2l.júni
hr.'hhinn 22. juni 2.1. juli
l.jonið 24. juli 24. ;i|>ú«l
llcj j;in 24.;igúsl 2.Vscpl.
Gættu þess að láta ekki
skapið hlaupa með þig í
gönur þótt þér finnist
brotið á þér. Mundu að
ef þú hefur hreinan
skjöld er réttlætið þín
megin.
Ef þig langar til að sýna
einhverjum sem þér er
annt um hug þinn þá er
alveg óþarfi að stilla sig
um það. Mundu að það
eru ekki allir jafnsjálfs-
öruggir og þurfa oft á
stuðningi að halda.
Reyndu að ljúka sem
mestu af núna fyrir
helgi svo þú getir hresst
þig ærlega um helgina.
Ekki veitir af, en
reyndu líka að mæta
næstu viku vel hvildur.
Mundu að þakka fyrir
þig ef þér er eitthvað
vel gert. Fólk er
viðkvæmt fyrir öllu sem
er sagt um eða við það.
Þú getur búist við að
margt gott gerist ef þú
ert jákvæður.
Eldmóður þinn virðist
alla ætla lifandi að
drepa í kringum þig
þessa dagana. Haltu
ótrauður áfram og
gerðu ekki of miklar
kröfur til
samferðamannanna.
Bóklestur og önnur
andleg iðja virðist eiga
einkar vel við þig um
þessar mundir. En
reyndu að gera eitthvað
skapandi lika.
2l.\tp(. 2.1. ok t.
Þó þig langi að gera
margt þessa viku skaltu
ekki verða fyrir
vonbrigðum þótt hún
fari fyrir litið. Sumar
vikur eru svona og um
að gera að láta ekki
hugfallast.
Sponldrchinn 24.»ki. '!.l.ii«\.
Lífsgleði og gaman mun
setja svip á þessa viku
og þér er óhætt að gera
þér dagamun i vinahópi.
en vertu ekki of
bláeygður gagnvart
ókunnugum.
Huifiii;iútirinn 24.nó\. 2l.dc\
Eitthvað veldur þvi að
þú munt minnast
þessarar viku lengi.
Ekki beint gleðiatburður
heldur einhver ábyrgð
sem seinna mun veita
þér lifsfyllingu.
Slcingcilin 22.dcs. 20. jan.
Börn geta verið þreyt-
andi og hætt er við að
sumar steingeitur finni
fyrir því þessa vikuna.
En margt er nýtt og
skemmtilegt og von til
að það verði meira áber-
andi.
lalnshcrinn 2l.jan. l'Uchr.
Það er alveg óþarfi að
láta skammdegisþung-
lyndi ná tökum á sér
svo snemma hausts.
Mundu að það er sitt af
hverju á dagskrá hjá þér
framundan og rétt að
sinna því.
tiskarnir 20.íchr. 20.mars
Þér hættir til að gera of
glæfralegar áætlanir og
geta svo litið þegar á
hólminn er komið, ekki
síst á tilfinningasviðinu.
Gættu tungu þinnar.
26 Vikan 39. tbl.