Vikan - 30.10.1980, Page 3
Hilmar Jónsson með hnifínn á lofti að flaka. Auður Magnúsdóttir stendur i ströngu.
Menntun margra leikara og tónlistar-
manna er oft í engu samræmi við störf
þeirra. Margir af frægustu kvikmynda-
leikurunum hafa aldrei numið leiklist í
skóla, en sumir þeirra eru ágætlega
menntaðir á gjörólíkum sviðum.
Telly Salavas, sjónvarps Kojak, lærði
ekki til leynilögreglumanns. Hann lærði
sálfræði og stefndi að læknisfræðinámi.
Því miður — eða hvað? — fékk hann
ekki skólavist í neinum læknaskóla. Það
var ekki fyrr en hann hafði starfað all-
lengi fyrir Upplýsingaþjónustu Banda-
ríkjanna að hann álpaðist á vit leiklistar-
gyðjunnar.
Mick Jagger hefur verið bendlaður
við ýmislegt, en sjaldan við menntun og
skóla. Reyrtdin er engu að síður sú, að
aðalsöngvari Rolling Stones stundaði
nám við ágætan menntaskóla og síðan
við London School of Economics. i
Lundúnum endurnýjaði hann kunnings-
skapinn við gamlan skólafélaga úr
menntaskóla, Keith Richard, og Rolling
Stones litu dagsins Ijós. Var þá úti ferill
Jaggers sem námsmanns.
George C. Scott var við nám f
blaðamennskudeild Missouri-háskólans í
Columbíu. Hann hvarf frá villu síns
vegar er honum varð ljóst að hann væri
of feiminn til þess að geta orðið góður
spyrill. Hins vegar var hann ekki of
feiminn til þess að fara fram á leiksviðið.
1 *■ ■ ■II— i. ,71 l— .7 C.— _J i
44. tbl. 42. árg. 30. okt. 1980
Verð kr. 1500
GREINAR:
4 Ekki er allt sem sýnist. Vikan
gengur um götur Akraness.
6 Gréta Garbo að tjaldabaki. David
Niven rifjar upp kynni af leik-
konunni frægu.
10 Feður og bðm 1 skilnaði. Guðfínna
Eydal skrifar um fjölskyldumál.
12 Nfkaragúa — ári eftir byitingu.
Sfðasta greinin um Suður-Amerlku.
16 Hótel i gömlum höllum. Jónas
Kristjánsson skrifar frá Flórens.
18 Heimþráin er meinholl. Vikan
ræðir við Hallmar Sigurðsson
leikara.
32 Þegar maður er hamingjusamur er
maður ekki þreyttur. Miðnætur-
viðtal við ftölsku óperusöngkonuna
Ratti.
47 Ævar R. Kvaran skrifar um undar-
leg atvik: Berdreymi.
SÖGUR:
24 Drengurinn sem vissi hvað hann vildi. Smásaga.
38 Viltu veðja? Willy Breinholst.
40 Holocaust. Framhaldssaga.
ÝMISLEGT:
2 Mest um fólk.
8 Á Langasandi allan ársins hring. Vikan kynnir tískuna á Akranesi.
28 Timburmennirnir þfnir — f ömur- legri morgunskfmunni. Talandi teikningar.
38 Stjörnuspá.
49 Eldhús Vikunnar og Klúbbur matreiðslumeistara: Gratineraðar gellur.
51 Draumar.
52 Myndasögur og heilabrot.
62 Pósturinn.
FORSÍÐAN
Forsfðan að þessu sinni er tekin á Langa-
sandi og við erum með meira góðgæti
þaðan á bls. 8 og 9. Ljósm. Jim Smart.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritatjóri: Sigurflur
Hroiðar Hreiðarsson. Blaðamenn: Anna Ólafa-
dóttir Björnsson, Borghiidur Anna Jónsdóttir,
HrafnhUdur Sveinsdóttir, Jón Aegeir Sigurðsson,
Þórey Einaredóttir. Útiitateiknarí: Þorhergur
Kristinsaon. Ljósmyndarí: Ragnar Th. Sigurös-
son. RiTSTJÓRN Í SÍÐUMÚLA 23, simi 27022.
AUGLÝSJNGAft Bsna Krisljónedótts, simi 8S320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING i Þverhohi 11, simi
27022. Pósthólf 533. Verö i lausasöki 1500 kr.
Áskriftarverð kr. 5000 pr. ménuö, kr. 15000 fyrir
13 tökiblöö órsfjóröungslega eöa kr. 30.000 fyrír
28 blöö hálfsárslega. Áskríftarverð greiðist fyrir-
fram, gjalddagar nóvember, fobrúar, mai og
ágúsL Áskríft í Reykjavík og Kópavogi greiðist
mánaöaríega.
Um málofni noytonda er fjallað i samráöi viö
Neytendasamtökin.
44. tbl. Vikan 3