Vikan - 30.10.1980, Side 11
Erlent
mála sú að aðilarnir fái sér lögfræðinga
og að dómskerfið komi inn í málið til að
ákveða hvort foreldra eigi að fá börnin.
Tölfræðilegar athuganir og reynslan
hafa sýnt að I mörgum löndum er reynt
að rriiða Vjð ákveðin atriði þegar dæma
á um forræði. I fyrsta lagi er reynt að
niiða við að börn lendi ekki í þvi að
breyta um umhverfi nema mjög sterkar
ástæður mæli með þvi. 1 öðru lagi hefur
verið reynt að búa svo um hnútana að
litil börn. sérstaklega stúlkur. verði
áfram hjá móður en að eldri drengir geti
farið til föður. Þriðja reglan. sem reynt
er að miða við, er að reynt sé að komasl
hjá þvi að rjúfa systkinahóp. Fyrir utan
þessar nteginreglur er börnum að
sjálfsögðu ekki komið fyrir hjá foreldri
sem af einhverjum orsökum er álitið
óhæft til að hafa börn, t.d. hjá foreldrum
sem misnota vímugjafa eða lifa þannig
lífi að það er engan veginn álitið
samræmast þarnauppeldi. Oft er það
metið þungt hvort það foreldri sem
hugsanlega fær forræðið er tilbúið til og
vill sjá svo um að umgengnisréttur við
hinn aðilann sé tryggður og geti gengið
eðlilega fyrirsig.
Feður og skilnaðir
Hræðsla barna við skilnað er oft háð
því að börnin óttast að þau missi annað
foreldrið. Þessi hræðsla er ofl á rökum
reist þar sem tengsl barna við foreldra
— sérstaklega feður — minnka yfirleitt
stórlega þegar skilnaður er yfirstaðinn.
eins og fyrr er komið inn á. Það er
enginn vafi á þvi að margir feður eiga
erfitt með að sætta sig við slíkt og verða
bitrir þegar umgengnisréttur er ekki
virtur, enda þótl samið hafi verið um
hann. Það er erfitt að spá um hvernig
þefei mál eiga eftir að þróast i framtíð
inni. En óhætt er að ætla að þvi virkari
þátt sem feður taka I uppeldi barna þeim
mun liklegra verði að þeir eigi möguleika
á að fá börn við skilnað.
Ursula Andress
í móðurhlutverkinu
I litlu timburhúsi í Hollywood-hæðum
býr leikkonan og kyntáknið Ursula
Andress. Hljóð nokkurt sem fyrir
fáeinum árum hefði trauðla verið tengt
leikkonunni berst frá húsinu, það er ung-
barnsgrátur. Sonur Ursulu, Dimitri
Alexandre fæddur 19. maí sl., lætur
kröftuglega i sér heyra. Hann var
skorinn úr móðurkviði eftir að Ursula
hafði reynt f fjóra tima árangurslaust að
koma honum í heiminn. Drengurinn
nýtur óumræðilegrar ástar og gleði
móður sinnar. Hún hefur hann á brjósti
og sýnir honum mikla umhyggju.
Ursula er 44 ára gömul og býr með
barnsföður slnum, sjónvarpsleikaranum
Harry Hamlin. Þau eru ógift og hún er
15 árum eldri en hann. Að þvi leyti eru
þau e.t.v. ekki dæmigerðir foreldrar í
Bandarikjunum. Dimitri var ekki „á
áætlun”, en þó var lítið gert til þess að
koma i veg fyrir tilurð hans.
Draumurinn um að eignast barn
blundaði í vitund þeirra beggja. Þar sem
Ursula var orðin 44 ára og þunguð af
fyrsta barni voru ýmsir mjög efins um
réttmæti þungunarinnar. Hætta á
iitningagalla hjá barninu, þ.e. likurnar á
að það fæðist „mongóli”, er alinokkur á
þeim aldri. Eftir fjögurra mánaða
meðgöngu voru tekin úr henni legvatns-
sýni og þau greind. Niðurstöðurnar voru
neikvæðar, þ.e. engir litningagallar
fundust hjá fóstrinu. Ef niðurstöðurnar
hefðu hins vegar verið jákvæðar hefðu
þau látið binda enda á meðgönguna.
Ursula lætur óhikað I ljós að sig hafi
langað til þess að bamið yrði drengur. Og
hún fékk ósk sína uppfyllta. Hún telur
sig hafa lifað mjög ánægjulegu lifi og
fengið allt það sem hún vildi. Það er
óskandi að þessi hamingja endist henni
út lífið.
Fjölskyldan:
Ursula,
Dimitri
og Harry.
tbl. Vikan IX