Vikan - 30.10.1980, Page 23
Oh, ég held að það liöi yfir mig. Guðrún
Stephensen i hlutverki könnusteypis-
frúarinnar. Sigrfður Hagalin grfpur.
hitt þar fyrir fólk sem hefur verið í mörg
ár i Sviþjóð en kann varla sænsku.
Þessi hætta er einmitt fyrir hendi þar
sem mikið er um Islendinga og þeir búa
mikið til á sama stað. Útlendingum
hættir nefnilega oft til að einangra sig
frá heimamönnum ekki síður en að þeim
sé haldið utan dyra.
Annars er út í hött að tala um Svía
sem eina heild. Mönnum hættir til að
gleyma að ef títuprjóni væri stungið i
suðurodda Sviþjóðar á korti og landinu
snúið til suðurs næði landið suður til
Italiu. Landið er svo langt og mjótt og’
jafnmikill munur á Svía frá Skáni og
nyrstu byggðum Sviþjóðar og á Svia og
Islendingi.”
„Hsimþrá sr sterk og mikil-
vssg tHflnning"
„Jú, ég kunni vel við mig í Svíþjóð og
það sem ég var að gera þar. Ég held að
meiru máli skipti hvað maður hefst að
en hvar það er.
Ég skal ekki neita því að ég hafði oft
heimþrá. Ég er soddan sveitamaður. En
heimþráin er meinholl. Mér fannst eins
og ég hefði aldrei kynnst íslandi fyrr en
ég komst í hæfilega fjarlægð. Allt sem
áður var sjálfsagt var það ekki lengur.
Ég kynntist bæði mörgu jákvæðu og
neikvæðu við landið mitt eftir að hafa
fengið samanburð og hæfilega fjarlægð
tilaðsjáskýrt.”
aób.
Könnusteypirinn
pólitíski
Nokkur orö um leikinn:
„Könnusteypirinn pólitíski er
einn , merkasti og vinsælasti
gamanleikur Ludvigs Holberg,”
segir í kynningu Þjóðleikhússins
á verkinu. Holberg og Moliére
eru eflaust þau nöfn sem oftast
koma upp í hugann þegar talað
er um gamanleikjahöfunda. Þeir
eru eins konar tákn og því
kemur á óvart er lesið er áfram í
sömu kynningu að atvinnu-
leikhúsin hér á landi hafi vanrækt
Holberg á undanförnum árum.
Sú var tíðin að hann var allra
leikskálda vinsælastur á íslandi.
Dr. Jakob Benediktsson hefur
þýtt leikinn sem nú hefur verið
frumsýndur.
Fjallað er um eitt og annað
sem kemur manni býsna mikið
við eða hvenær verður úrelt að
fjalla um pólitík? Reyndar
vakna ýmsar spurningar er horft
er á leikritið. Hver er að gera
gys að hverjum og hver á að
stjórna? Hvernig á að stjórna?
Könnusteypirinn sameinar það
ágætlega að vera gamanleikur
og gott íhugunarefni.
Leikhús verður ævinlega að
bjóða upp á eitthvað sem
kemur fólki við.
•
Sá sem vinnur i leikhúsi hefur
alltaf beint svar við þvi sem
hann er að vinna. Áhorfendur.
Beinna svar en flestir aðrir
listamenn.
tslensk leiklist:
Við erum vel á vegi stödd að
ýmsu leyti. Og best á vegi
stödd að þvi leyti að okkar
atvinnuieikhúsum hefur ekki
tekist að drepa niður áhuga-
leikhúsin.
•
Til að geta lagt eitthvað af
mörkum i þvi starfi sem maður
er að vinna verður það verk
sem maður er að vinna hverju
sinni að vera manns uppáhalds-
leikrit.
•
öil brot sem við fáum af fram-
andi menningu eru af hinu
góða.
•
Gamansamt leikrit getur verið
leiðinlegt og alvarlegt leikrit
getur verið skemmtilegt.
•
Eru leiksýningar myndrænni en
áður?
Auðvitað eru til leiksýningar
þar sem orðið vegur mest, en
yfirleitt eru leiksýningar mynd-
rænar nú oröið. Þetta hefði
verið spennandi spurning fyrir
10 árum ef marka má lýsingar
af leiksýningum sem voru
nánast flutningur á texta. £g
held að það sé varla til lengur.
•
Sjónvarpið hefur vissulega
menntað menn í myndmáli og
ekki alltaf á jákvæðan hátt.
•
Ég er voðalega þakklátur fyrir
að hafa farið út.
Ekki endilega að hafa farið
þangað sem ég fór. Með þvi að
kynnast nýjum stöðum fær
maður samanburð og ákveðna
fjarlægð.
Maður kynnist sínu umhverfi
kannski betur þá.
44. tbl. Vikan 23