Vikan - 30.10.1980, Qupperneq 38
Fimm mínutur með Wi|ly Breinholst
VILTU
VEÐJA7
Wi
Knurreknas ofursti var í slæmu
skapi. Hann gekk fram og til
baka í aðalskrifstofunni, löng-
um, nákvæmlega jöfnum skref-
um. Hrukkurnar á enni hans
bentu æ betur til þess að óveður
væri á næsta leiti. Það var
andrúmsloftið í hermanna-
skálunum sem var í ólagi.
Mennirnir þar hugsuðu ekki
um annað en að spila. Ótal
sinnum hafði hann komið í setu-
stofurnar í skálunum og alltaf
hafði hann komið að
hermönnunum svo niður-
sokknum í alls kyns spil,
teningaspil og hvers konar
siðspillandi spilavafstur að þeir
höfðu varla haft tíma til að
heilsa honum. Þeir höfðu togað í
rafleiðslurnar í loftunum fyrir
framan nefið á honum, tromp-
ásar, veðmál og bylmingshögg í
borðið, bölv og bænir, fagnaðar-
óp og fimmþúsundkallar flugu
um loftin. Og í hvert skipti var
það rauðhærður, freknóttur
náungi með kartöflunef og
Júmbó-eyru sem var lífið og
sálin í öllu. Knurreknas ofursti
hafði fengið upplýst að þessi
lágvaxni náungi var óbreyttur
hermaður nr. 13. Nú hafði hann
sent yfirliðþjálfann niður í setu-
stofu eftir honum. Þegar þessi
litli rauðhaus kæmi skyldi hann
veita honum slíka ráðningu að
hann óskaði einskis frekar en að
móðir hans hefði borið hann út
viðfæðingu.
Það var barið að dyrum.
— Komdu inn í he . . .
bænum! drundi í Knurreknas
ofursta svo hátt að málningin í
loftinu flagnaði.
Madsen yfirliðþjálfi kom inn
með óbreyttan nr. 13. Hann var
minni, freknóttari og óásjálegri
en nokkru sinni fyrr.
Knurreknas ofursti sendi
honum svo nístandi augnaráð
að óbreytti hermaðurinn nr. 13
seig niður um tvær og hálfa
tommu.
— Látið okkur vera eina,
drundi í ofurstanum og benti
yfirliðþjálfanum að fara. Síðan
settist hann við skrifborðið.
— Jæja, 13 minn, byrjaði
hann svo föðurlegum og
samvinnuþýðum rómi að
hverjum sem þekkti hann hefði
runnið kalt vatn milli skinns og
hörunds. En óbreyttur
hermaður nr. 13 þekkti hann
ekki og leið strax betur. Hann
rétti aftur úr sér um þessa hálfu
þriðju tommu og stóð grafkyrr í
réttstöðu.
— Jæja, ágæti herra 13, ég
hef heyrt að þér finnist gaman
að spila?
— Víst er það, herra ofursti.
13 kinkaði ákaft kolli. — Mér
finnst gaman að allri spila-
mennsku. Ég kann þau öll. Ég
hef innleitt marías, Michican-
kanasta, Alaska-póker og 21 hér
í herbúðirnar. Áður en ég kom
hingað létu hermennirnir sér
bara leiðast yfir lúdóspili á
kvöldin.
Óbreyttur hermaður nr. 13
vissi það ekki en þetta svar
hafði kostað hann 117 nætur-
vaktir. Hins vegar var
Knurreknas ofursti þannig
gerður að hann hafði vit á að
stilla sig og hann stillti sig . . . til
að geta safnað saman öllum
ofsanum sem bjó undir niðri í
enn öflugri sprengingu þegar að
því kæmi.
Stjörnuspá
llmlurinn 21. m;irs 20. a iril
Samskipti þín viö þina
nánustu eöa félagana
gætu orðið erfið ef þú
reynir ekki að hafa
hemil á ráðrikinu. Ef þú
sýnir meiri sanngirni og
stillingu gengur allt
betur.
\»líin 2.\.nkl.
Ef þú færðeitthvert
freistandi tilboð skall þú
hugsa þig vel og vand
lega um áður en þú
tekur þvi. Mundu að
ekki er alltaf allt sem
sýnist og það er sjaldn-
ast til góðs að flana að
hlutum.
ViuliA 21. .jiril 2l.niai
Ef þig langar að skvelta
dálítið úr klaufunum.
láttu það þá óhikað eftir
þér. Allir hafa gotl af
smá tilbreytingu. en
mundu að hóf er þó
best i öllu.
Sporðdrckinn 24.okl. !.Mnm.
Eitthvað hálf-leiðinlegt
setur svip sinn á vikuna.
e.t.v. einhverjar deilur.
Taktu svari vinar þins
sem þú treystir.
Réttsýni þin getur leitt
málið til lykta á
farsælan hátt.
1\ihurarnir 22.mai 2l.júni
Eljusemi þin undanfarið
hefur skilað góðum
árangri. Nú skaltu fara
hægar í sakirnar og
njóta þess. Hvild og
afslöppun er það sem þú
þarfnast fyrst og fremst
þessa dagana.
Hoitmaðurinn 2-1.noi. 2l.dc\
Þú hefur I mörgu aö
snúast þessa dagana og
ekki öllu jafn
spennandi. Láttu það
saml ekki á þig fá.
ánægjuleg verkefni biða
þin og þú skalt takast á
við þau af þeirri vinnugleði
sem þér er lagin.
Kr. hhinn 22. jiini 2.Vjúli
Nú er rétti timinn til að
endurnýja kunnings-
skapinn við gamlan vin.
Hafðu frumkvæðið og
hringdu eða heimsæktu
þann sem þig hefur
lengi langað til að hitla
aftur. Mundu að hin
gömlu kynni gleymast
ei.
Slciniíciiin 22.dcs. 20. jan.
Þú Itefur verið l'ús að
hjálpa öðrum. nú er
komið að öðrum að
hjálpa þér. Leitaðu
óhikað til kunningjanna.
þeir eru ekki búnir aö
gleyma þér. Helgin getur
orðið ákaflega ánægjuleg
i góðra vina hópi.
l.jóniÁ 24.júli 24. iiíú»l
Kraftur og dugnaður
eru gulls igildi, en ekki
eru allir eins og þú. Þér
hættir til að gera of
miklar kröfur til
annarra. Best væri að
hægja aðeins á i bili og
sjá hvernig það gengur.
Reyndu að skipuleggja
timann betur. Of mikill
timi fer lil spillis hjá þér
vegna þess að þú gerir
engar áætlanir. Dálitið
aðhald er alltaf til bóta.
Ekki er þó þar með sagt
að það leysi allan
vanda.
\alnsltcrinn 2l.jan. ló.íchr.
Ekki láta góða skapið
bregðast. Miðlaðu
öðrum rikulega af bjart
sýni þinni, ekki veilir af.
Láttu santt ekki
hugfallast þó ekki liti
allir jafn jákvætl á
tilveruna og þú nú á
haustmánuðum.
Fiskarnir 20.fchr. 20.mars
Hyggðu að andlegum
efnum i nánustu
framtið. Njóttu góðra
lista og ihugaðu lifið og
tilveruna. Einhver mun
koma þér á óvarl á
ánægjulegan hátt. Vertu
opinln) fyrir nýjum hug
myndum.
3> Vlkan 44. tbl.