Vikan - 30.10.1980, Síða 47
Undarlag atvik — Ævar R. Kvaran
BERDREYMI
Fyrir tveim árum gaf bókaforlagið Saga
út bókina Þessa heims og annars eftir dr.
Erlend Haraldsson, lektor við Háskóla
íslands. Þessi bók fjallaði um könnun á
dulrænni reynslu íslendinga, trúar-
viðhorfum og þjóðtrú. Þessi bók
markaði timamót í islenskri umræðu um
sálræn fyrirbæri því hér var hálærður
vísindamaður að verki sem ekki verður
sakaður um hlutdrægni. Bókin fjallar
um það hverju við trúum, hversu trú-
aðir við erum og hver kynni íslendinga
eru af dulrænni reynslu. Þá segii hún
okkur hver reynslan af huglæknum sé
og hver sé dulræn reynsla okkar af fyrir-
bærum þessa heims (berdreymi. hugboð.
fjarskyggni o.þ.h.l og að lokunt hverja
reynslu við höfum af fyrirbærum frá
öðrum heimi og af látnum.
Allt er þetta hið athyglisverðasta efni.
Hverjum þeim sem telur sig leita
sannleikans i þessum efnum ætti því að
vera gleðiefni að visindamaður i dul-
sálarfræði skuli stjórna rannsóknum á
þessuni viðkvæmu málunt. Hér skulu
því allir hvattir til þess að lesa þessa
nterku bók.
En ég vil aðeins bæta þvi við að þegar
þetta er skrifað er verið að halda þessum
ágætu rannsóknum áfram og hvet ég
alla sem spurðir eru að leggja sitt til þess-
ara mála svo sannleikurinn megi koma í
ljós. hver sem hann er.
Vafalaust má að nokkru rekja það til
hinnar neikvæðu afstöðu visindanna að
ýmsir hafa talið vissara að leyna
dulrænni reynslu sinni heldur en segja
frá henni af ótta við að gys verði gert að
þeim. En úrþvi visindin sjálf eru nú farin
að rétla okkur höndina og biðja okkur
að leysa ffá skjóðunni þá lálum ekki á
okkur standa.
Ég hef gegnum árin fengið ýmis
merkileg bréf sem segja frá slikum fyrir
bærum I lífi venjulegs íslensks fólks og
ætla ég því, í tilefni þessara áframhald-
andi rannsókna dr. Erlends Haralds-
sonar, að birta hér bréf sem mér barst
fyrir tv'eim árum.
Þaðer frá vini minum Júliusi Þórðar
syni á Akranesi og er svohljóðandi:
Hr. Ævar R. Kvaran. Æsufelli 6. Rvk.
Góði vinur.
í einu af þinum ágætu erindum í
Ríkisútvarpinu óskaðir þú eftir
upplýsingum um dulræna reynslu
hlustenda. ef einhver væri og fólk vildi
tjá sig um hana.
Að gamni minu ætla ég að verða við
ósk þinni og telja fram nokkur fyrirbæri.
sem ég skil ekki fullkomlega. þótt ég hal'i
ef til vill einn móttökulampa í tækinu
umfrarn það sem almennt gerist i ntódel
1909. Þessar frásagnir eru sannar:
1. Þegar ég var 5-7 ára vöknuðu lor-
eldrar mínir snemma morguns við
mikinn grát i mér. þar sern ég lá i
rúminu og strauk vinstri handlegginn og
sagði í sifellu: ..Mig svíður svo i
Miðengi." En Miðengi var hús
Benedikts Tómassonar í um 300 metra
fjarlægð frá Grund þar sem við
bjuggum. Benedikt og kona hans áttu þá
nokkra syni.
Unt hádegi sama dag l'réttum við að
einn þeirra hefði brennt sig illa á hand
legg, nokkrum klukkustundum eftir
mina brunatilfinningu, mig minnir þeim
megin sem ég nuddaði.
2. Nokkrum árum siðar var ég að
skrúfa á mig skauta inni stofu og hljóp
svo framhjá eldhúsinu sem var á hægri
hönd. Um leið og égfór framhjá þvi sá
ég gamla konu með höfuðklút og herða
hyrnu róa framá stól á miðju gólfi. Ég
fór tilbaka til að athuga hver þetta væri.
cn hún var horfin. án þess að koma
útum þær einu dyr sem um var að ræða.
Mér brá heldur illilega og það varð ekki
úr skautaferð þann daginn.
Á þessum árum sá ég lika mórauðan
hund í pakkhúsi i verslun föður míns.
Hundurinn gufaði hreinlega upp. Sama
gerðist með konu sem ég sá i kálgarði
mörgum árum siðar.
3. Þegar Haraldur Böðvarsson var að
láta grafa mikinn brunn l'yrir fryslihús
sitl hafði hann vél og dráttarvindu við
verkið. Mig dreymdi eina nóttina. að ég
var staddur þarna og allt i einu gripur
stoppnagli á öxli í aðra buxnaskálmina
mina og rífur hana uppundir hné. Eg
þorði ekki heim. en fór til Valdisar
systur Haraldar og hún gerði við
buxurnar.
Daginn cftir var ég sladdur þarna við
brunninn. Þá er allt i einu rilið i
skálmina. en ég mundi eltir draumnum
og steig fast i fótinn og rifnaði þá
skálmin eins og i draumnum. en ég slapp
við meiðsli af naglanum vegna þess að
ég mundi drauminn um leið og ég lesti
fótinn i sandinum. Þaðeina sem var frá
brugðið draumnum var það. að ég fór
heim og mamma gerði viö riluna.
4. Ég ferðaðist um England og Skot
land ásamt fleirum í hifreið minni árið
1949. Þá dreymdi mig nótl eina ’ i
Fleetwood á hóteli. að ég var kominn
heini og var að athuga næsta pfógrani i
bióhöllinni á Akranesi. Viðstóðum tveir
saman og vorum að skoða myndirnar i
glugganum.
Þá er mér litið uppá Háteigsveginn.
cn við hann hafði ali minn. Ásmundur.
búið. Sá ég þá að kirkjukórinn var að
koma þar niður. Ég spurði manninn sem
stóð við hliðina á mér hvaðan kórinn
væri að koma. Hann sagði: „Veistu það
ekki. það er verið aö kistuleggja hann
afa þinn og pabba." „Þetta getur ekki
verið." sagði ég. „Þeir eru báðir dánir
fyrir nokkrum árunt." „Það er nú svona
samt." sagði hann.
Þegar ég vaknaði klukkan átta uni
morguninn lór ég niður á skrilstolu
umboðsmanna okkar. Hoslon Dee/i Sea.
ákveðinn i að hringja hcint og spyrja um
hvort fyrirlækin Þórður Ásmundsson
hl'. og Ásmundur hf. værti komin á
hausinn en ég hélt að draumurinn væri
l'yrir þvi. þar sent þetta voru nöfn föður
mins og afa. Ég lékk strax samhand við
Olaf Sigurðsson mág minn og hann
sagði ntér að alll væri við hið sania. og
skyldi ég bara Italda áfram lerðinni.
Þrent vikum siðar vorum við á
heimleið með ms. Heklu. komnir rétt
norður fyrir Skotland.
Við Hersteinn Pálsson rilsljóri sálum
saman og vorum að taka þátt i
spurningakeppni um sögu og staðhætti
Skotlands. Þá heyröum við allt í einu
fréttir frá islcnska útvarpinu: „Það
sorglega slys varð á Akranesi i gær. að
drengurinn Þórður Asmundui
Árntannsson drukknaöi við bryggjuna i
Lambhúsasundi.” Hann var syslursomn
rninn. Ég hefði frekar átt að hugsa um
þessi nöfn á drengjunum heima en á
fyrirtækjunum. Ix-gar ég var að revna að
ráða drauminn.
Þcss má geta. að drengurinn átti
heinta í næsta húsi við Bióhöllina.
5. Á afmælisdcgi minum II. mars.
þeim fyrsta eflir að l'aðir minn dó. fékk
ég kafli i rúmið klukkan átta unt
morguninn. Konan min fór úl og ég var
einn i húsinu og sofnaði aftur.
Þá dreymdi mig að ég væri staddur
niðri á stigapallinum og laðir minn
44* tbl. Vikan 47