Vikan - 30.10.1980, Qupperneq 62
Pósturinn
Að byrja með
strák
Elsku Póstur.
Ég vona að Helga sé södd og
þakka allt gamalt og gott í
Vikunni. Þú verður að hjálpa
mér og birta góð svör. Þannig
er mál með vexti að ég á mjög
fáa vini og er alltaf ein og yfir-
gefin. Ég átti mjög góða
vinkonu, en hún byrjaði með
slrák og talar ekki lengur við
mig, en verra er að ég
var næstum því með strák, við
hittumst á hverjum degi og
vorum mjög góðir vinir. Eg
vissi að hann ætlaði að biðja
mig að vera með sér en ætlaði
að geyma það því ég fór út og
var þar I 3 mánuði. En þegar
ég kom heim aftur talaði hann
aldrei við mig nema ef ég talaði
við hann. Ég hef farið
nokkrum sinnum heim til hans
og þá vill hann alltaf fara að
gera hitt og þetta en biður mig
aldrei að vera með sér. Það
skal tekið fram að það er engin
önnur stelpa i spilinu. En ég
geri mig ekki ánægða með
þetta eins og þetta er og verð
að fá botn í þetta, en ég vil
ekki missa hann því þetta er
eini vinurinn minn og ég veil
að hann er ekki búinn að missa
áhugann. Elsku Póstur, viltu
reyna að hjálpa mér, því mig
langar mest til að stvtta mér
aldur.
Ein að farasl.
P.S. Hafa foreidrarnir rétt til
að banna manni að vera með
strák þegar maður er 15 ára?
Póstinum þykir vænlegast til
árangurs í þessu máli að spyrja
strákinn hreint út. Þið virðist all-
góðir vinir og það auðveldar
málið. Stelpur eiga hiklaust að
taka fyrsta skrefið í málum sem
þessum, ekki síður en strákar.
Strákurinn er ef til vill feiminn
og þar sem þú telur að hann sé
ekki búinn að missa áhugann
ættirðu að vera ósmeyk við
hann. Samkvæmt lögum er fólk
ekki sjálfráða fyrr en við 16 ára
aldur. Foreldrum og unglingum
er réttast að ræða saman um
vandamálin og leysa þau án
boða og banna. Það getur verið
erfitt að banna unglingum að
vera saman, en hins vegar ættu
unglingar að taka ráð foreldra
sinna oftar til íhugunar, því yfir-
leitt vilja þeir börnum sínum
aðeins vel.
Heimilisföng
frœgra hljóm-
sveita
Thin Lizzy aðdáandi 3371
sendi Póstinum heimilisföng
vinsælla hljómsveita. Auk þess
sendi Stína heimilisföng Kiss
og Blondie. Kann Pósturinn
þeim bestu þakkir fyrir og
vonar að lysthafendur geti hér
eftir stílað bréf sín á rétta aðila.
Kiss Army Mail,
P.O. Box 2634,
Canogadark Ca. 91367,
USA
RAINBOW Official UK Fan Club,
P.O. Box 7,
Prescot,
Merseyside,
England.
WHITESNAKE Fan Club,
c/o Karen Green,
15 Broom Acres.
Long Down Lodge Estate,
Sandhurst,
England.
GENESIS Information,
P.O. Box 107,
London NC 5 RU.
England.
Official SCORPIONS Fan Club,
17 Burntwood Grove.
South Kirby,
Pontefract,
Wet Yorkshire.
England.
Thc WHO Club,
P. O. Box 107 A,
London NC 5RU.
England.
AC/DC Official Fan Club,
18 Watson Close,
Bury St. Edmunds.
Suffolk,
England.
DR HOOK Fan Club,
P.O. Box 4335,
Madison, TN 37115.
USA.
BLONDIE,
c/o Ed Justin.
P.O. Box 090,
Radio City Street Station,
New York, N.Y. 10010,
USA
Ekki alveg, kannski
Halló Póstur!
Þetta er í fyrsta skipti, sem ég skrifa þér, og ég vona að
Helga sé södd.
Þannig er mál með vexti, að ég þoli ekki mömmu. Hún
gerir allt til að mér líði illa. Hún er alltaf að reyna að gera
eitthvað gott úr mér: Hún sendi mig einu sinni í ballett,
bara af því að hún vissi að mig langaði ekki.
Pabbi er annars ágætur (því að hann skiptir sér ekkert af
mér). Mamma vill bara að égséhennar oggeri bara það,
sem hana langar til að ég geri, og að ég hlýði henni bara.
Svo er hún alltaf aðrifja upp hundrað ár aftur í tímann hvað
hún haft haft það vont þegar hún var ung en nú eru breyttir
tímar en það skilur mamma bara alls ekki. Vinkona mín
sem við skulum kalla X má alltaf vera úti eins og hún vill,
svo getur hún farið með stráka inn til sín þegar mamma
hennar er heima en það get ég ekki. Ef mamma mundi
frétta að ég væri með strák og svo mundi ég koma heim
um kl. eitt, veistu hvað hún mundi halda? Hún mundi
halda að ég væri að ríða langt fram á nótt og svo mundi
hún sjá til þess að ég færi ekki meira út á kvöldin í eitt ár
(ekki alveg kannski). Ef ég hlýði henni ekki verður hún
alveg óð og ég er orðin hundleið á að hlýða henni. Hvað á
ég að gera, á ég að hlýða eða hlusta ekki á hana?
Með fyrirfram þökk fyrir birtingu. Bæ, bæ elsku Póstur.
Ég
Ja hérna, móðir þín er greinilega hið mesta illfygli! Hegðun
hennar er gersamlega óskiljanleg, reynir að gera gott úr þér
öllum stundum í stað þess að snúa sér að því að kenna ýmsa
ósiði, svo sem að bora í nefið, klóra þér á bestu stöðum í tíma
og ótíma svo þú verðir síðar reglulega óskemmtileg i
viðkynningu. Þessi hegðun móður þinnar gæti komið endan-
lega í veg fyrir að þér takist að hlunkast hugsunarlaust í
gegnum lífið.
En hver hefur sinn djöful að draga, segir einhvers staðar, og
þú verður því að sitja uppi með þína samviskusömu móður,
sem líklega hefur það af að koma þér nokkurn veginn áfalla- i
laust til manns þegar fram líða stundir. Þar til svo verðurj
neyðist þú til að þola afskiptasemi og umvandanir af hennar
hálfu.
Að lokum — og í fullri alvöru: Er hún alveg jafnslæm og
þér segir í bréfinu? Heldurðu að hún hafi einungis látið þig í
ballett vegna þess að þig langaði ekki? Getur ekki verið að j
hún hafi grun um að líkaminn þroskast allvel við
ballettiðkun og útlit og hreyfiþroski taka miklum framförum?
Og þarf hún að telja víst að þú farir út á kvöldin í einungis
einum tilgangi og takir til þín gesti með það sama að markmiði?
Varla, enda telur Pósturinn að þú sjálf hafir ekki trúað skil-
yrðislaust á málstaðinn þegar bréfið var samið. Varstu ef til
vill nýbúin að eiga í útistöðum og þurfir að fá útrás?
Það er vitað að foreldrum hættir til þess að bera sína eigin
æsku um of saman við æskuár barna sinna. En ef þér finnst
sjálfsagt að ætlast til skilnings á þínum sjónarmiðum af hálfu
móður þinnar getur ekki verið ósanngjarnt að krefjast þess að
það sé nokkurn veginn gagnkvæmt.
62 Vikati 44. tbl.