Vikan - 30.10.1980, Page 63
Minnimáttar-
kennd
Elsku Póstur.
Mér finnst Vikan alveg ágcel
(sérstaklega sögurnar).
Jæja, nóg um það.
Vandamálið er að ég er algjör-
lega misheppnuð manneskja, ég
hef svo mikla minnimáttar-
kennd. Hvernig get ég losnað
við hana? Svo er annað. Það er
ofsasætur strákur I skólanum
sem horfir alltaf svo mikið á
mig (ég er svolítið hrifin af
honum) en ef hann yrðir á mig
fer ég í kerfi. Á skólaballi
dansaði ég við hann og allt var
í stakasta lagi, en I skólanum
daginn eftir, þegar hann sagði
„hæ",fór ég I kerfi. Hvað get
ég gert? Með fyrirfram þökk
fyrir birtinguna.
Norðlendingur
P.S. Hvað er Vikan gömul?
Ráð við minnimáttarkennd eru
margvísleg, en sjaldnast
óbrigðul. Best er að reyna að
sannfæra sjálfan sig um eigið
ágæti. Allir hafa eitthvað gott
til brunns að bera og það er
mikilvægt að gera sér grein
fyrir eigin kostum ekki síður en
göllum. Hafðu það í huga að
margir þjást af minnimáttar-
kennd þótt þeir virðist öruggir
með sig. Póstinum finnst
ekkert athugavert við að roðna,
sérstaklega ekki í návist þess
sem maður er skotinn í.
Reyndu að taka kveðju
stráksins og kynnast honum,
dálítið, jafnvel þó þú farir
dálítið hjá þér í fyrstu. Með því
hefur þú yfirstigið það versta.
Vikan er á 42. ári.
Lítil brjóst
Kæri Póstur!
Ég er 14 ára. Eg er 18. bekk.
Ég er alvegferlega óþroskuð
líkamlega. Eg er ekki nema 149
cm á hæð, ekki einu sinni
byrjuð á túr. Er óeðlilegt að 15
ára stelpa sé ekki byrjuð á túr?
Er ekki hægt að fá hormónalyf
eða eitthvað svoleiðis? Mamma
segir að ég skuli bara vera fegin
að vera ekki með lafandi brjóst
og túrverki, en stelpurnar
stríða mér alveg jafntfyrir því.
Bless, bless.
UU.
Áhyggjur þessar eru óþarfar.
Þú ert lágvaxin og létt og átt
bæði eftir að stækka og
þroskast. Léttar stúlkur verða
oft seinna kynþroska en þær
þyngri, og það er algengara en
þig grunar að 14-15 ára stúlkur
séu ekki farnar að hafa
blæðingar. Sértu hraust að
öðru leyti er engin þörf að leita
læknis að svo komnu máli.
Fylgdu góðum ráðum móður
þinnar, en taktu ekkert mark á
stríðni stelpnanna.
Pennavinir úti i
löndum
Kæra Vika!
Mig vantar eða réttara sagt
langar að fá pennavini úti I
löndum (bara einhvers staðar).
Getur þú ekki sent mér
eitthvert nafn á útlensku blaði
og ég sendi eða þú sendir
nafnið mitt bara fyrir mig út?
Kærar þakkir,
) Ragnheiður Sverrisdóttir
Laugabrekku I,
640 Húsavík
P.S. Ég er 15 ára og hef ýmis
áhugamál.
Til þess að næla í erlenda penna-
vini eru ýmsar leiðir færar og ein
þeirra er að svara einhverjum af
þeim aragrúa, sem Vikan birtir
beiðni frá oftast vikulega. Af
nógu er þar að taka og þú ættir
að geta valið úr hinum ýmsu
þjóðernum. Einnig er starfandi
pennavinaklúbburinn marg-
nefndi í Finnlandi, heimilis-
fangið er:
International Youth Service,
Turku, Finland. Því miður
sendir ekki Pósturinn nafnið til
erlendra blaða, en ef þú vilt
heldur fara þá leiðina skaltu bara
senda sendiráðum viðkomandi
landa bréf, heimilisfangið fyrir-
finnst í símaskránni og þau sjá
síðan um að senda beiðnina
áleiðis. En fyrri kostirnir ættu
að vera ólíkt fyrirhafnarminni.
Blaðá
Grœnlandi
Elsku Póstur!
Ég ætla að biðja þig að
hjálpa mér örlítið. Égskrifastá
við konu á Nýja-Sjálandi.
Hún er öll á bólakafi í bréfa-
skriftum, skrifast á við um það
bil 80 manns hér og þar um
allan heim. En hún á engan
grænlenskan pennavin og nú
langar hana í einn slíkan.
Getur þú aðstoðað mig? Gefið
mér upp heimilisfang dagblaðs
á Grænlandi eða eitthvað slíkt?
Þeir verða helst að skilja
ensku. Danska er svosem I lagi
mín vegna.
Bestu kveðjur.
Þín Hrafnhildur
Heimilisfang útbreiddasta
blaðsins á Grænlandi er:
Gronlandsposten,
P.O. Box 39
3900 Nuuk,
Gronland.
J»etta blað birtir oft óskir um
•ennavini. Nánari upplýsingar
nást hjá danska sendiráðinu í
pteykjavík.
Pennavinir
Otto Estrada, 7 calle 7-36 Zona 7,
Colonia 5, Zamayoa, Guatemala,
Guatemala C.A., er 23 ára og óskar eftir
pennavinum á íslandi. Hann langar að
skiptast á póstkortum og hugmyndum
við fólk á svipuðum aldri. Skrifar á
ensku og spænsku.
Laura Hudlow, P.O.Box 13, Forest
Park, Ga. 30050 USA, er 19 ára og
langar mikið að eignast pennavin hér á
landi. Áhugamál hennar eru meðal
annars bókmenntir, saga, myndlist og
handavinna.
Guöný Margrét Hjaltadóttir, Austur-
brún, 765 Djúpavogi, óskar eftir að
skrifast á við krakka á aldrinum 13-15
ára. Áhugamál hennar eru margvísleg.
Svararöllum bréfum.
Guðrún Þorsteinsdóttir, Ásvegi 14,
Dalvik, óskar eftir að skrifast á við
krakka á aldrinum 11-13 ára. Áhugamál
margvísleg.
Monica Westerlund, Pl. 6550 Alsbyn,
S-66600 Bengtsfors, Sverige, langar að
skrifast á við stráka á aldrinum 19-22
ára. Hún er 18 ára og skrifar á sænsku
og islensku.
Matthildur Þorvaldsdóttir, Fifuseli 35,
109 Reykjavik, óskar eftir pennavini.
helst strák, á aldrinum 14-16 ára. Sjálf er
hún 14 ára. Áhugamál hennar eru marg-
visleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Ern Curtis, Box 238, Oregon Wis.
53575 LSA, langar að skrifast á við
íslenskar stúlkur, 16 ára og eldri, sem
hafa áhuga á að koma til Banda-
ríkjanna. Hann er meðalmaður að vexti,
víðsýnn að eigin sögn. Áhugamál hans
eru náttúran, íþróttir, tónlist og margt
fleira.
Brian Haight, 18311 Foxglove, Irvine,
Ca. 92715 LSA, er 31 árs og langar að
skrifast á við elskulega stúlku.
Áhugamál hans eru tónlist, dans, bréfa-
skriftir á ensku og ferðalög.
Ásdis Ósk Valsdóttir, Svarfaðarbraut 9,
620 Dalvtk, óskar eftir að skrifast á við
krakka á aldrinum 10-12 ára. Sjálf er
hún 11 ára. Áhugamál hennar eru
margvísleg.
Oddný Stefánsdóttir, Garði, 765
Djúpavogi, og Þórlaug Másdóttir,
Dalsmynni, 765 Djúpavogi, óska eftir
pennavinum. strákum og stelpum.
Áhugamál þeirra eru margvísleg. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Mark Edward Phillips, RD-2 Box 169,
Ilemington, N.J. 08822, LSA, er 16 ára
skólanemi, vinnur auk þess sem öryggis-
vörður við sundlaug. Aðalnámsgrein
hans er alþjóðasaga, hann talar ensku og
þýsku.
Kolbrún Harpa Halldórsdóttir, Suður-
götu 42, 300 Akranesi, óskar að skrifast
á við stelpur á aldrinum 10-12 ára.
Áhugamál: sund, bíó og margt fleira.
Svarar öllum bréfum.
Karólína Inga Guðlaugsdóttir, Knarrar-
bergi 5,815 Þorlákshöfn, óskareftiraö
skrifast á við stelpur og stráka á
aldrinum 13-15 ára (er sjálf 13 ára).
Áhugamál eru margvisleg, t.d. dans,
iþróttir, strákar og sund.
Elinóra Friðriksdóttir, Vogabraut I,
780 Höfn Hornafirði, er 15 ára og óskar
eftir pennavinum á aldrinum 15-18 ára.
Áhugamál: dans, sund, skrifa bréf,
bækur og margt fleira.
Þórey J. Jónsdóttir, Einigrund 2, 300
Akranesi, er 12 ára og langar að eignast
pennavini á aldrinum 11-13 ára.
Áhugamál: allt sem auga á festir. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Svarar
öllum bréfum.
M. I. Chaugan, P. O. Box 800, Abu
Dhabi LAE. Hann er 35 ára gamall,
meðalmaður að vexti og langar að
eignast íslenska pennavini. Áhugamál
hans eru: kvikmyndir, íþróttir, bréfa-
skipti og að skiptast á gjöfum. Skrifar á
ensku.
44. tbl. Vikan 63