Vikan


Vikan - 15.04.1982, Blaðsíða 14

Vikan - 15.04.1982, Blaðsíða 14
Texti: Guðfinna Eydal Hvernig er fjölskylda þín? /\llir hafa kynnst því að andrúmsloft er mismunandi á heimilum. Á sumum heimilum líður manni vel um leið og komið er inn, á öðrum heimilum finnur maður kannski fyrir þvi hvað andrúms- loftið er þrungið og sums staðar getur heimilisandinn verið þannig að maður finnur nánast til vanlíðunar. Sérhver fjölskylda hefur sín sérkenni og tákn. Hún hefur einnig ákveðinn stíl og býr yfir ákveðnu andrúmslofti. Fjölskyldu- meðlimir tala gjarnan saman á ákveðinn hátt og þaðer ekki einungis það sem sagt er sem skiptir máli heldur einnig hvernig hlutirnir eru sagðir. Allir tjá sig bæði með orðum og líkamshreyfingum. Fjölskyldur cru mismunandi Það er afar mismunandi hvernig fjöl- skylda kemur fyrir. Nokkur dæmi um mismunandi fjölskyldur geta til dæmis verið eftirfarandi: Fjölskyldan sem reynir alltaf að vera jákvæð, tala um jákvæða hluti og reynir að halda öllu neikvæðu og óþægilegu frá sér. Það er mikilvægt í slíkum fjölskyldum að láta sem allt sé í stakasta lagi og engin vanda- mál séu fyrir hendi. Ef einhver vandi steðjar að hjá einhverjum fjölskyldu- meðlima verður hann að fá hann leystan utan fjölskyldunnar. Annað dæmi er fjölskyldan sem reynir að leyna öllu út á við. Hér gildir lögmálið að það komi öðrum ekki við hvernig fjölskyldan hefur það. Allt sem gerist innan veggja fjölskyldunnar er og á að vera leyndarmál hennar. Það á að verja fjölskylduna gegn umheiminum. Enn eitt dæmið er þegar fjölskyldu- meðlimir eru hræddir við að opna sig hver fyrir öðrum af þvi að þeir óttast að eitthvað slæmt geti gerst ef þeir tala opið. Fjölskyldan vill ekki segja eitthvað sem getur leitt til rifrildis eða árekstra. Því er best að þegja og byrgja hlutina inni. Sumar fjölskyldur taka ekki upp ákveðin mál af því að haldið er að einhver einn í fjölskyldunni þoli ekki að heyra talað um það. Sumir taka ekki upp ákveðin mál i fjölskyldu af því að þeir eru fyrirfram ákveðnir i því að ekkert þýði að ræða málið. Hér er til dæmis algengt dæmi um konur sem reyna að ræða um sín fjölskyldumál út á við, til að reyna að bæta ástand I fjölskyldu, en eru fyrirfram ákveðnar I því að makar muni ekki taka þátt I slíkri umræðu. Þær hafa reynt en gefist upp þar sem hljómgrunnurinn var enginn. Makinn vill ekki ræða málin og sér ekki neitt athugavert við ástandið. Mörg fleiri dæmi er hægt að nefna en lesandanum er látið eftir að íhuga hvernig hans eigin fjölskylda er. „Góð" og „slæm" tímabil í fjölskyldu 1 sérhverri fjölskyldu þarf að leysa mörg verkefni og vinna ákveðin störf. Það þarf að taka ákvarðanir og fram- kvæma margt. Fjölskylda sem getur tekist á við hlutina í sameiningu, skipu- lagt ákveðna vinnuskiptingu innan fjöl- skyldunnar, komið á ákveðnum reglum, sem fjölskyldumeðlimirnir halda, og uppfyllt óskir og þarfir fjölskyldu- meðlima er yfirleitt fjölskylda þar sem gott andrúmsloft rikir og fjölskyldu- meðlimir eru ánægðir. í slíkum fjöl- skyldum vita meðlimirnir gjarnan við hverju þeir mega þúast af hinum þannig að það sem gerist innan fjölskyldunnar þarf ekki að koma svo mjög á óvart og viðbrögðin við þvi sem gerist þurfa ekki að koma eins og þruma úr heiðskíru lofti. Fjölskyldumeðlimirnir eru nokkuð öruggir um sig innan fjölskyldunnar. Þegar fjölskylda lendir I erfiðleikum eða býr við ákveðið álag kemur oft I ljós hvernig hún er. Hvernig tekst fjöl- skyldan til dæmis á við veikindi, erfið- leika á vinnustað, dauðsföll, framhjá- hald, erfiðleika með börn í skóla og svo framvegis. Þegar fjölskyldan getur mætt ýmsum erfiðleikum án þess að biturleiki, reiði og jafnvel hatur móti líf hennar framvegis vegnar henni yfirleitt vel. Ef erfiðleikar í fjölskyldu verða þess hins vegar valdandi að fjölskyldumeðlimirnir reyna að vakta og stjóma í hinum, tak- marka frelsi til að lifa sjálfstæðu lífi, er gjarnan gripið til ýmiss konar lausna sem valda vonbrigðum og reynast fjöl- skyldunni óheillavænlegar. Það á við um allar fjölskyldur að þær eiga sína góðu og slæmu daga. Þegar allt gengur vel eru tengslin milli fjölskyldu- meðlima góð en þegar miður gengur getur fjölskyldumeðlimum liðið illa í tengslum hver við annan. Oft geta slæm tímabil „læknast” svo að segja af sjálfu sér en þau geta einnig orðið langvarandi og góðu tímabilin verða úr sögunni. Ef slæmt ástand ríkir lengi í fjölskyldu kemur það gjarnan út í ýmsum myndum. Sumir reyna að taka inn pillur eða áfengi til að fá stundarfrið. Aðrir geta fengið líkamleg einkenni, svo sem magaverk eða fyrir hjartað, sem ekki er hægt að útskýra út frá læknisfræðilegu sjónarmiði. Börn geta átt erfitt með að fara I skóla eða átt erfitt með nám og skólahald. Fjölskyldan lifir áfram í einstaklingnum Öll höfum við átt foreldra. Þeir hafa flestir hverjir gefið börnunum ást sína. Þegar börn alast upp í fjölskyldu kynnast þau þvi hvernig fjölskyldan er, hvaða reglur gilda I henni og hvernig tjáning fer þar fram. Samband milli foreldra — gott eða vont — mótar börn ævilangt. Foreldrar eru fyrirmyndir barna og kenna jreim bæði meðvitað og ómeðvitað hvernig á að vera foreldri. Þannig mótar fjölskyldan einstaklinginn kynslóðeftir kynslóð. 14 Vikan 15. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.