Vikan


Vikan - 15.04.1982, Page 28

Vikan - 15.04.1982, Page 28
Texti og myndir: Kristín Halldórsdóttir Pannig cr álitið, að vikingahúsin í Trcllcborg hafi litið út. Höfuökirkjur og víkingavirki Trelleborg, víkingavirkið mikla á vesturströnd Sjálands, er væntanlega hápunktur síðasta dags ferðar okkar um Danmörku. Þar lítum við sönnun þess, að víkingar voru annað og meira en einberir vígamenn og ribbaldar. Og Magnús Magnússon hefur séð til þess, að áhugann skortir ekki á slíkum fornminjum. Það er vissara að eiga bókað með ferjunni frá Árósum til Kalundborgar kl. 8 um morguninn, því hún er oft full- skipuð. Ferðin tekur um 3 klukkustundir, svo það gefst nægur tími til að borða morgun- verðinn um borð í ferjunni. Kalundborg byggðist upp í kringum kastala og kirkju, sem Esbern Snare lét reisa um 1170. Þar er nú mikill iðnaðarbær og stöðug umferð um höfnina. Kastalinn, þar sem Kristján konungur II sat fanginn 1549- 1559, er nú í rústum, en kirkjan stendur stolt og fögur á sínum stað. Hún er eins sérstæðasta bygging Danmerkur með sína 5 turna, stíllinn er býsantískur og minnir okkur á ferðir víkinga í austurveg. Þegar við ökum út úr borginni tökum við á okkur svo- lítinn krók til að skoða einn stærsta rósagarð í barokkstíl í allri Norðurálfu. Sá er við Lerchen-borg, barokkhöll frá miðri 18. öld, og auk hinna um það bil 20 þúsund rósa getum við skoðað riddarasal í rókókó- stíl og minnisherbergi um heimsókn H.C. Andersens árið 1862. Eftir 38 km akstur komuro við til Slagelse, og skammt þaðan er víkingavirkið fræga, Trelleborg, sem um var getið í upphafsorðum greinarinnar. Trelleborg hefur verið geysi- stórt virki með 16 stórum húsum, umluktum háum, hring- laga garði. Utan garðsins og virkisgrafar við hann, hafa staðið 15 önnur hús og annar garður og gröf þeim til varnar. Allar byggingar hafa verið úr timbri, og segir aldursgreining, að hús þessi hafi verið reist fyrir um 1000 árum. Við getum skoðað líkan af virkinu öllu, og utan svæðisins stendur eftir- líking af einu húsanna. Frá Slagelse er 15 km akstur til háskólabæjarins Sorö, Sórey, þar sem við skoðum stærstu klausturkirkju landsins. Bygging hennar hófst um 1160 í tíð Absalons biskups, sem grafinn er á bak við altarið, og í kirkjunni hvílir einnig Valdemar atterdag og fleiri konungar. 28 Vikan 15- tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.