Vikan - 15.04.1982, Qupperneq 50
a
Jón Ásgeir
tók saman
Eldhús Vikunnar
Egypsk linsusúpa Linsubaunasalat Skyndilinsur
(sjá mynd)
250 grömm rauðar linsubaunir
1 lítri kjötseyði
3 stórir laukar
2 negulnaglar
2 hvítlaukslauf
1/2 teskeið salt, lítið eitt af pipar
1/2 teskeið malað kúmen
40 grömm smjör
250 grömm tómatar
1 búnt steinselja
Tilreiösla: Látið linsurnar liggja í bleyti,
notið endilega rauðar, annars verður
súpan ekki ekta egypsk. Þegar linsurnar
hafa legið eina nótt skal setja þær yfir
eldinn í lagvatninu og kjötseyðinu.
Bætið út i einum lauk sem negul-
nöglunum hefur verið stungið í, hvít-
laukslaufunum, salti, pipar og kúmeni.
Lækkiö hitann strax og sýður og látið
krauma við vægan hita í hálftíma.
Flysjið hina laukana, hakkið þá og hitið
í smjöri á pönnu þar til þeir verða glærir.
Bætið teningssneiddum tómötunum
saman við og látið allt verða að mauki.
Kryddið með salti og pipar.
Veiðiö laukinn og hvitlaukslaufin úr
súpunni en stappið allt annað í henni.
Hellið henni í súpuskál, dembið yfir
hana tómatmaukinu og loks stein-
seljunni.
500 grömm linsubaunir
1 lítri kjötseyði (úr teningum)
2 laukar
1 teskeið salt, pipar að smekk
4-5 matskeiðar edik
5 matskeiðar matarolía
1 litið glas perlulaukur
1 búnt steinselja
salatblöð
Tilreiðsla: Salatið lítur betur út ef
notaðar eru linsubaunir sem eru ljósar
(gulbleikar) að lit. Suðutími þeirra er um
það bil 20 mínútum lengri en annarra
tegunda linsubauna.
Látið linsubaunirnar liggja í bleyti og
hitið svo í kjötseyöinu í 45-50 mínútur,
látið þær samt ekki linsoðna alveg. Saxið
laukana í smáa teninga og blandið
saman við þá saltinu. Hrærið pipar,
ediki og olíu saman við. Blandið kældum
linsunum og hluta af kjötseyðinu saman
við. Bætið síðan perlulauknum út í.
Látið standa i nokkrar klukkustundir.
BeriS allt fram á salatblöðum, eftir að
steinselju hefur verið bætt við blönduna.
Má bragðbæta meö sykurlús.
200 grömm magurt, reykt flesk
200 grömm hangikjöt
30 grömm feiti
1 lítri kjötseyði (teningar eða annað)
1 lárviðarlauf
1 sléttfull teskeið thymian
1 litil dós gulrætur
2 matskeiðar niðursoðnir perlulaukar
250 grömm fljótsoðnar linsubaunir
tómatsósa, pipar, salt, edik, sykur að
smekk
Tilreiðsla: Hlutið fleskið og kjötið í
teninga og hitið upp í potti ásamt
feitinni. Bætið 1 lítra af kjötseyði saman
við og setjið út i lárviðarlauf, thymian,
gulrætur og perlulauk. Hellið fljótsoðnu
linsubaununum saman við og
bragðbætið eftir nokkrar mínútur með
tómatsósu, pipar, salti, ediki og sykri.
Linsupottréttur
500 grömm linsubaunir
200 grömm reykt svínspara
1 teskeið salt
2 lítrar kjötseyði (duftlagað)
3 gulrætur
1 steinseljurót
1 sellerírót
2 púrrustönglar
250 grömm reykt pylsa (salami eða
annað)
250 grömm reykt, magurt flesk
vinedik og sykur
Tilreiösla: Setjið upp í potti linsubaunir,
sem lagðar hafa verið í bleyti, ásamt vel
skolaðri pörunni, salti og kjötseyði.
Lögurinn verður að fljóta vel yfir
linsurnar. Hreinsið gulrætur, steinselju-
rót, sellerírót og púrru. Sneiðið allt —
utan eina púrrustöng — í bita og bætið
út í súpuna þegar helmingur suðutíma er
liðinn. Bætið einnig þá í súpuna pylsu-
sneiðunum og teningaskornu fleskinu.
Veiðið froðu ofan af ef þarf. Bragðbætið
með ediki og sykri þegar linsurnar eru
nær því meyrnaðar. Sneiðið síðasta
púrrustöngulinn í þunnar sneiðar og
bætið þeim út í súpuna þegar paran
hefur verið veidd burt.
so Vlkan XS.tbl.