Vikan


Vikan - 22.04.1982, Síða 30

Vikan - 22.04.1982, Síða 30
Texti:Anna Ljósm.: Ragnar Th. RÉTT AÐ BYRJA Grýlurnar á fullri ferð „Þessi hljómsveit er svo sannarlega stofnuð með atvinnumennsku í huga,” sögðu Grýlurnar í viötali viö Vikuna fyrir ári. Verkefna- skráin, hvort sem litiö er fram á við eða um öxl, ber með sér að Grýlurnar séu komnar í atvinnumennskuna. Ekki þar með sagt að þær lifi á spilamennskunni frekar en aðrar rokkhljómsveitir. En sumarið verður rokk og aftur rokk. „Við erum að byrja að taka upp stóra plötu núna og verðum i því allan maímánuð. í júní og júlí er svo kvikmyndataka með Stuð- mönnum. — Myndin verður að mestu tekin í Reykjavík en við verðum þrjár vikur úti á landi. — Svo eru það sveitaböllin — og hljómleikar.” En lítum fyrst til baka: í mars fóru Grýlurnar I snögga ferð og gerðu það gott: Getid þid sagt okkur eitthvad um ferdina: — Hún byrjaði á 17 tima törn, mest bið. Það var ekki hægt að lenda á Kastrup, vegna þoku, svo við lentum einhvers staðar á Jótlandi — í Billund — þar biðum við í einn og hálfan tima og síðan sjö tíma á Kastrup. lnga samdi lag... — hún samdi ekkert lag, Ómar Ragnarsson söng það inn á plötu fyrir löngu. — Mér leiddist svo æðislega, bætir Inga við til skýringar. — Ég var að skrifa ástarbréf, segir Herdis. — Við vorum eins og á eyðimörk þarna, æðis- lega einar og yfirgefnar. H\ ernig at i 'ikadist þad aö þidjörud? — Sænska sjónvarpið fékk þáttinn sem íslenska sjónvarpið gerði með okkur á fimmtudegi, óklipptan, og á föstudag var hringt i okkur. Við höfðunt tintann frá hádegi og frant að kaffi til að undir búa okkur, ná i gjaldeyri og ailt sent til þarf. Aðalpróblentið hjá Herdisi var hvort hún þyrfti að hafa barnið með. Þrumugóðar móttökur Ferðin tók tíu daga, þar af tvo i Danmörku. Við spiluðum i sænska og danska sjónvarpinu í beinni útsendingu...£r þad ekki erjitt? — Nei, nei, bara eins og á hljómleikum, auðvitað erum við alltaf svolítið nervösar.... Svo spiluðum við á klúbbum og á balli í Uppsölum. — Það var æðis- legt fjör, okkur var sagt að önnur eins stemmning hefði ekki verið þarna siðan Rolling Stones komu fyrir tuttugu árum. — Við fengum yfirleitt þrumugóðar móttökur. Jafnvel Svíarnir virtust kunna vel að meta okkar tónlist. Eins og þeir eru annars ólíkir okkur. — Stelpurnar fóru i bæinn áður en við mættum i sænska sjónvarpið og keyptu málningu. Sminkurnar hjá sjónvarpinu höfðu aldrei séð annað eins. Það eru allir svo penir og lekkerir þarna. Það er greinilegt að allir, kellingar og kallar, liafa farið á snyrtinámskeið. Við vorum spenntar að hitta allt þetta myndarlega fólk en þegar karlmennirnir komu inn og mjökuðu sér í mjöðmunum þá féll okkur allur ketill i eld. Mikið hrikalega eru þeir væntnir! Hvers vegna haldid þid aö þid hajid fengid svona góöar vidtökur, fyrsl Sviarnir eru svona ólikir ykkur? — Kvennarokk er i tísku, framboðið er litið og eftirspurnin ntikil. Svo þurfum við kellingarnar að vera svo ntiklu betri en karlmenn til að ná einhverjum árangri og það myndi ekkert þýða að bjóða upp á lélegt prógramm heldur. Það sýndi sig hér heima. Við fengum meiri háttar lélega dóma fyrst þegar við komum fram (í Austurbæjarbiói). Fólk gerir kröfur. Við vorum búnar að æfa allt sumarið og fólk bjóst við betra. Við höfðum gott af þessum skelli og hugsuðum sem svo: Við skulum sýna þeim hvað við getum! Það er farið að launa sig núna. Annars virðast gagn- rýnendur vera jákvæðir út i sumar hljómsveitir, það virðist vera sama hvað þær gera, allt er frábært. Svo eru það lika aðrar sem eru fyrirfrant dæmdar ómögulegar. Já, þeir eru skrýtnir, þessir gagnrýnendur. Hvernig hafa adrar rokkhljómsveitir tekid ykkur? — Sumir eru mjög jákvæðir. Bubbi var fyrstur til að bjóða okkur velkomnar i bransann, og það meira að segja á hljómleikununt í Austurbæjarbíói i fyrra. Surnir eru svo sem ekkert að greiða götu manns en samt er þetta að breytast þar sem þeir sjá að við eruni að þessu af alvöru. Ragga: Mér tinnst eins og við séum rétt að byrja núna. Það er i rauninni ekki fyrr en nú að við erum búnar að ná svo vel saman að við getum farið að „jamma” sarnan. — Platan hefur fengið góðar viðtökur en litla sölu. Krakkarnir sem hlusta mest á okkur, ætli þeir séu ekki svona 12-16 ára, eiga ekki fón og það er of dýrt að gefa fjögur lög út á kassettu. — Við ættum kannski að gefa út hljómleikakassettu eins og sumar hljóm- sveitir eru farnar að gera, hntmrn... — Við áttum von á öllu og erum hressar yfir viðtökunum. Verda lögin á nýju plötunni frumsamin? — Já, við erum tilbúnar með nokkur lög og ætlum að hafa allt frumsamið. Á hvada tónlist hlustiö þiö? — Allar kvennarokkhljómsveitir! Slits og Go-Go's, Raincoats og göntlu grúppurnar. Ragga: Ég hlusta á allt og þá mikið á irska þjóðlagatónlist- n : Stevie Wonder, Þursana, UtanS menn, Bubba. Linda:...Pink j Pink Floyd, taka hinar undir. , Ragga: Ég hlusta aldrei á PinK , Inga: Ég hlusta á Spliff og Ninú 3 ^ Patty Smith, allt með henni og sy0 r gömlu góðu eins og Hendrix (na Pabbi minn og systir hvöttu mig — Annars á öll tónlist rétt á spilar sérl^ Hefd's 3 á klassiskan gítar og 1 ^ii fagott og óbó). Við erunt rokkhlj0 ^ [il en við viðurkennum attnað, e’n*lltjnia dæmis pönkið og hundleiðinleg ^jr verk sem aðeins fjórir hlusta á at iý halda að þeir virðist betur gelnir ^ hlusta á það. Þetta á allt rétt á ser'^ f er það nú svolítið mikið skrýtiö ^ifi hljómlistarfólk (poppbransatólU (ii að borga mikið fyrir þessi ntenn óríáií leiðinlegu nútimatónskáld se' fíla af skyldurækni. , p$[ Hvaö kom til aö þid svöru<?t,i jþ Ragga var aö leita ad stelpuW 1,1 hljómsveit? 30 Vikan 16. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.