Vikan


Vikan - 22.04.1982, Qupperneq 36

Vikan - 22.04.1982, Qupperneq 36
Jl. hluti Framhaldssaga KÓRÓNAN teinninn sást greinilega þaöan sem au stáðu. Hann liktist raunar ekkert sétstaklega mannshöföi þessa stundina Cn beim var Ijóst að þaö var ekki sama vaöan var horft né hvernig Ijós og u8gar léku um steininn. Nú var komiö ,Vö^’ sól var að setjast við sjóndeildar- óúginn og myndaði gyllta brú yfir blý- erá» hafið. Ron, þú ert snillingur! sturidi lone. ^ann hló. — Það var Annika sem 'undi eftir steininum þarna uppi. M Við erum öll snillingar, sagði artm. — K.nut, sem áttaði sig á að . anengið hennar frænku gömlu væri ^rihvað merkilegra en önnur fatahengi, v,-’ sern kom auga á þríhyminginn, ^nnika, sem stautuðum okkur fram °gamtáknunum, Jörgen, sem áttaði S|g 4 L . ° Pvi að það hlaut að vera um annan Se^n raeða — og fann hann, og Ron, 111 alltaf fann nýjar leiðir þegar við pÖUtn tapaðáttunum. p lrnmn'enningunum varð litið á ,ar inson og Lisbeth. Þau gátú ckki ^érafneinu. ^ okkrum mínútum síðar klöngruðust Upp Þ'óngan stiginn og svo stóðu 'q|. 0,1 saman á klettasyllunní beint fyrir I, n húsið, Ron var með þeim, augu eðaS C*lU l^nn‘*íu’ hvar sem hún gekk .St<^’ °8 ur Þeim brann glóð. Hún náv ' taepast að lita i áttina til hans en Vlsl hans kveikti eld i æðum hennar. glóð aU8Um Parkinsons brann einnig pj en það var ágirndarinnar eldur. ^ rians skulfu, það var sem hann rian'i^ar 'somtnn með kórónuna milli jjýnanna’ Annika skildi hann ekki. eskja hvernig nokkur mann- °g p®31 niðurlaegt sjálfa sig á sama hátt nem ar^'nson’ hvernig hann gat liðið Kj,„ cntlum sínum að hæða sig eins og höfðu *eva ““ 8ert- Sjálf hefði hún orðið Un. rC'^’ 110,1 hefði rokið burt af staðn ujná stundinm. S l'erilu/yr'r *lenn' var britfa. allt saman týrj annað en spennandi ævin- o„Us,>rtr Pnrkinson var það lykillinn að Jóei" ^ann *lalð'svo *ene’ riePPt aþ- .S,ein.ten °8 Martin gengu í kringum hasflg "l ,^ann var stór, næstum mann- rnan lar °8 reyndar í laginu eins og - s öfuð sem beindi sjónum út á hafið. Það var bratt framan við steininn niður að húsinu og rétt svo að hægt væri að fikra sig meðfram honum á þann veg- inn. Parkinson" fleygði sér á fjóra fætur og byrjaði að krafsa í jarðveginn eins og hundur,— Hættu þessu! sagði Jörgen hvasst. — Það mætti ætla að verðandi prófessor vissi betur en svo að hann hagaði sér svona. Hefurðu aldrei verið viðfornleifagröft? Parkinson reis treglega á fætur og burstaði hnén. — Ég hef það á tilfinningunni að við ættum að tilkynna þennan fund áður en við förum að róta nokkru til, sagði Tone íhugandi. — Já, við verðum að skýra frá öllu sem við höfum komist að hér. — Það er nú orðið nokkuð seint, tautaði Annika. Parkinson varð óttasleginn. Tilkynna fundinn? Það tæki marga daga — tíminn liði — og einhver annar fengi heiðurinn! Það mátti ekki verða. — Það er varla nauðsynlegt, sagði hann yfirlætislega. — Ég hlýt að teljast fullfær um að taka ábyrgð á þessu. Það stendur nú Jörgen liklega nær, sagði Martin þurrlega. — Ég hlýt áð teljast í fyrirsvari hér, sagði Parkinson og leyndi sér nú ekki að farið var að þykkna i honum. — Ég tek á mig ábyrgðina. Og þið eruð öll fær um að taka þátt i þessu vegna náms ykkar og reynslu, nema auðvitað Tone — og Ron sem er náttúrlega gjörsamlega óvið- komandi. Óvildin leyndi sér ekki í svip Rons og Martin flýtti sér að gripa inn i: — Ron veit alveg jafnmikið um ogam og við hérna, ef ekki meira. Hann er sannar- lega ekki sá sem lalist getur óviðkom- andi hér. — Martin Öyen, sagði Parkinson og gnísti tönnum. — Ef þið útilokið mig frá þessum uppgrefti þá kæri ég ykkur fyrir að halda þessum fornleifafundi leyndum og fyrir skemmdir á fornminjum. — Bannsettur framapotarinn. kallaði Martin upp yfir sig. — Er algjör- lega útilokað að starfa saman á jafn- réttisgrundvelli? Þetta hefði aldrei gerst ef prófessorinn okkar hefði verið til staðar. — Nú er hann bara ekki hér, heldur ég, sagði Parkinson drembilega. — Það hlýtur að koma í minn hlut að stjórna verkinu. Hafið þið komist að einhverri niðurstöðu varðandi legu steinsins? — Þar sem við höfum hingað til eytt timanum i karp, eins og krakkar í sand- kassaleik, þá höfum við ekki ennþá komist að nokkrum sköpuðum hlut, sagði Jörgen. — En komum okkur að verki núna! Þau athuguðu legu steinsins frá öllum hliðum en urðu engu nær. Þau komust ekki undir steininn. — Ég hef enga trú á að þið finnið neitt þarna, sagði Lisbeth. sem sat skammt frá og reykti. Hún virtist ekki nema í meðallagi áhugasöm um verkið. — Jú, ég hef trú á að þetta sé staður- inn, sagði Jörgen. — En á þessum langa tíma, sem liðinn er, hefur steinninn sigið og þjappað saman jarðveginum undir. — Áttu við að kórónan hafi klesst saman? sagði Parkinson. — Það vitum við ekkert um. Að áliti Martins er viðbúið að hún sé hreint ekki til lengur heldur hafi orðið ryði að bráð. Parkinson sýndi engin merki um áhyggjur. — Jafnvel minnsta brot af járnkórónu frá þessum tíma hefur ómetanlegt gildi sem fornmunur. Og svo finnum við vonandi sverðið. Það minnti þau á að þau höfðu ekki sagt Parkinson frá sverði Feorníns. Nú, það var kannski ekki svo vitlaust að halda einhverju leyndu fyrir karlinum! Þau skiptust á þýðingarmiklum augna gotum og Ron brosti við þeim skilnings- ríku brosi. — Ég óttast það eitt að einhver hafi fundið þessa muni á undan okkur, sagði Parkinson. — Það væri hörmulegt. Úti við sjóndeildarhringinn sáu þau hvar óveðursský sigldu upp á himininn. Annika varð snögglega gripin óvið- ráðanlegri skelfingu. Hana langaði til að hrópa til félaga sinna að hætta þessu. hætta við allt saman og koma sér i burtu. — Drúidar, sagði hún við sjálfa sig. — Þeir voru fjölkunnugir. — Vissulega, ansaði Martin, og hún hrökk við því hún hafði ekki gert sér grein fyrir að hún talaði upphátt. — En kæra Annika, þú ert þó ekki taugaveikl- uð? — Ég er ekki vön að vera það. En það er eitthvað á seyði hér, sagði hún lágt, svo að ekki heyrðu aðrir á tal þeirra. — Égeróttaslegin. — Hið fræga sjötta skilningarvit kon unnar hefur lika sinar slæmu hliðar, sagði hann hlæjandi. — „Ég finn þetta á mér," segið þið allar og yfirleitt er það eintóm vitleysa og móðursýki. — Hvað veist þú um það? Þú ert ekki kona. Nú, jæja, þetta er liðið hjá i bili. Gleymdu því. Og auðvitað er ég jafn- spennt og þið. Tone gerði enn eina árangurslausa til- raun til að stinga hendinni undir stein- inn. — Við þyrftum að hafa spaða, dæsti hún. — Spaða? sagði Jörgen og skellti upp úr. — Það þarf nú eilthvað kröftugra gegn þessu hérna. — Jæja. og hefur þú betri uppá- stungu? Eigum við kannski að ráðast gegn þessu þúsund tonna bjargi með hamri og meitli? — Þessi steinn vegur engin þúsund tonn, sagði Parkinson og setti sig i kennarastellingar. — Ég get mér þess tii... — Slappaðu af, sagði Tone grcniju lega. — Ég var bara að reyna að vera fyndin. — Þú gast þá sagt það, sagði Parkinson. — Ég er nú ekki vön að gefa út til- kynningu þegar ég ætla að segja brand ara, sagði Tone. — Svo fyndnir eru þeir nú ekki. — Dúnkraftur, sagði Martin hugsandi. — Ekki vitlaus hugmynd, sagði Jörgen. — En liklega þyrftum við tvo. Einn þar sem Tone reyndi að troða inn hendinni og annan hér og þar með gæt- um við myndað holrúm undir steinin uni. Svo getum við hlaðið undir steininn og náð honum þannig upp. — Eruð þið að tala um tjakk eins og við erum með I bilnum? spurði Annika sem ekki var vel heima i tækninni. — Varla er slíkt verkfæri nógu sterkt. — Nei, það verður að vera öflugra, sagði Jörgen. — Kannski við getum fengið almennilegan dúnkraft á bifreiða- verkstæðinu I þorpinu hérna handan. 16. tbl. Vikan 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.