Vikan


Vikan - 13.05.1982, Blaðsíða 20

Vikan - 13.05.1982, Blaðsíða 20
Þarf nokkuð að prófa rafmagns- tæki? i Hafi þvot prófuð n-íkisins c vcrið að v son. :avclin vcrið skoðuð og hjá Rafmagnscftirliti ru allar líkur að þar hafi crki Magnús J. Kristins- Þarf nokkuð að prófa rafmagnstæki sem á að selja hér á landi? Er ekki í það minnsta hægt að treysta þekktum, erlendum vöru- merkjum? Því miður getum við ekki svarað þessum spurningum afdráttar- laust játandi. Rafmagnseftirlit ríkisins prófaði 380 rafföng á þrem mánuðum þessa árs og 63 hlutir, það er að segja 17 prósent, fengu neikvæðan dóm, þeirra á meðal „þekkt vörumerki”. Þrenns konar mat er lagt á þau rafföng sem berast Rafmagnseftir- litinu til skoðunar: samþykkt, samþykkt með skilyrðum eða neitað. Sé um minniháttar vankanta að ræða er framleiðendum eða inn- flytjendum gefinn kostur á að lagfæra þá áður en varningurinn er settur á markað, hann er samþykktur með skilyrðum. Standist raf- föng ekki þær kröfur sem Rafmagnseftirlitið gerir verður úrskurðurinn neikvæður. Rafföng, sem ekki hafa hlotið samþykki Rafmagnseftirlits ríkisins eða verið neitað um samþykki, má alls ekki flytja inn í landið, selja eða afhenda til notkunar innanlands. Þetta eru lög í landinu og allir sómakærir framleiðendur eða innflytjendur raffanga hlýða þeim. Prófunar- og viðurkenningarskylda Rafmagnseftirlitsins nær ekki til rafbúnaðar í orkuverum, en i grófum dráttum eru öll rafföng, sem leikmenn hafa undir höndum, rafföng til heimilisnotkunar og til notkunar í verkstæðum og landbúnaði prófunar- og viðurkenningar- skyld. Nákvæman lista er að finna í reglugerð 264/1971 um raforku- virki en hér skiptir okkur máli að allar þvottavélar þurfa skilyrðis- laust að hljóta samþykki Rafmagnseftirlitsins til að mega fara á markað. Af þessum ástæðum fjallar Vikan aðeins um þær undirgerðir þvottavéla sem samþykktar hafa verið eða bíða úrskurðar. í síðara tilfellinu nefnum við þó aðeins undirgerðir vörumerkja sem hafa áður hlotið samþykki fyrir aðrar undirgerðir. Ennfremur vitum við fyrir víst að sýnishorn af nýju undirgerðinni höfðu verið afhent Rafmagnseftirlitinu til skoðunar 26. apríl síðastliðinn eða fyrr. Listinn er sem sagt tæmandi, á honum eru allar undirgerðir þvotta- véla sem eru og mega lögum samkvæmt vera á markaði hérlendis. Bergur Jónsson, forstöðumaður Rafmagnseftirlits ríkisins, sagði í viðtali við Vikuna að íslendingar framfylgdu stranglega alþjóð- legum reglum um öryggis- og smíðastaðla raffanga. Prófunarreglur Rafmagnseftirlitsins eru frá tveimur alþjóðlegum samtökum. ■ Hjá IEC-samtökunum í Sviss eru gefnir út staðlar fyrir raftækni- iðnaðinn. Rúmlega 100 ríki eiga aðild að IEC en staðlarnir fá samt sem áður ekki sjálfgert lagagildi í viðkomandi löndum enda eru þeir gefnir út til leiðbeiningar. Hins vegar gefa C'EE-samtökin, sem hafa aðsetur í Hollandi, út reglur og staðla sem ætlaðir eru til raffangaprófunar og til að fella úrskurði um hæfni raffanga. Þegar Rafmagnseftirlit ríkisins sam- þykkir einhvern hlut þýðir það að sá hlutur hefur meðal annars uppfyllt nægjanlega vel þær kröfur sem fram koma í CEE- reglunum. Bergur sagði að einstaka framleiðandi erlendis áttaði sig ekki á þeim ströngu kröfum' sem Rafmagnseftirlitið gerir til raffanga. Sumir hafa nefnilega þann háttinn á að þeir framleiða sama vöru- merkið á tvenns konar hátt, önnur gerðin stenst ýtrustu öryggis- kröfur en hin (sem oft er ætluð löndum þriðja heimsins) með sem lægstan tilkostnað í huga. Rafmagnseftirlitinu er meðal annars ætlað að koma í veg fyrir að lélegur varningur af þessu tagi berist í hendur grandalausra neytenda hér á landi. Bergur Jónsson sagði að yfirleitt væri sam- starfið við innflytjendur gott enda ekki síður þeim í hag að geta aug- lýst að þeirra varningur hafi fengið heimild til að bera viður- kenningarmerki Rafmagnseftirlitsins. Úr rcglugcrð nr. 264/1971 um raforkuvirki: ,,Ekki má flytja inn í landið, selja eða afhenda til notkunar innan- lands, annan rafbúnað eða önnur raftæki en þau, sem fullnægja skilyrðum þessarar reglugerðar um gerð og frágang. Skylt er að senda Rafmagnseftirliti ríkisins til prófunar og viðurkenningar þær tegundir raffanga sem taldar eru upp... og má ekki flytja þau til landsins eða gera innanlands, selja þau eða afhenda til notkunar, fyrr en samþykkt Rafmagnseftirlitsins er fengin, nema sérstakt leyfi til þess komi til í hvert sinn. Sú viðurkenning sérhverrar gerðar raffanga, sem veitt er þegar sýnishorn er samþykkt, gildir einungis um þá hluti, sem eru alger eftirmynd sýnishornsins." Hugsum okkur þvottavél sem hlotið hefur samþykkt Rafmagnseftirlitsins og heitir til dæmis „Washes Well T-IOO”. Nú gerir framleiðandinn einhverjar breytingar og kallar vélina „Washes Well T-105". Síðari gerð vörumerkisins „Washes Well" má EKKI selja án þess að Rafmagnseftirlitið hafi samþykkt hana. Þetta virðist kannski sparðatíningur og smotterí, bara breytt einum tölu- staf í nafninu. Málið er hins vegar það að á bak við þessa nafnbreytingu getur leynst stórhættuleg breyting á vélinni. Þess vegna á skilyrðislaust að afhenda Rafmagnseftirlitinu nýju gerðina til skoðunar. 20 Vikan 19. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.