Vikan - 29.07.1982, Blaðsíða 50
E/dhús
Vikunnar
Umsjón: Svarta pannan á horni Tryggvagötu
_________ og Pósthússtrætis
í Reykjavík
Matgerðarmenn:
Þórður Sigurðsson
og Hörður Ingi Jó-
hannsson
Glóðarsteiktur
kjúklingur
Tilreiösla: Hlutiö kjúklinginn í 8
bita og kryddið með kjúklinga-
kryddi. Leggiö bitana í grillsósu (sjá
uppskrift) aö minnsta kosti í klukku-
stund.
Glóðarsteikið á útigrilli og hafið
grindina ekki nálægt glóðinni. Kjúkl-
ingsbitarnir verða gegnsteiktir á um
það bil hálfri klukkustund.
Hægt er að fá tilbúna barbecue-
sósu í verslunum. Vilji menn krydda
hana meira má bæta saman við
tabasco-sósu, hvítlauksdufti og sér-
stöku barbecue-kryddi. Ágæt mild
blanda fæst með að hræra saman
þrem hlutum af tómatsósu, einum
hluta af grill-sósu og einum hluta af
laukbitum („onion bits”).
Berið fram ásamt nýju grænmeti,
bökuðum kartöflum og að sjálfsögðu
sósunni. Einnig má hita sósuna sér-
staklega áður en hún er borin fram.
Svínalundir á teini
2 þykkar svínalundir
4 laukar
2 epli
14 steinlausar sveskjur
1/2 desílítri olía, sítrónusafi,
hvítlaukur, salt, pipar.
Tilreiðsla: Skerið lundirnar í 6—8
bita. Fletjið kjötið út og brúnið það á
pönnu í eina mínútu. Flysjið lauka
og epli, skerið í f jóra hluta og þræðið
allt á teinana. Setjið á víxl lauk, epli,
sveskjur og kjöt. Penslið með olíu og
sítrónusafa. Sáldrið pipar og
hvítlauk yfir. Setjið teinana á grind
og grillið í ofni í 10—15 mínútur.
Snúið teinunum oft og penslið með
olíu. Saltið þegar steikingu er lokið.
Berið fram með grillsósu (sjá upp-
skrift) og fersku salati.
Glóðarsteiktir
humarhalar í skel
5 humarhalar
80 grömmsmjör
hvítlauksduft eða pressaður
hvítlaukur, steinselja, salt,
örlítið karríduft, brauðrasp.
Tilreiðsla: Opnið halana eftir endi-
löngu að innan, og setjið í eldfasta
skál þannig að humar snúi upp.
Skerið smjörið í bita og setjið á
halana, kryddið þá og setjið yfir
grillið (eða í ofn). Bakið þar til
humarinn er orðinn stinnur. Berið
fram með ristuðu brauði og safanum
úr humarhölunum.
Grillsósa
(fyrir kjúklingaréttinn og
svínalundirnar)
Blandið saman einum hluta af
smjöri (smjörlíki) og einum hluta af
olíu. Sjóðið fínhakkaðan lauk í
þessari blöndu við vægan hita. Bætið
svo við í 2—3 desílítrum af kjötseyði,
2 matskeiðum af soya-sósu, 1 mat-
skeið af ediki, 1 matskeið
Worcestershiresósu, 1—2 teskeiðum
af Chilisósu.
Blandlð saman 2 teskeiðum af
maizena-mjöli og 2—3 matskeiðum
af köldu vatni og jafnið sósuna með
þessari blöndu. Sjóðið sósuna upp og
bragðbætið með salti, papriku, pipar
og eilitlu af púðursykri eða hunangi.
*0 Vikan 30. tbl.