Vikan - 29.07.1982, Side 51
Draumar
Draumar um X
Hæ, hæ!
Eg ætla að biðja þig um,
að birta eftirfarandi
drauma:
1. draumur:
Eg var í frímínútunum í
skólanum. Strákurinn (X)
sem ég er hrifin af stóð
með fleiri krökkum í hðp
og voru þau að tala sam-
an. Mér fannst eins og
þau væru að rífast eða
væru ósammála um eitt-
hvað. Svo er hringt inn og
ég ætla að ganga framhjá
þeim og inn í ríma. Þá
snýr X sér að mér, tekur
utan um mig og við göng-
um saman eftir ganginum
þangað til leiðir skilja.
Hann var að fara í annan
ttma. Krakkarnir, sem
voru með honum í
frímínútunum, gengu á
eftir okkur inn ganginn.
Þau voru stanslaust að tala
sín á milli og senda okkur
X augnagotur.
2. draumur:
Eg og systir mín vorum
úti ísjoppu. Allt í einu
ryðjast X og fleiri krakkar,
sem ég þekki, inn í sjopp-
una með látum. Strákur,
sem mér finnst ferlega
leiðinlegur og uppáþrengj-
andi, tók utan um mig og
dansaði með mig um gólf-
ið. Loksins fékk ég það út
úr krökkunum að þau
væru að fara í Tónabíó.
Þau vildu ólm að ég kæmi
með en ég sagðist koma
með næsta strætó á eftir.
Eg settist á sjoppugólfið
og þá var komið handrið
yfir mitt gólfið. Eg lét
olnbogann upp á handrið-
ið en hinum megin stóð
X og hallaði sér upp að
því. Eingurnir á okkur
snertust, ég tók t höndina
á honum og við héldumst
í hendur. Eftir nokkurn
ríma fóru allir með strætó.
Svo var ég komm f bíó en
var með sæti mörgum
bekkjum fyrír aftan krakk-
ana. Stelpa, sem ég þekki,
skipti við mig og þess
vegna sat ég á ská aftan
viðX.
3. draumur:
Eg var á leiðinni í skól-
ann. Þegar ég kom út var
X að gera við fjölskyldu-
btlinn úti á plani. Eg varð
ferlega undrandi en labb-
aði strax til hans og við
fórum að tala saman. Þeg-
ar hann var búinn að gera
við bílinn stóð hann upp,
við tókum utan um hvort
annað og gengum af stað
upp í skóla. A leiðinni
uppeftir spurði hann mig
hvort ég vildi byrja með
honum. Eg hugsaði mig
ekki um heldur sagði já.
Þegar við komum upp í
skóla voru allir búnir að
frétta að við værum byrjuð
saman. Stelpa, sem er
einu ári eldrí en við, kom
skellihlæjandi til okkar og
sagði að X væri minni en
ég. En hann var og er að-
eins stærrí. Við létum sem
við sæjum hana ekki og
ætluðum aðganga i burt
en tókum þá eftirþvíað
flestir krakkarnir voru að
hæðast að okkur. Ef ég fæ
ráðningu á þessum
draumum ístyttu eða
óstyttu formi þá þakka ég
bara kærlega fyrír.
'16.
Þessir draumar eru
sennilega allir afleiðingar
af sterkum hugsunum í
vökunni sem endurspegl-
ast síðan í draumi. Því er
varasamt að telja að þarna
muni um tákndrauma að
ræða og ráða þá samkvæmt
því. A unglingsárunum er
þetta mjög algengt og varla
ástæða til að taka mikið
mark á slíkum draumum
sem áður sagði. Helst er að
lesa úr draumunum að þér
væri fyrir bestu að taka ekki
of mikið mið af annarra
áliti og reyna að mynda þér
eigin skoðanir á mönnum
og málefnum. Hvað X
varðar segja draumarnir
ekkert um hvort samband
ykkar á eftir að taka ein-
hverjum breytingum í ná-
inni framtíð.
Reiður á hjóli
Hæ! Hæ!
Kœri draumráðandi.
Við vorum niðri í bœ, ég og
besta vinkona mín með strák sem
ég er skotin í. Hann reiddi mig á
hjóli út um allan bæ og vinkona
mín þurfti að hlaupa á eftir
okkur. Svo varð hann svo reiður
út af einhverju og ég þurfti að
fara af hjólinu. Svo komum við
að næsta götuhorni (ég og
vinkona mín), þá var hann
farinn en þar voru stelþa og
strákur, eldri en ég, sem ég
kannast við og við sögðum hœ!
Vonandi viltu birta þennan
draum.
B/ess. Ég.
Þér mun heppnast vel eitthvað
sem þú tekur þér fyrir hendur,
þó allsendis óskylt ástarmálum.
Þú þarft að vinna vel að þessu og
treysta á sjálfa þig, frekar en
aðra, en allt bendir til að
árangurinn verði meira en góður,
sem sagt afbragðsgóður.
í leikhúsi
Elæ, hæ.
Viltu ráða jyrir mig
þennan draum. Eg og vin-
kona mín vorum að fara í
leikhús. Þegar við vorum
sestar kom strákur sem við
þekkjum og bað mig að
sitja hjá sér. Eg sagði já, já
og við gengum upp nokkr-
ar tröppur. Við settumst í
hálfgerða rólu. Strákurinn
leiddi mig. Eftir nokkra
stundsagðist hann þurja að
skreppa. Elann og vinkona
mtn komu svo eftir smá-
stund. Hann var með
þykka, hvíta ullarkápu og
sagðist ætla að gefa mér
hana. Eg faðmaði hann að
mér og við leiddutnst út úr
leikhúsinu.
Með þökk,
K. 4237
Þetta er prýðilegur draum-
ur í öllum aðalatriðum og
bendir til þess að framtíðin
sé bæði björt og full af alls
konar ævintýrum og tæki-
færum. Ekki mun allt fara
eins og þú ætlar og þú mátt
búast við einhverjum
þrengingum á lífsleiðinni
en góðu teiknin eru svo
sterk og afdráttarlaus að
ætla má að það sem á bjátar
verði þér fremur til fram-
dráttar en hitt.
30. tbl. Vikan SI