Vikan - 12.08.1982, Síða 2
^ELDUdbU 4£) fer
\jlTl £WI4Ð
Þú (xiFnsr t
n'an tíl ■
Úrheimi kvikmyndanna
Leikstjórinn var að reyna að
sannfæra fjármálastjóra kvik-
myndarinnar um að myndin yrði
mesta stríðsmynd allra tíma.
— Þetta verður það stórkostleg-
asta sem nokkru sinni hefur sést á
hvíta tjaldinu. Ég verð með raun-
verulega hermenn, 9000 manns í
öðrum hernum og 12000 í hinum!
— 21000 statistiar í einni kvik-
mynd! Hvernig eigum við að geta
borgað þeim öllum? sagði fjár-
málastjórinn áhyggjufullur.
— Borgað? Ekkert mál. Við
notum bara alvörukúlur!
Cecil B. DeMille auglýsti eina af
stórmyndum sínum úr Biblíunni
með viðlíka orðaflaumi og aðrar
myndir sínar: Stórbrotin og mikil-
fengleg mynd í allri sinni dýrð.
Mesta mynd allra tíma. 100.000
leikendur. Ohemju spennandi.
Technicolor, o.s.frv., o.s.frv.
John Steinbeck skrifaði um
myndina og var dómurinn á þessa
leið: Sá myndina, finnst bókin
betri.
— Hefurðu lesið Opinberunar-
bók Jóhannesar?
— Nei, ég ætla að bíða eftir
myndinni.
Willy Breinholst
LEIGJANDINN í KÚLUNNI
Mamma er komin
á sjöunda mánuð
Þá er mamma komin á sjöunda
mánuð, eða svo segir hún. Hún er
ósköp eirðarlaus og hún segist ekki
vita hvernig þessir siðustu mánuðir
eiginlega liðil Ég hef sjátfur nokkrar
áhyggjur af framtiðinni þvi að það
er að rifjast upp fyrir mór að á sin-
um tima, þegarág flutti hingað, var
eitthvað talað um að ieigutiminn
væri bara niu mánuðir. Ég veit svei
már ekki hvað gerist ef ág fæ hann
ekki framiengdan um aðra niu mán-
uði. Af þessu hef óg áhyggjur og
þegar óg hef áhyggjur sýg óg
þumalfingurinn óvenjumikið. Þetta
fær raunar svo mikið á mig að óg er
farinn að fá meira hár á höfuðið.
Mamma þolir orðið illa að standa
lengi upprótt. Það eru ekki margir i
strætó sem standa upp svo að við
getum sest. Mamma segist ekki
vera nógu ólótt ennþá. En þegar
hana vantar sæti i strætó hjálpa óg
henni dálitið. Ég hef komist að þvi
að ef óg spyrni þóttingsfast i ein-
hvern vegginn, svo að hann bungar
dálitið velút, stekkur venjulega ein-
hver á fætur og segir: Geriði svo
vel, bæði tvö, fáið ykkursæti!
V/NSÆLAfí KONUR
GJÖRÓLÍK TÍSKA
Nokkur ár eru á milli þessara
tveggja átrúnaðargoða. Kvik-
myndahetjan Marilyn Monroe
naut mikilla vinsælda á sjöunda
áratugnum. Ungt fólk dáði þessa
hvítu, ljóshærðu kynbombu.
Nú á dögum nýtur diskódrottn-
ingin Grace Jones sams konar
hylli og Marilyn áður. Grace er
Jamaíku-búi, svört og dökkhærð.
Hún er í fararbroddi fyrir þeirri
nýju tísku sem fylgir nýbylgjunni í
dægurtónlistinni.
Er að furða þótt kerfið
kosti peninga?
Fyrir nokkrum árum keyptu
hjón í Reykjavík sér gamalt
hús í miðbænum og fylgdu því
óhrjálegir skúrar á lóðinni.
Skúramir voru fljótlega rifnir
en það tókst seint að koma fast-
eignaskattayfirvöldum í skiln-
ing um þetta og oftar en einu
sinni kom tilkynning þar sem
hótaö var uppboði á kofunum
sem hvergi voru til — nema þá
á himnum. Loks tókst að gera
viðkomandi Ijóst hvemig í öllu
lá og töldu eigendumir þá að
allt værikomiðilag.
En kvöld nokkurt, þegar
fólkið kom heim úr kvik-
myndahúsi, beið þess tilkynn-
ing um að árangurslaust hefði
verið reynt að afhenda hrað-
bréf frá Gjaldheimtunni. Þar
sem sjaldan er von á góðu úr
þeirri átt fór að fara um aum-
ingja fólkið og í bítið næsta
morgun hraðaði húsbóndinn
sér á pósthúsið og sótti bréfið.
Þar var þá komin ítrekun frá
skattayfirvöldum um að greiða
hið snarasta áfallna dráttar-
vexti af fasteignagjöldum fyrir
skúrana sálugu — kr. 32 —
þrjátíu og tvær! Kostnaður við
sendingu þessa mikilvæga
hraðbréfs var hins vegar kr.
20. Er aö furða þótt kerfið sé
dýrt í rekstri?
2 Vikan 32.tbl.