Vikan - 12.08.1982, Side 21
Framhaldssaga
Hún hallaði sér aftur á bak.
Hún hafði lokið við bókina A
Passage to India. Hún kveikti sér í
sígarettu. Þaö var allt of heitt.
Hún drap í henni aftur. Hún færði
sig svolítið framar svo að fót-
leggirnir voru í sólinni. Hér var
svo heitt að engum datt í hug að
fara í sólbað. Hún klóraði
moskítóbitið á leggnum. Hana
dauðlangaði til þess að úða gras-
flötina. Hana hafði alltaf langað
til þess að eiga garð. Fram að
þessu höfðu þau búið í tveggja
herbergja íbúö í Crouch End. En
mali-inn var að úða. Hann hafði
fært sig úr stað og sólskinið skein
í gegnum vatnsúðann. Hér um
slóðir þurfti ekki að hafa fyrir
því að hirða garðinn ef maður
yfirleitt hafði ráð á að eiga garð.
Et hún léti mali-ann fara yrði
hann atvinnulaus. Hún hafði með
hjálp wrdu-kennslubókarinnar
spurt hann að því hversu mörg
kitne — börn — hann ætti og
hann haföi talið átta á fingrum
sér. Það var tæpast þess virði að
fá aö vökva grasið og komast
þannig í snertingu við Pakistan.
„Getum við ekki farið eitthvað
út?” spurði hún Donald síðar.
„Ef þetta nýja digital-úr er rétt
eru nákvæmlega fimm mínútur
þangað til við förum svo fremi
við verðum ekki of sein.” Hann
hneppti skyrtunni. „Við höfum nú
tæpast verið heima, eða hvað.
Við fórum til Duke Hanson á
mánudaginn, til Charles og Rose-
mary Whatsit í gærkvöldi. Það er
nóg að gera.”
„Ég á við inn í sjálfa borgina.
Burt frá öllu þessu.” Hún stóð úti
við gluggann.
„I mannhafið þar sem þeir inn-
fæddu eru. Veistu um lyklana
mína?” Hann sneri sér brosandi
að henni. Hún hafði ekki áður séð
hann jafnhamingjusaman og
hann hafði verið þennan síðasta
hálfa mánuð. Hann var alltaf að
hringja heim úr vinnunni til þess
að vita hvort allt væri í lagi hjá
henni. „Ég er með hálfgert sam-
viskubit vegna þess að þú þarft
að vera hér allan daginn. Við
skulum fara í smáferðalag um
helgina og líta í kringum okkur.”
„Mig langar ekki bara að fara
og horfa á heldur taka þátt í
þessu öllu.”
Hann stóð við snyrtiboröið og
var að færa lykla og smápeninga
úr gömlu buxunum yfir í vasana
á þeim nýju. Hann var þrekinn,
með ljósan hárhýjung á hand-
leggjunum. Andlitið var hvers-
dagslegt og reglulegt. Það yrði
manni ekki minnisstætt nema
maður elskaði hann. Gerði hún
það enn? Hann var sólbrenndur á
nefinu og hún sömuleiðis. Þau
voru næsta lík. Fólk hafði oft
haldið að þau væru systkin.
Nú erum við ein, hugsaöi hún
með sér. Hér er nýtt land, nýr
himinn. Húsið var úr kalksteini,
með átta herbergjum og flötu
þaki. Þau voru með töskur fullar
af fötum og hér voru þau aðeins
tvö ein. Myndi þetta bæta hjóna-
bandið? Það hlaut að breyta því.
Sólin skein. Út um gluggann
var hægt að horfa á milli húsa
nágrannanna. I fimm kílómetra
fjarlægð lá borgin. Til vinstri
mátti sjá húsin í úthverfunum.
Þar fyrir handan lá eyðimörkin.
Það var búið að leggja vegina
sem þarna áttu að vera í fram-
tíðinni og þeir lágu eiginlega út í
buskann. Staurar höfðu verið
reknir niður til þess að merkja
fyrir byggingarlóðunum. Staur-
arnir voru orðnir upplitaðir í
birtunni. Þeir teygðu sig langt út
og settu sóðalegan svip á landið,
eins og allt væri ófrágengið. Enn
lengra í burtu mátti sjá Indlands-
hafið eins og silfurþráö.
Donald hafði alist upp við
hafið. Það var kyrrlátt haf.
Brinton, á Kent-ströndinni, var
ekki langt frá Broadstairs. Það
var sumardvalarstaður með
hlykkjóttum göngustígum við
ströndina og öllu öðru sem
slíkum stað tilheyrði. Gamlar
konur sátu í tehúsunum. Það
glitti í hafið meðfram sjávargöt-
unni á milli bílanna.
Þarna bjó hann með móður
sinni, afa og ömmu. Faðir hans
hafði fallið í stríöinu. Hann var
karlmaðurinn í fjölskyldunni.
Hann kunni vel að meta ábyrgð-
ina. Sem drengur hafði hann
verið alvarlegur og fullorðinsleg-
ur eftir aldri og átti litla samleið
með skólafélögunum. Hann hafði
alltaf flýtt sér heim til Durradee.
Sérstaklega hafði hann sótt til
afa. Afi var eins og faðir sem
aldrei var of upptekinn. Hann
var að því leyti ólíkur ömmu að
hann leit ekki út fyrir að eldast
neitt og mátti alltaf vera að því
að sinna drengnum, ólíkt því sem
var um móður hans sem þó var
honum mikils virði en var alltaf
úti að vinna eða upptekin við eitt-
hvað annaö. Afi var einasta
mannveran sem alltaf kom fram
við Donald eins og fullorðinn
mann, eins og karlmaður kemur
fram við annan karlmann. Hann
haföi gert flest sem hann mundi
eftir með afa sínum — farið í
gönguferðir út á klettana þegar
hann varð að flýta sér til þess að
hafa við afanum sem gekk á und-
an honum löngum skrefum.
Og afi hafði alltaf nógan tíma.
Hann hafði gegnt herþjónustu í
Indlandi og þess vegna komist
snemma á eftirlaun og bjó nú í
stóru húsi með verönd sem sneri
út að sjónum. Veröndin sneri mót
austri. Hann hafði nú orðið lítið
viö að vera annað en rifja upp
endurminningar liðinna ára sem
enginn vildi hlusta á, eins og
Donald komst að raun um þegar
hann stækkaði. Hann tók minja-
gripina sína frá herþjónustuárun-
um af veggjunum, pússaði þá og
setti þá upp aftur. „Allt þetta dót
rykast svo mikið,” sagði amma.
Hún talaði næstum aldrei um Ind-
land. Það var ekki hennar líf
heldur hans. Hún hafði aðeins búið
þar í þrjátíu ár áður en hún gat,
guði sé lof, snúið aftur heim til
gamla góða Englands.
Hann vissi hver Christinevar
löngu áður en hann hitti hana í
fyrsta sinn. Hann haföi séð hana á
tennisvellinum. Hún var sumar-
dvalargestur og vírnetið skildi
þau að á vellinum. Hún var í hvítri
skyrtu og felldu pilsi. Hunangslitt
hárið var tekið aftur og fest með
teygju í hnakkanum. Hún stökk
upp eftir boltanum. Hún var svo
sem ekki mikið öðruvísi en hinir
en samt tók hann eftir henni. Hún'
sló boltann hátt með léttum högg-
um og tók fyrir munninn til þess
að leyna því að hún gretti sig. Á
eftir lét hún fara vel um sig og
teygði úr fótleggjunum við borðið í
kaffihúsinu, ruggaði sér á stólnum
og saug pepsíið sitt í gegnum rör.
Næsta sumar talaði hann við
hana í fyrsta skipti. Hann hafði
gleymt henni um veturinn. Hún
hafði setið á trébryggjunni í blá-
röndótta sundbolnum sem átti
eftir að verða kunnugleg sjón. Hún
dinglaði fótunum. Hún var ein.
Hún var til í allt. Hún var fimmtán
ára.
Hann skellti sér í sjóinn og vildi
sýnast. Hún fylgdi á eftir, hopp-
andi og skoppandi eins og folald,
og skrækti svolítið. Hún buslaði í
sjónum en hann tók virðulegri
sundtök til þess að sýna henni
hvað hann gæti. Þegar hún steig á
land í fjörunni var hún skjálfandi
og í einum kút, með gæsahúð á fót-
leggjunum. Hún sýndist grennri
og minni en áður en hann þorði
ekki aö þurrka henni. Hann lang-
aði óendanlega mikið til þess.
Þess í stað rak hann upp gól og
þau hlupu af stað eftir sandinum
og tóku undir sig stór stökk.
Hún var þarna með foreldrum
sínum og Joyce systur sinni. Á
hverju ári leigðu þau sér sumar-
hús. Hann sniglaðist í kring, sautj-
án ára og hálfklunnalegur. Þau
fóru í gönguferðir út á klettana.
Hann greip í hönd hennar þegar
leiðin var erfiðust yfirferðar en
sleppti henni aftur þegar þau voru
komin á öruggan stað. Hún rólaði
sér í barnarólunum. Hann var
hálfringlaður yfir henni en þorði
ekkert að gera. Ef hann snerti
hana myndi það breyta henni í
vinkonu hans. Síðan hlyti þetta
einhvern tíma að taka enda.
Þau voru ekkert að hafa fyrir
því að skrifa. Þessi Lundúna-
Christine, dúðuð í ullarfatnað sem
hann hafði aldrei séð, var jafnæs-
andi fyrir hann og Christine í
sundfötum hlaut að vera í huga
keppinauta hans í borginni sem
aöeins höfðu séð hana fullklædda.
Um veturinn sat hann stundum í
gluggakistunni í Durradee með
skólabókina á hnjánum og regnið
streymdi niður eftir rúðunni.
Næsta sumar sá hann hana fara
inn í söluturninn og koma út aftur
með sígarettu í munninum.
Þetta var árið sem hann kyssti
hana í fyrsta skipti í fiskasafninu.
Hún hafði staðið upp við grindurn-
ar og hann kyssti þurrar varir
hennar á meðan álarnir hringuðu
sig fyrir aftan þau. Eftir það höfðu
þau oft látið vel hvort að öðru en
þó aldrei nema í kvikmyndahús-
inu eða á álíka stöðum. Þau voru
kærustupar í myrkrinu en ósköp
venjuleg þar fyrir utan. Hann vildi
ekki ganga lengra. Hann vildi ekki
eyðileggja þetta samband þeirra.
Næsta ár fór hann til London í
vinnu sem lærlingur hjá Cameron.
Hann kynntist öðrum stúlkum, en
Christine var öðruvísi. Þá um
sumarið kom hún aftur en nú virt-
ist hún vera einhvern veginn inni-
lokaðri þegar hún gekk eftir
ströndinni og sparkaði í steina og
stundi út af foreldrum sínum.
Hann var eins og einn úr f jölskyld-
unni nú orðið. Honum fannst þess
vegna að kvartanir hennar næðu
til hans sjálfs. Hún ætlaði aö fara í
háskóla um haustið. Kossar þeirra
voru enn heitir en fullkomlega sið-
samir. Honum fannst hann sjálfur
vera uppburðarlítill og leiðin-
legur. Stundum hreytti hún ein-
hverju í hann og hann vissi ekki
hvað hann átti að gera. Hann lang-
aði til þess að þrífa í hana og taka
hana með valdi en um leið langaði
hann til þess að vernda hana frá
fólki eins og honum sjálfum. Hún
átti sitt leynilega líf sem hvorki
hann eða foreldrar hennar fengu
32. tbl. Vikan 21