Vikan


Vikan - 12.08.1982, Side 50

Vikan - 12.08.1982, Side 50
E/dhús Vikunnar Umsjón: Veitingahúsið Drekinn Laugavegi Reykjavík Matreiðsla: Tran Nghi Chieu (Kári), sem er matargerðarmaður í fimmta ættlið, og Cuong Quoc Du (Karl). Báðir eru kínverskir að ætt og uppruna en komu til íslands sem flóttamenn frá Víetnam. krabbasúpa Oll mál ad eigin smekk. Trjónu- Kjúklingapottsteik Peking 2 trjónukrabbar, nýveiddir og lifandi Ijóst kjötsoó pipar strásgkur sesamolía salt rjómi sítróna og/eða sítrónusafi tómatpuré saltti afvodka og/eða hvítvíni marið hvítlaukslauf eða hvítlauksduft ostrusósa. Krabbinn er hreinsaður og þveginn mjög vel, síðan hlutaður í sundur með stórum hníf. Ysti hluti klónna og miðja búksins er ekki notað en allt annað er soðið í kjöt- soðinu með kryddinu. Eftir ca 10—15 mínútna hæga suðu er soðið jafnað með smjörbollu og að endingu kryddað með sítrónu- safanum, víninu, þriðja kryddinu og hinu og þessu sem ykkur dettur í hug að gæti verið til bóta. Þessi súpa er mjög matarmikil því aðalsælgætið er í krabbanum sjálfum. Best er þessi súpa þegar hún er löguð daginn áður og síðan hituð upp. Borin fram með hvítu brauði, gjarnan söltuðu, þeyttur rjómi og sítrónubátar notað sem skreyting. Fyrir 4 svanga þarf 2 væna kjúklinga eða samsvarandi magn af kjúklingalærum og leggjum sem er betra að nota því þá má nota bringurnar sér í annaö. Tómatpuré matarolía saxaðurlaukur mulinn anis, fœst í apótekum, salt engifer sgkur sesamolía Hoi-Sin sósa ostrusósa pipar muldar salthnetur smjörbolla hvítlaukslauf eða -duft hvítvín gott kjötsoð kjötkraftur þriðja krgddið. Kjúklingurinn er höggvinn í 8—10 bita, þveginn vel og þerraður, síðan er hann brúnaður vel í olíunni, tekinn upp úr og tómatpuréið og laukurinn ljósbrúnað í sömu olíu og sama potti. Síðan er kjötsoðið sett út í og svo kryddið hvert af öðru. Þegar þið hafið fengið það bragð sem ykkur líkar — anisbragðið á að vera áberandi í þessum rétti, þó ekki um of — þá jafnið þið soðið með smjör- bollunni og bragðbætið síðan enn betur eftir ykkar smekk. Þegar þið eru ánægð með árangurinn setjið þá kjúklingabitana út í og látið þá malla í sósunni, sem ekki má vera of þykk, í ca 10—20 mínútur við mjög hægan hita. Borið fram með soðnum, hvítum hrísgrjónum og fersku grænmeti og með svona bragðmiklum mat er sjálfsagt að drekka gott kínverskt matarte. 50 Vikan 32. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.