Vikan - 09.02.1984, Side 10
6. tbl.—46. árg. 9.—15. febrúar 1984.—Verð 90 kr.
GREINAR OG VIÐTÖL:
4 Háraenning í Dælustöðinni — breska borgin Bath heimsótt.
12 Menn sem týna dellum — viötal við Árna Þ. Jóns- son í París.
16 Lögin í Gísl hafa sjúskast á langri leið.
38 Þar til dauðinn aðskilur — Vikan og tilveran.
50 Er geimurinn óendanlegur?
60 Þarmagustarnir — popp.
SÖGUR:
18 Á kláfi yfir ána — smásaga.
26 Hinsta gervið — spennusaga.
40 Gamli, góði jakkinn minn — Willy Breinholst.
42 Morð í Zanzibar — framhaldssaga.
58 Rauði haninn hann Robbi — barnasaga.
ÝMISLEGT:
6 Tími grímubúninganna.
8 Af mælisgetraunin.
22 Sebra — heit sem Afríka — handavinna.
24 Terta við hæfi Bretadrotitningar — eldhús Vik- unnar.
25 Vikan og heimilið.
28 Vetrarmyndir fyrir 1. mars.
31 Líkamsrækt: æfingar til að bæta brjóstin.
36 Elizabeth Arden — snyrting.
VIKAN: Útgefandi Frjóls fjölmiölun hf. Ritstjóri: Siguröur Hreiöar Hreiöarsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Hrafnhildur Sveinsdóttir. Blaöamenn: Anna Ólafsdóttir
Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Jón Asgeir Sigurðsson, Þórey Einars-
dóttir. Útlitsteiknarar: Eggert Einarsson og Páll Guðmundsson. Ljósmyndari:
RagnarTh. Sigurðsson.
RITSTJÖRN SÍÐUMULA 33, sími 27022.
AUGLÝSINGAR: Geir R. Andersen, sími 85320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING í Þverholti 11, sími 27022, pósthólf 533. Verð í
lausasölu 90 kr. Áskriftarverö 295 kr. á mánuði, 885 kr. fyrir 13 tölublöð árs-
fjórðungslega eöa 1.770 kr. fyrir 26 blöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyr-
irfram, gjalddagar nóvember, febrúar, maí og ógúst. Áskrift í Reykjavík og
Kópavogi greiðist mónaðarlega.
Um mólefni neytenda er fjallað í samróði við Neytendasamtökin.
VERSLAUNAHAFINN
Berglind úr Njarövík sendir
Hafnarfjarðarbrandarasyrpu í
sarpinn. Viö þökkum fyrir og hún
fær næstu fjórar Vikur heim.
Hafnfiröingur fann haug af
mjólkurfernum úti á víöavangi.
Hann flýtti sér heim og sagði öll-
um aö hann heföi fundiö belju-
hreiöur.
Hafnfirðingur, sem haföi
drukkið heldur mikið á samkomu,
kom heim undir morgun. Hann
velti lengi fyrir sér hvernig hann
gæti komist upp stigann og upp í
ból án þess að konan heyrði.
Skyndilega datt honum snjallræði
í hug. Hann batt saman alla potta
og pönnur sem hann fann á heimil-
inu og dró síðan allt draslið upp
stigann og hugsaði með sér: Hún
heyrir aldrei fótatak mitt í gegn-
um allan hávaðann.
Þegar Hafnfiröingar fengu
nýja slökkvibílinn var boöað til
blaðamannafundar. Einn blaða-
maður spuröi slökkviliðsstjórann
hvað gert yrði við gamla slökkvi-
bílinn.
— Tja. . . ætli hann veröi ekki
bara notaður í platútköll, sagði
hann.
Og svo var það Hafnfirðingur-
inn sem kom til læknis og sagði
áhyggjufullur: Við hjónin getum
ekki átt barn.
— Það sagði ég ykkur fyrir
löngu, sagöi læknirinn.
— Já, en okkur var að detta í
hug hvort þetta gæti gengið í
erföir.
Ungur Hafnfiröingur var að inn-
rita sig í Háskóla Islands. Hann
hitti rektor og þeir tóku tal saman.
Rektor sagði: — Jæja, ert þú bú-
inn að velja þér grein:
— Hva, fæ ég ekki stól eins og
hinir? spuröi Hafnfirðingurinn.
Hafið þið heyrt um Hafnfirðing-
ana sem létu taka af sér mynd?
Ljósmyndarinn bætti ruslafötu
á myndina, hann langaði til að
hafa eitthvað fallegt á myndinni.
Svo er hér einn að lokum:
Hafnfirðingur og Reykvíkingur
voru í greindarvísitöluprófi.
— Hvaða fugl býr ekki til sitt
eigiö hreiöur? spurði dómarinn.
— Kanarífuglinn, svaraði
Reykvíkingurinn.
— Gaukurinn, svaraði Hafn-
firðingurinn.
— Mjög gott, sagði dómarinn
við Hafnfirðinginn. En hvernig
vissirðu þetta?
— Allir vita aö gaukurinn á
heima í klukku, svaraði vinurinn.
KONUNGLEGA ?
Herramennirnir tveir sem
þarna klofa svo konunglega —
eða skrefa — yfir götu í
Lundúnum hafa að sögn ekki
átt í erfiðleikum með að
krækja í hitt kynið. Ef sá til
hægri væri strákur úr Fjöl-
braut í Breiðholti og hinn bók-
ari hjá Hagkaupum myndi
kannski einhver segja að hálf-
gerður hallærissvipur væri á
þeim félögum. En þarna eru
Davíð sonur Margrétar prins-
essu og sjálfur Kalli Breta-
prins og þá snýr málið öðruvísi
við —eða. ..?
Það sem skiptir meginmáli eru ekki mennirnir í
lífimínu. . . heldurlífiðímönnunummínumll
Mae West.
xo Vikan 6. tbl.