Vikan


Vikan - 09.02.1984, Side 11

Vikan - 09.02.1984, Side 11
Mæðgurnar Linn og Liv Ullmann hafa alla tíð verið mjög samrýndar. Liv er nú 44 ára gömul og Linn er ekkert smábarn lengur. Hún er 17 ára og þegar hálaunuð ljósmyndafyrirsæta í New York. Hún býr enn heima hjá móður sinni en dreymir um að flytja í eigin íbúð. Liv hefur oft látið þess getið í viðtölum að dagurinn sem Linn fæddist hafi veriö sá besti í lífi hennar og hún hefur alltaf látið sér mjög annt um dóttur sína og verið hreykin af henni. Lífiö sem einstæð móðir hefur þó ekki alltaf verið auðvelt þó svo að ekki hafi hún þurft að hafa fjárhagsáhyggjur. Leikferill hennar hefur krafist mikilla ferða- laga og fjarvista frá dótturinni, sem valdið hefur henni samvisku- biti og sálarkvölum. Faöirinn, leikstjórinn Ingmar Bergman, hefur ekki haft mikið af uppeldi dóttur sinnar að segja en þó boðið henni reglulega aö heimsækja sig á eyna Fárö. Þar hefur Linn hitt hálfsystkin sín og átt góða daga en alltaf snúiö aftur til New York og mömmu. Liv hefur átt í ýmsum ástarævintýrum frá því að hún skildi við Ingmar Bergman og alltaf hefur það verið fyrsta spurningin „hvernig skyldi þessum og Linn koma saman?” Ástarævintýrin hafa þó öll varað stutt og Linn lært að taka þeim af skynsemi. I sorgum og gleöi hafa þær stutt hvor aðra og Liv segir dótturina endalausa uppsprettu lífsgleðinnar. Stundum hefur þó kastast í kekki á milli mæðgnanna eins og gengur og einkum hefur Linn reiðst þegar Liv hefur verið að tala opinskátt um hana og sam- band þeirra í fjölmiðlum. Linn vill sýna og sanna að hún getur staöiö á eigin fótum og aö hún þurfi ekki á frægð foreldra sinna aö halda. Þaö hefur án efa ekki sakaö í hennar tilfelli að bera frægt ættar- nafn. Hún er engin feguröargyðja, stúlkan sú, en virðist hafa rétta útlitiö fyrir tískubransann og bein í nefinu. Af Liv er það helst að frétta nú að hún eyðir öllum tómstundum í vinnu fyrir Barnahjálp Samein- uðu þjóöanna en gefur sér samt tóm til að bregða sér á dansstað með nýja kærastanum. Hann heitir Niels Laursen og er frægur kvensjúkdómalæknir. Hann er mikill eftirlætislæknir kvik- myndastjarnanna og hefur skrifað bók sem heitir It’s Your Body og er nokkurs konar bib.lía banda- rískra kvenna Bandaríska mánaöarritið „Playboy”, sem margir karlmenn kaupa „út af viðtalinu” eða „smá- sögunni”, hefur nú uppgötvað að það er til fleira kvenfólk í heimin- um en 18—20 ára menntaskóla- stelpur. Öldungis nauðsynlegt telja eig- endur tímaritsins að breyta 30 ára gömlum ritstjórnarhugmyndum um konur sem „leikfélaga” í mat á konum sem „áhugaverðum, full- veðja einstaklingum”. Þessu til fulltingis (og með hliösjón af ört fækkandi áskrifendum og auglýsendum) fékk „Leik- drengurinn” (Playboy) leikkon- unan Joan Collins til að sýna fagran og fimmtugan kropp sinn á síðum desember-tölublaðsins síðasta. 6. tbl. Vikan 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.