Vikan - 09.02.1984, Síða 11
Mæðgurnar Linn og Liv
Ullmann hafa alla tíð verið mjög
samrýndar. Liv er nú 44 ára
gömul og Linn er ekkert smábarn
lengur. Hún er 17 ára og þegar
hálaunuð ljósmyndafyrirsæta í
New York. Hún býr enn heima hjá
móður sinni en dreymir um að
flytja í eigin íbúð. Liv hefur oft
látið þess getið í viðtölum að
dagurinn sem Linn fæddist hafi
veriö sá besti í lífi hennar og hún
hefur alltaf látið sér mjög annt um
dóttur sína og verið hreykin af
henni. Lífiö sem einstæð móðir
hefur þó ekki alltaf verið auðvelt
þó svo að ekki hafi hún þurft að
hafa fjárhagsáhyggjur. Leikferill
hennar hefur krafist mikilla ferða-
laga og fjarvista frá dótturinni,
sem valdið hefur henni samvisku-
biti og sálarkvölum. Faöirinn,
leikstjórinn Ingmar Bergman,
hefur ekki haft mikið af uppeldi
dóttur sinnar að segja en þó boðið
henni reglulega aö heimsækja sig
á eyna Fárö. Þar hefur Linn hitt
hálfsystkin sín og átt góða daga en
alltaf snúiö aftur til New York og
mömmu. Liv hefur átt í ýmsum
ástarævintýrum frá því að hún
skildi við Ingmar Bergman og
alltaf hefur það verið fyrsta
spurningin „hvernig skyldi
þessum og Linn koma saman?”
Ástarævintýrin hafa þó öll varað
stutt og Linn lært að taka þeim af
skynsemi. I sorgum og gleöi hafa
þær stutt hvor aðra og Liv segir
dótturina endalausa uppsprettu
lífsgleðinnar. Stundum hefur þó
kastast í kekki á milli mæðgnanna
eins og gengur og einkum hefur
Linn reiðst þegar Liv hefur verið
að tala opinskátt um hana og sam-
band þeirra í fjölmiðlum. Linn vill
sýna og sanna að hún getur staöiö
á eigin fótum og aö hún þurfi ekki
á frægð foreldra sinna aö halda.
Þaö hefur án efa ekki sakaö í
hennar tilfelli að bera frægt ættar-
nafn. Hún er engin feguröargyðja,
stúlkan sú, en virðist hafa rétta
útlitiö fyrir tískubransann og bein
í nefinu.
Af Liv er það helst að frétta nú
að hún eyðir öllum tómstundum í
vinnu fyrir Barnahjálp Samein-
uðu þjóöanna en gefur sér samt
tóm til að bregða sér á dansstað
með nýja kærastanum. Hann
heitir Niels Laursen og er frægur
kvensjúkdómalæknir. Hann er
mikill eftirlætislæknir kvik-
myndastjarnanna og hefur skrifað
bók sem heitir It’s Your Body og
er nokkurs konar bib.lía banda-
rískra kvenna
Bandaríska mánaöarritið
„Playboy”, sem margir karlmenn
kaupa „út af viðtalinu” eða „smá-
sögunni”, hefur nú uppgötvað að
það er til fleira kvenfólk í heimin-
um en 18—20 ára menntaskóla-
stelpur.
Öldungis nauðsynlegt telja eig-
endur tímaritsins að breyta 30 ára
gömlum ritstjórnarhugmyndum
um konur sem „leikfélaga” í mat
á konum sem „áhugaverðum, full-
veðja einstaklingum”. Þessu til
fulltingis (og með hliösjón af ört
fækkandi áskrifendum og
auglýsendum) fékk „Leik-
drengurinn” (Playboy) leikkon-
unan Joan Collins til að sýna
fagran og fimmtugan kropp sinn á
síðum desember-tölublaðsins
síðasta.
6. tbl. Vikan 11