Vikan - 09.02.1984, Side 14
■ mjög opið form í kennslu krefst mikils snidgengid heilu kúrsana í burðarþolsfrœði
sjálfsaga og það er ekkert sniðugt að geta og einangrun... ”
Þaö er landlægur misskilningur
hérna, er ég hræddur um, að
skipting eigi aö vera mjög skörp
milli arkitektúrs hvað varðar
innra og ytra útlit hússins. Karlar
sem mikiö er vitnað til í dag, eins
og til dæmis Mackintosh, gerðu
allt aðra hluti. Hann á mörg
heimsfræg meistaraverk sem
hljóta að verða að teljast sígild
dæmi um skoöanir hans og stefnu
á þvísviöi.
Enginn má láta sér til hugar
koma að arkitekt sé eins konar
leiktjaldasmiður. Segi: ,,Hér á að
vera hús — gott — og þá geri ég
einhverja grind að því og set
glugga og huröir hér og hvar.”
Bara það atriði að setja glugga og
hurðir á rétta staði er meginatriði
í slíku máli. Það getur skipt
sköpum um notagildi hvernig
ljósið kemur inn og á hvaða stað
er hægt að komast inn í herbergi.
Mynd uppi á vegg — fyrir ofan
arin til dæmis — skiptir kannski
ekki meginmáli. En hins vegar
hlýtur staðurinn þar sem þú lifir,
elur upp börn, skemmtir þér og
gerir fleira sem fylgir því að lifa,
að skipta miklu. Fallegir hlutir
eru góöra gjalda verðir en séu þeir
hagnýtir í leiöinni er ánægjan
margföld.”
Hafa skal það
sem hendi er næst
„Það er skylda hvers arkitekts
aö nýta þau byggingarefni sem til
eru á hverjum staö. Sá sem gerir
sig sekan um að hanna hús sem út-
heimtir mikla og dýra flutninga á
efni milli staða hefur aö mínu
mati ekki staðiö í stykkinu. Við
getum unnið úr íslensku bygging-
arefni og eigum að reyna það eins
og hægt er. Steypa er til dæmis eitt
af því sem okkur hentar vel. Og
vikur er efni sem mætti hafa í
huga í framtíöinni. Þaö veröur að
taka tillit til þess að þetta er mjög
ungt land jarðfræðilega og við
höfum til dæmis ekki marmara og
þess háttar þannig að slík efni
þarf að flytja inn og þau eru þung í
flutningum.
I skólanum úti eru byggingar-
efnin mikiö atriði og þau eru
kannski svolítið önnur en hér eru
notuö. Hérna þurfum við til dæmis
aö hafa í huga jarðskjálftahættu
— reyndar er sama hvaða
byggingarefni er notaö — alltaf
þarf að hafa í huga aö vissum skil-
yrðum sé fullnægt. Við eigum
Þegar viðtal VIKUNNAR við Árna í Paris var tekið stóð einmitt yfir prófsýning á verkum nemenda I' École
d'Architecture de Paris Conflans. Myndin er tekin á sýningunni og fyrir framan Árna er likan hans af tón-
listarskóla eftir franska arkitektinn Christian De Portzamparc.
14 Vikanfc. tbl.