Vikan


Vikan - 16.05.1985, Blaðsíða 60

Vikan - 16.05.1985, Blaðsíða 60
Háhýsin flækjast þama ekki fyrir fótum manna. Þetta er með reisulegri húsum 6 staðnum og i forgrunni eru Margrét Guðjónsdóttir flugfreyja hjá Amarflugi og Anna Ingvadóttir hlaðfreyja Amarflugs í Amsterdam. „Hugvólin" sem flutti okkur út f eyju. Margrét er i inngöngunni f fylgd mik- ils vinar Amarflugsmanna é flugvellinum i Habana — Kúbanans Oswaldo. rennt í flýti um miðja nótt með leigubíl til höfuðborgarinnar Habana — en þaðan er ferð yfir á ævintýraeyjuna eldsnemma næsta morgun. Flugvél eða . . . ? Mikið er hægt að láta sig dreyma og hlakka til þess að gera eitthvað óvænt, sérstaklega þegar útlit er fyrir að alls enginn mögu- leiki reynist á að láta drauminn rætast. Minn draumur rættist með aðstoð Oswaldos sem er flug- vallarstarfsmaður á vellinum í Habana. Hann er með eindæmum hrifinn af íslendingum og ekki spillir að vera á vegum Amar- flugs. Samferðamaðurinn, Magga flugfreyja, uppfyllti bæði umbeðin skilyrði og snemma morguns vorum við á leið út í ævintýraeyj- una Cayo Largo. Að vísu — þegar við nálguðumst farartækið sem átti að flytja okkur þangað sagði sú sem meira vit hefur á málum flugi viðkom- andi: „Heyrðu annars — ég veit ekki hvort maður ætti að þora aö stíga um borð. Fyrir framan okkur stóð rússnesk flutningavél síðan í fomöld, stór og ryðgaður næstum gluggalaus belgur. Eina sjáanlega opiö var að aftan, rétt undir stélinu og göngubrú úr tré upp á við. Fyrstu viðbrögð voru aö telja vængi, sem reyndust tveir eins og á flestum hlutum sem til slíkra nota eru ætlaðir, athuga hvort ekki væri einhver belgur og pláss fyrir flugmann. Þetta reynd- ist allt á sínum stað og því var næst aö sannfæra þann sem meira vissi um flugtækni um að auðvitað væri allt í lagi. Inni var dimmt vegna glugga- leysisins og sætin minntu helst á gömlu skíðasleðana. Sætunum var rennt inn í undarlegar brautir. Alls kyns tengi úr lofti færðu far- þegum heim sanninn umaðþama hefði stundum þurft að festa vopn og fleira miður þokkalegt. Til ævintýraeyjunnar komumst við slysalaust og þar tók við sann- kölluð paradís á jörðu. Næstum engar byggingar, farið á milli eyj- anna í bátum og síðan einungis strákofar og ströndin svo langt sem augað eygir. Þama er Karíbahafið eins og það gerist best, sandurinn á ströndinni fín- gerðari en gengur og gerist í Karíbahafinu. Tilfinningin — að synda næstum eins og aumingja Palli sem allt í einu varð einn í heiminum — er ólýsanleg. Ekki sakar að geta þess að mengun á staðnum er hverfandi, ólíkt öðrum eyjum á sömu slóðum fyrir utan Kúbu. Kannski hefur Kastró Habana aftur virðist allt sem fjar- lægur draumur — og ennþá fjar- lægara að yfirgefa Kúbu síðdegis næsta dag. Kúbuflýtir Að morgni síðasta dagsins á Kúbu var ákveðið að fara út fyrir Habana — að skoða hús Heming- ways. Þar hefur engu verið hreyft síðan rithöfundurinn gekk þaðan út, fór til Bandaríkjanna og stytti sér aldur. Núna er húsið orðið að safni sem bæði Kúbanir og erlendir ferðamenn heimsækja ennþann dagídag. Samfylgdarmaður minn verður að þessu sinni Chris Murr sem hefur ákveðið að koma eld- snemma frá Varadero. Hann sleppir því að taka bílinn sem flytur farþega ferðaskrifstofanna Pegasus og Mandadori beint út á flugvöll. I stað þess ætlar hann aö í Varadero er hægt að leigja ýmis farartæki. Þetta eru reiðhjólin sem um er að ræða — örugglega siðan fyrstu árin eftir byltingu. Greinarhöfundur með Chris Murr, starfsmenni Airbro í London. bjargað Kúbu því þar væru örugg- lega eyðileggjandi háhýsi við strendumar ásamt öðru sem spill- ir umhverfinu. Afbrot eru tíð á ná- grannaeyjunum en þekkjast varla á Kúbu. Og líklega er Habana eina stórborg í heimi þar sem þú getur gengið um án þess að óttast árásir, hvort sem er á nóttu eða degi. Ef þú hins vegar dvelst á baðströnd eru Italimir í sérflokki. Þama eru ítalskir ferðamenn sem margir eru orðnir þekktir fyrir þjófnaði og fleiri afbrot þegar þeir sleppa undan eftirliti fararstjóra. „Varaðu þig á Itölunum,” segja Kúbanir og hafa nokkuö rétt fyrir sér. Kúbanir virðast alls ekki láta sér fljúga í hug sá möguleiki að ræna erlenda gesti. Á Cayo Largo er dvalið í einn dag og eyjan kvödd með söknuði. Þegar flugið er tekið í stefnu á taka áætlunarbílinn sem fer á nokkurra tíma fresti milli Habana og Varadero. Honum er ráðlagt af einum innfæddra að vera tíman- lega á staðnum og til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig leggur hann af stað kvöldið áður til þess að kaupa miða. En, nei — kerfið er öðruvísi — á morgun skaltu koma og sækja um leyfi til aö kaupa miðann. Hann er mættur um morguninn — eldsnemma — leggur af stað frá hótelinu um sexleytiö. Þegar á stöðina kemur er álitleg röð — allir bíða eftir leyfi til að fá að kaupa miða í vagninn. Og afgreiðslufólk er ekkert að flýta sér á Kúbu þannig aö þetta tekur sinn tíma, mörg skjöl og pappírar sem þarf að útfylla. Loksins stend- ur hann með leyfið í höndunum og þá liggur leiðin í næstu röð. Þar 60 Vikan 20. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.