Vikan - 01.08.1985, Side 7
Veðurskip Metró, öðru nafni Polar Front.
Veðurskip Líma:
„Veðurskip Líma
statt á 57 gráðum
norður og 20,1
gráðu vestur. .
mánaðarins og kl. er þrjú eftir
hádegi. Ég mæli veðurhæð í hnút-
um (03154) Ég er statt á 57 gráðum
norður og 20,1 gráðu vestur (99570
70201). Segi þér ekki úrkomu og
veðurorð en hins vegar bæði skýja-
hæð og skyggni (42598). Ský hylja
7/8 hluta himinsins þessa stundina,
vindur er 170 gráður og 10 hnútar
(71710)."
Fleira upplýsti Líma en þar sem
miklu nýrri fréttir eru af henni á
degi hverjum er ástæðulaust að
fjölyröa meira um hjal hennar á
þriðja degi júlímánaðar 1985.
Líma ekki eitt skip
Þrjú önnur veðurskip senda að
jafnaði veðurfréttir til Veður-
stofunnar á degi hverjum. Veður-
skip hófu störf á Norður-Atlants-
hafinu snemma á stríðsárunum,
árið 1940. Fyrsta árið var aðeins
eitt skip í veðurmælingum en í
stríöslok voru þau orðin hátt í 20
talsins. Eftir stríð var samkomu-
lag gert milli þjóðanna við
Noröur-Atlantshaf um rekstur
þrettán veðurskipa (sjá kort) og
skiptu löndin með sér rekstri
þeirra. Hvert skip átti sinn
ákveðna stað á kortinu og þó þau
yrðu þekkt undir ákveðnum nöfn-
um var það í rauninni staðurinn
sem þau tóku nafn sitt af, en skip
með ýmsum heitum voru á bak viö
nafnið. Nú eru veðurskip á fjórum
stöðum á Atlantshafinu, á stöðum
sem auðkenndir eru með bókstöf-
unum C, L, I og M. Líma er í raun
mörg skip sem heita jafnmörgum
nöfnum en senda frá stað nálægt
þar sem I-skipinu var fundinn
staður 1946. Þaö er aðeins M-skip-
ið (veöurskip Metró) sem tollir
nokkurn veginn alltaf á sama stað
en heitir alls ekki Metró heldur
Polar Front, er norskt að uppruna
og var sérsmíöað til veðurrann-
sókna um 1977. Það var ekki til
viðtals daginn sem Vikan skrapp
upp á Veðurstofu, hefur kannski
skroppið í slipp, en hins vegar
tókst að fá mynd af því.
Loftbelgir,
dufl og gervihnettir
Auk þeirra mælinga sem Veður-
stofan nýtur góðs af mæla veður-
skipin margt fleira, frá þeim eru
loftbelgir sendir upp í háloftin og
önnur tól í sjávardjúpin.
Gunnlaugur Kristjánsson sagðist
ekki telja að gervihnettir leystu
veðurskip af hólmi í bráð, eins og
leikmanni kynni að detta í hug.
Fækkun veðurskipanna frá 1946
má að einhverjum hluta rekja til
bættrar tækni í flugi og siglingum.
Auk þess hafa rekdufl til veð-
urathugana tekiö við sumum
hlutverkum skipanna og
nota þá gervitungl til fjar-
skipta. Flutningaskip sleppa þeim
í sjó á fyrirfram ákveðnum stöð-
um á leið sinni yfir hafið og síðan
berast merki frá þeim ásamt
staðarákvörðun í ákveðinn tíma á
Flestir landsmenn hafa áreiðan-
lega heyrt um veðurskipin. Hætt
er að fréttast af Bravó og Alfa
heyrir til einhverri óljósri fortíð
en Metró og Líma eru enn á floti
eftir því sem landslýður kemst
næst og af einhverjum fleiri fara
spurnir. Þau eru kunnugleg og við
fáum fréttir af þeim oft á dag, en
vitum svo ekkert um þau.
BBXX
C7L. . .
Vikan náði viðtali við veðurskip
Líma fyrir skömmu og það verður
að segjast eins og er að í fyrstu
var lítiö á því að græða. Allt og
sumt sem frá skipinu kom var
talnaruna. Vikan hóf viðtalið eins
og hvert annað vingjarnlegt sím-
tal: Hvað geturðu nú sagt okkur
um sjálft þig, hvað ertu, hvemig
er veðrið?
Veðurskip Lima: BBXX C7L 0315
995704259871710...
En með aöstoð túlks, Gunnlaugs
Kristjánssonar rannsóknar-
manns, komumst við að raun um
að þetta var í rauninni mjög
kurteislegt og hreinskilnislegt
svar. Efnislega á þessa leið: „Ég
er skip (BBXX). Þú mátt kalla mig
Lima (C7L). í dag er þriðji dagur
Staðsetning veðurskipanna 1946.
31. tbl. Vikan 7