Vikan - 05.09.1985, Page 7
kraftar leyfa. Golfiö er því kjörið
fjölskyldusport og þá ekki síður
tilvalið fyrir vini og vinnufélaga
að stunda saman. Áhuginn á golfi
hefur farið mjög vaxandi í seinni
tíð og ótrúlegustu menn, sem
aldrei hafa svo mikið sem hlaupið
á eftir strætó, eru allt í einu komn-
ir í golfið á fullu og meira að segja
farnir aö keppa á hinum og
þessum mótum (sem reyndar eru
oftast einhver mót innan fyrir-
tækja).
Það er kannski ljótt að segja það
en fyrst þessi og þessi geta spilað
golf þá hljóta allir að geta það,
hugsar maður með sér. Þar kem-
ur sennilega ein af ástæðunum
fyrir sívaxandi vinsældum íþrótt-
arinnar. Kvikni golfdellan skyndi-
lega og fyrirvaralaust í brjóstum
manna þurfa þeir ekki annað en
hafa samband við næsta golf-
klúbb. Golfklúbbar eru starfandi
víös vegar um landið og á öllum
helstu þéttbýlisstöðum er í það
minnsta einn. í öllum stærri
klúbbunum að minnsta kosti er
hægt að fá kennslu í grundvallar-
atriðum íþróttarinnar. Reglur
golfsins eru strapgar og mörg
Albúinn í slaginn mefl golfsettið, töskuna, kerruna, húfuna, hanska og i
golfskóm. Golfsettifl hór er af dýrustu gerð og allur útbúnaflurinn kostar
yfir 70 þúsund i Íþróttabúðinni, Borgartúni 20. En i alvöru talafl þá þarf ekki
nokkur byrjandi nándar nœrri svo mikinn og dýran útbúnað.
grundvallaratriöi sem menn
verða að kunna skil á.
Golf felst í því að slá harðan,
lítinn bolta með kylfu ofan í holur
á mislöngum brautum og í sem
fæstum höggum. Vellirnir eru
mismunandi stórir en holurnar
ýmist 9 eöa 18. Leikurinn hefst á
teig (teeing ground). Boltinn er
síðan sleginn inn á brautina en á
henni eru ýmsar náttúrlegar og
tilbúnar hindranir. Við hinn enda
brautarinnar er holan, sem kúlan
á að fara í, og umhverfis hana flöt-
in (putting green), snöggslegið
svæði. I golfi eru notaðar kylfur
með tréhausum (tré) til að slá kúl-
una langa vegalengd og kylfur
með járnhausum. Höggflöturinn á
kylfunum hallast mismikið aftur
eftir því hve hratt kúlan á að fara
upp í loftið og er númeraður eftir
því. Fullt sett eru 14 kylfur, tré
númeruð frá 1 (dræver) til 4, járn
frá 1 til 10 (veds), og svokallaður
púttari.
Það er því nauðsynlegt að fá til-
sögn til þess að geta verið með og
hafa það ekki á tilfinningunni að
maður þvælist bara fyrir með fína
golfsettið sitt í eftirdragi og eigi
það á hættu að verða meðhöndlað-
ur eins og hver önnur hindrun á
vellinum. Hins vegar þurfa menn
ekki mjög langan tíma til þess að
komast upp á lagið með grund-
vallartæknina til þess að geta far-
ið að æfa sér til ánægju, helst á
góðum æfingavelli í öruggri fjar-
lægð frá þeim æfðu og reyndari.
En síðan er það undir áhuga og
einbeitni hvers og eins komið hve
lengi hann er að komast í þeirra
hóp.
Sem dæmi má nefna aö Golf-
klúbbur Reykjavíkur í Grafarholti
býður upp á 6 tíma námskeið fyrir
byrjendur. Kennd eru grundvall-
aratriði íþróttarinnar klukkutíma
Ekta golfskór eru glansandi lakk-
skór mefl kögurtungu og minna
helst á ballskó ef ekki vœru gadd-
arnir neflan á. Einnig eru til venju-
legir íþróttaskór með tökkum, ætl-
aflir til golfleiks — nú, og svo er al-
veg hægt að vera i venjulegum
iþróttaskóm svona til að byrja mefl.
36. tbl. Vikan 7