Vikan - 05.09.1985, Blaðsíða 38
Ertu með stáltaugar
eða músarhjarta?
Sögur af hugrekki og hreysti hafa alltaf fallið í kramið
hjá íslendingum. En hversu hugrökk erum við sjálf
þegar á reynir í daglega lífinu? Gangið úr skugga um
það í þessu lauflétta persónuleikaprófi.
1. Lítiö barn er aö leika sér úti á
götu og bíll kemur æðandi og
virðist stefna beint á það. Þú
a. Æpir til barnsins að forða sér.
b. Hleypur út á götuna og baðar
handleggjunum í áttina að bíl-
stjóranum til merkis um að nema
staðar eða víkja.
c. Snýrð þér undan — getur ekki
afborið að horfa upp á svona
ógeðslegt slys.
d. Hleypur út á götuna og dregur
barnið á öruggan stað.
2. Þú uppgötvar að maki þinn hef-
ur átt vingott við aðra manneskju.
Líklega myndir þú
a. Ráðast að maka þínum og
krefjast þess að hann hætti þessu
dufli.
b. Ekki segja neitt en vona að
þetta líði hjá.
c. Gera þig sérlega aðlaðandi og
sexí og freista þess að vinna hug
makans aftur óskiptan.
d. Ráðast að vininum eða vinkon-
unni og biðja hann eða hana að
gjöra svo vel að láta þitt í friði.
3. Maður ógnar þér með byssu
eða hníf og heimtar af þér
peninga. Þú bregst við með því að
a. Gefa honum það sem hann fer
fram á — annað er of hættulegt.
b. Verða skelfingu lostinn og
missa stjórn á þér.
c. Reyna að tala hann til og láta
hann síðan hafa peningana ef það
ber ekki árangur.
d. Reyna að afvopna manninn ef
tækifæri virðist gefast til þess.
4. Einhver sem þú þekkir varla
hefur verið að breiða út andstyggi-
legar og ósannar kjaftasögur um
þig. Þú
a. Lætur sem þú vitir ekki af því.
Kjaftasögur eru ekki þess virði að
gert sé veður út af þeim.
b. Neitar áburðinum harðlega og
biður vini þína að gera það líka.
c. Hefnir þín með því að breiða út
sögur um sögusmettuna sjálfa.
d. Heimsækir sögusmettuna og
krefst þess að hún hætti þessu.
5. Logar standa út úr íbúð og þú
virðist vera fyrst(ur) á vettvang.
Þú
a. Gerir nágrönnunum viðvart og
lætur hringja á slökkviliðið.
b. Hringir sjálf(ur) á slökkviliðið.
c. Bíður dálitla stund og sérð hvað
ætlar að verða úr þessu. Slökkvi-
liðið er örugglega þegar á leiðinni,
hugsar þú.
d. Hleypur inn í húsið og bankar
upp á — þú vilt ganga úr skugga
um að enginn sé lokaður inni í
húsinu.
6. Þú hefur veitt sérlega aðlað-
andi manneskju eftirtekt en hann
eða hún virðist ekki taka neitt eftir
þér. Þú
a. Sérð til þess að þú komist
nálægt manneskjunni og vonar að
hún líti í áttina til þín.
b. Daðrar við hana hvenær sem
tækifæri gefst.
c. Biður vin eða vinkonu að bjóða
henni eða honum í fámennt sam-
kvæmi þar sem öruggt er að þið
komist ekki hjá aö sitja saman.
d. Hringir í manneskjuna og
býðurhenni út.
7. I hverju af þessu hefur þú tekið
þátt eða myndir örugglega gera ef
tækifæri byðist? Merktu við eins
mikið og þér sýnist.
a. fallhlífarstökk,
b. fjallgöngur,
c. kappakstur,
d. brimreiðar,
e. skíðastökk,
f. siglingar niöur straumhart
fljót,
g. að kanna óbyggðir eða frum-
skóga,
h. köfun,
i. úthafssiglingar á seglskútu,
j. svifdrekaflug,
k. dýfingarafháubretti,
l. bobsleðaferð.
8. Þú hefur komist að þvi aö ýmis-
legt sem vinnuveitandi þinn að-
hefst er býsna vafasamt og sið-
laust. Þú
a. Leitar þér að annarri vinnu.
b. Gerir ekkert. Málið er ekki þér
að kenna og þú vilt ekki fórna
starfinu.
c. Varar vinnuveitandann við.
d. Kemur upp um hann og ferð
ekkert í launkofa meö það.
9. Einhver sem virðist afbrýði-
samur, í andlegu uppnámi eða
sjúkur á geði ræðst á þig og reynir
að meiða þig. Þú
38 Víkan36. tbl.