Vikan - 05.09.1985, Blaðsíða 8
. . . og dúndurhögg.
í senn tvisvar í viku og kostar
svona námskeið 1000 kr.
Dýrlegt heilsubótarsport
Það er ekki nauðsynlegt að vera
í afburðaformi líkamlega til þess
að geta byrjað að iðka golf af
kappi. Menn geta byrjað á öllum
aldri. Þeir sem ætla sér að stunda
golf sem keppnisíþrótt þurfa að
sjálfsögðu ýmiss konar viöbótar-
þjálfun, rétt eins og aörir keppnis-
íþróttamenn. En fyrir þá sem
vilja hreyfa sig sér til ánægju og
heilsubótar er golfið ákjósanlegt.
Einn áhugasamur golfleikari
sagði: „Golfið er dýrlegt sport.
Það eru fáir sem nenna að labba
sér til heilsubótar því það verður
svo tilgangslaust. En í golfinu eru
menn um leið að glíma við ákveð-
in og skemmtileg verkefni og þá
fær hreyfingin einhvern tilgang.”
Golfinu fylgja miklar göngur.
Leiki menn til dæmis heilan hring
á 18 holu velli geta göngurnar orð-
ið allt að 10 km. Það tekur vitan-
lega tímann sinn en hafi menn
ekki tíma geta menn spilað 9 holur
eða æft ýmis atriöi.
Ekki má heldur gleyma félags-
skapnum sem menn fá í golfinu.
Oft fara nokkrir vinir eða ættingj-
ar saman „í holli” á golfvöllinn og
á eftir er slappað af í golfskálun-
um og rabbaö saman. En sá sem
ætlar einn og óstuddur í golfið get-
ur líka fundið sér einhverja til að
fá aö vera með í holli. Konur og
karlar spila oft aðeins við kyn-
Það má slaka á i tokin meö ýmsu móti.
systur sínar og -bræður en séu
menn aöeins á heilsubótar-
buxunum er ekkert því til fyrir-
stööu að konur og karlar spili
saman.
Útbúnaður
Það er erfitt að segja nákvæm-
lega til um kostnað við útbúnað og
þvíumlíkt. Golfsettið, sem náung-
inn á myndinni er með, kostar
60.700 kr., taskan 5.700 kr. og kerr-
an 5.300 kr. þannig að heildarverð-
ið er tæpar 72.000 kr. En enginn
byrjandi í golfi, og reyndar ekki
nokkur áhugamaöur, þarf á svona
dýru setti að halda. Það er ágætt
aö byrja með hálft sett sem fæst
frá bilinu 7—8.000 kr. í búð. Það
getur einnig veriö ráð aö kaupa
notað golfsett sem síðan er hægt
aö selja aftur eða bæta við eftir
þörfum. Það er eins með þetta og
svo margt annað að það er engin
þörf fyrir hin mismunandi tæki
fyrr en maður getur notað þau og
er farinn að ná tökum á fínni blæ-
brigðum íþróttarinnar. Til eru
sérstök kvennasett meö styttri og
léttari kylfum en að öðru leyti
eins. Sömuleiöis eru fáanleg
barnasett fyrir þá yngstu.
Golfgallinn
Hér á árum áður var til nokkuð
sem kallað var „golftreyjur”,
stytt í gollur, og voru hnepptar,
ermalangar peysur með vaffháls-
máli. Þessar golftreyjur eru
komnar frá breska golfaðlinum og
voru hluti einkennisbúnings hans
ásamt hnébuxum eða pilsum. Nú
tíðkast hins vegar enginn sérstak-
ur búningur í golfinu. Venjulegir
æfingagallar af ýmsum gerðum
eru hentugur klæðnaður eða
bara ósköp venjulegar buxur og
peysa. Góðir íþróttaskór eru ágæt-
ir á fætur byrjendanna. Þegar
fram líða stundir geta menn fjár-
fest í sérstökum golfskóm með
göddum og kögurtungu eða
íþróttaskóm með tökkum.
Golfhanski (athugið: bara einn)
er til bóta en derhúfan eöa skyggn-
ið setja óneitanlega glæsilegan
svip á golfleikarann þar sem hann
sveiflar kylfunni úti á guðsgræn-
um golfvellinum.
8 Vikan J6. tbi.