Vikan - 05.09.1985, Page 15
vl. .r-iraKíio
Khanip^^^^ ,. ,
y
‘ r'GaÍ>ei. \
/)
>. (•/!
Iráklion
r MÓDHOS . >
J:; / V \
.M^'e
CPETE
(Gr )
t Si
b Hooud H
, Homro
° Ft. íallemand
l/.
(j Cr Ghudðroi
kllsratáh
•JjdO
Öair Bc«i Wolíd
ittiBuius 0nroín*li’i*).
4 f«G EOEYEN
JASSILI-N AJJER
HAMMÁZ^H
AjK
^ HAMRÁ
, SholjFjöt
_ Julmaythah J^%^_,^Dornon
*Al AKHDAR TubMJs - -
jhor.ltY' JTobriA)*
|jq b - ^ . -
jvn Nawfoliyoh ) BARQAH (CIREHAICA)
Ajdöbiyak^
^Sidi Barröni ALEXANDRI
JAl IskandarTyan
Al 'Alamajrn*^—n
'CA
klC 3'>g6 * n .1/, Al \Jaavlah'"B"'í^'ari0 at> Buroyqoh *. fc • -•-- _• - --•• -
V”’P* •; --. ?^-'■ - o/-, I : •/.. ......Vo\' . MuftKfttítB-(A1 Q5l
' ^ EAo'ödoh..* :. ..'-•** AIW\>OAffÁ^ÍN Al Fa'
^Vj-koqh ....or-.i... <►.- ., • • • • 1 >—•"..V‘Jl» |v-‘
V-,.,.. : *4--Í Aw"loh*-. f, UNITíD ARAB
’ • *: ' ;/,,'i»z(iijih L-r 2o,,o„ : L J B lY .A N •. , j*5?ai|
\ Polignac'
° /rV
o.dJK
t fyi’ . ■ *
r /-»í ‘J'/'.o'A
^*D|an^l (Ft. Chbrlet) ^
f A Z Z: í N
(FfZZM)
. . . • * *o . '•. *"»<*
..«**'* Mörit.q‘>
IDEHAN \
MURZUQ !
° Tarbú (
o
Wöu ol Kebir
SARlR
TIBASTI
Y A:
| ?j :
D E S
. (e e y p
R T
Al Jorirah •.
* • Buzaymoh
Rebiona
(Oosij) 0
?AI Jawf
1 GJif KEBIR
PIATEAU A’
ílitrbí foiw’o.
ioo,)/T
11 ,» »..• i . I- T*
°^o-tan Biihórah
(Oasis)
Bi'« Misöhoh Ash S
(Oosis) ° s
f l%
;p|.
. .
' AlSlAZaiNÍ)'.?■'-*..
- -■> ■ ; / uSr ' •
MonlwBogueNrf
*) / jk
ga'dí.o.v-- . .,V>.
Agade:
,V:..Ví:
- Tesiaoua
Bilrr
•Agodem
°'.«Oasis)
>, ÍOUMMA 4
snm /
/
•>WA.,k j •■
'4 '-),w"jv* |
‘BORK’O.t' -. v j
^'VVír4'';*rbJír'.. - \ [
lopelÉ;.. , ..•.••■•. w..,4..?Fo* ENNEDI t*
'Ni.
mgo Kébir
. . * ..<v-.-V..:,**T •- * • cnncui
nGo^
/ ./;.*!
--y\
.-AiV!
■*.— /•-••■?“>.? JL
v H • *u
\«# -
•’c
‘Fort-lomy'
’Óum Cholouba
H
i >
ANDARA
^Abéché ^_g £' vó . •• •. ?[
C' ‘'/v ' o * LS u’.i .*-.
QÚADDÁÍ f ^jEBfl/URRf ;
f'-’ tÍ:Wlf; —•
ppp'/f^/Í
— Kynntistu ibúunum?
Ég þekkti nú ekkert til araba
nema þetta en ég fékk alveg nóg.
Þaö er kannski heldur fruntalegt
að dæma heila þjóð svona, enda
eru undantekningar á öllu. Ég
kynntist ýmsum Líbýumönnum,
sumum ágætismönnum. Mér þótti
greinilegt að dökkir Líbýumenn
eru mikla skárra fólk en í Líbýu
búa bæði arabar og svertingjar.
Kynþáttafordómar eru töluvert
áberandi í Líbýu. Arabarnir líta
niður á þá dökku og það er lítið um
giftingar á milli þótt þetta sé ekki
opinber stefna. Þvert á móti —
Líbýumenn eiga að vera Líbýu-
menn, sama af hvaða litarhætti,
vegna þess að sameiginleg trúar-
brögð eiga að gera þetta að einni
þjóð.
Ég kynntist ágætismanni, hann
heitir Ramadan og vinnur við við-
hald á flugvélum. Ég þurfti að
leita til hans vegna viögerðar en
þegar ég kom á fund hans stóð
hann í þrasi við nokkra araba.
Hann sneri sér að mér og sagði:
„Ég veit hver þín vandræði eru.
Þau eru að í fyrsta lagi ertu
„bloody foreigner” og í öðru lagi
ertu „kristinn hundur”. En ég hef
líka mín vandræði, ég er „bloody
nigger” — við skulum bara koma
inn á skrifstofu til mín og fá okkur
te saman.” Við urðum meptu
mátar.
Ramadan var kolsvartur. Hann
hafði verið í Bandaríkjunum að
læra flugvirkjun og var einn af
þeim fáu sem hafði virkilega verið
að læra. Hann var maður fyrir
sinn hatt.
Þeir finnast sem sagt innan um,
en alltof fáir. Unga kynslóðin í
Trípólí, 16—20 ára unglingar,
rápar um göturnar og gerir aldrei
handtak. Meö sama fyrirkomulagi
gera þeir aldrei handtak, annað en
að verða eitthvert númer í hern-
um hjá Gaddafí, eða að fá
einhvern fallegan titil og sækja
sér 350—400 dínara á mánuði til
lífsviðurværis.
— Hve mikið er það?
Ja, þeir meta sitt gengi sjálfir
eins og austurblokkin, og það voru
3,5 dínarar fyrir hvern dollar.
Þetta er vanmat á dínarnum, ég
mundi giska á að hann ætti að
vera nokkuð jafn dollaranum,
einn á móti einum.
— Og þeir lifa góðu lífi af þessu?
Já, það kostar andskotann
ekkert að lifa þarna. Þeir fá
húsnæði að mestu ókeypis, mat-
vara er ákaflega ódýr, brauð eru
sama sem gefins. Mér skildist að
bakararnir fengju hráefnið ókeyp-
is og eini kostnaðurinn væri vinn-
an við að baka.
Síðan éta þeir kindakjöt og
úlfaldakjöt, auk þess sem það er
flutt inn óhemju mikið af nauta-
kjöti. Það er flutt inn með flug-
vélum, ég held að jafnvel Arnar-
flug hafi einhvern tíma flutt
nautakjöt fyrir þá. Það er slátrað
fyrir þá á hefðbundinn arabískan
hátt í sérstökum sláturhúsum í
Skotlandi og víðar. Það má aðeins
drepa skepnuna með því að sarga
af henni hausinn með hníf.
— Og kjötið étið nýtt?
Já, já, þetta gekk ágætlega oní
okkur. Það var ekki étið nema
tvisvar á dag og svo var drukkið
þetta helvítis te, maður var alltaf
sísoltinn þarna og hafði alltaf góða
matarlyst. Það var ekkert að því
að éta hjá þeim gumsið.
Otlendingar kvörtuðu nokkuð
yfir því að þeir fengju kveisu fyrst
eftir að þeir komu til landsins. En
ég slapp blessunarlega við það. Já
— við erum immún fyrir slíku
hérna, Isfirðingar, það gerir
vatnið okkar.
— Fékkstu einhverja sjúkdóma
þarna?
Nei. En það ætti ekki að vera
mikill vandi að fá í sig einhverjar
pestir þarna því eitt af því sem
maður á erfitt með að venjast
þarna eru óþrifin. Borg eins og
Tripolí, sem eitt sinn var kölluð
„gimsteinn Austurlanda”, er
núna ein allsherjar sorphrúga.
I Trípolí virðist ekki vera neitt
virkt hreinsunarkerfi. Þó er
hreinsuð miðborgin, Græna
torgið, sem er aðalsamkomu-
staður Líbýumanna. En að öðru
leyti er hún á kafi í sorpi, og þá
meina ég að maður veður sorpið.
öll öngstræti og flestar aðalgötur
eru fullar af sorpi.
Það er eins og hálfs klukkutíma
akstur frá þorpinu E1 Mass til
Bengasi. Maður keyrir þá leið eins
og maður sé inni í miðjum sorp-
haug. Þegar íbúarnir eru að kafna
í sorpi setja þeir það í svarta
plastpoka og keyra með þaö út
fyrir bæinn. Sorpið hleðst upp
beggja vegna vegarins.
— Er þetta ekki hreinsað burt?
Ja, ég get ímyndað mér að
þetta séu nokkurra ára sorp-
haugar. Bingirnir eru við veginn
og maður sér þetta „feida” út í
eyðimörkina.
Maður kemur þarna inn í svo
gjörólíkan heim og þankagang frá
því sem maður á að venjast. Mig
óraði aldrei fyrir því hversu gjör-
ólíkir heimar það eru, sá sem við
lifum í og sá sem ég kynntist í
Líbýu.
36. tbl. Víkan 15