Vikan - 05.09.1985, Side 35
rA
Draumar
Talandi
hestur
Kœri draumráðandi.
Ég œtla einu sinni enn að
senda þér draum með von
um ráðningu.
Ég man drauminn ekki
alveg, það er eitthvað sem ég
man ekki, en ég segi hér það
sem ég man.
Ég var með systur minni í
einhverju húsi og við vorum
uppi og stiginn niður var svo
brattur að ég þorði ekki að
láta systur mína fara eina
niður því hán var drukkin.
Þá tók hún nál og œtlaði að
stinga henni í handriðið og
fikra sig svo niður með því
að halda í nálina. Þá kom
pabbi og hann settist niður
með okkur sína hvorum megin
við sig, hann hélt utan um
okkur og raulaði blíðlega
fallegt lag. Síðan œtlaði
hann að hjálpa okkur niður
og þegar við komum að
stiganum var hann fullur af
glösum, nema smáblettir hér
og þar, og mér fannst að ef
við myndum stíga í auðu
blettina myndum við komast
heilu og höldnu niður og við
hlupum öll niður.
Er við vorum komin niður
sparkaði systir mín í eitt
glasið svo það datt og
brotnaði. Ég starði á hana
og spurði hvers vegna hún
gerði það en hún glotti bara
ogþaupabbi löbbuðu burt.
Ég fór þá að leita að sópi
til að sópa saman gler-
brotunum og kom að eins
konar afgreiðslu þar sem ég
bað um sóp og sorpskóflu.
Maðurinn, sem var í af-
greiðslunni, benti á rosa-
stóran sóp og sagði að ég
gœti fengið þennan. Ég fór
hinum megin við borðið til
að scekja sópinn og sá að
gólfið hafði verið sópað en
ruslið skilið eftir í hrúgu og
ég œtlaði að sópa það upp
fyrir hann en þá var ég allt í
einu úti og var að sópa snjó,
en það voru bara moldar-
börð undir.
Mamma sat þarna ásamt
fleirum og liún sagði:
,,Hœttu þessu, ” en ég hélt
áfram þangað til það kom
bíll, fullur af liestum, og ég
þurfti að hlaupa frá.
Hestunum var hleypt út og
þeir hlupu til og frá. Það var
dimmt en mér fannst ég sjá
einn rauðan hest í hópnum.
Þá kom þarna stelpa sem ég
kalla hér A og hún sagði:
,,Komdu, nú verður
gaman, ” og byrjaði að reka
hrossin til og frá. Ég hugs-
aði að hún myndi gera þau
vitlaus með þessu, svo ég
liljóp að hópnum og kallaði
á hestinn minn. Ég sá hann
stoppa og snúa við, svo kom
hann og sagði: ,,Já,
mamma. ” Mér fannst ekkert
undarlegt að hann talaði en
tók utan um hálsinn á hon-
um og grét af gleði yfir að
sjá hann. Svo var ég að
hugsa um að taka hann með
heim og gefa honum brauð
en hann vildi ekki koma svo
ég fór inn í litla búð, sem var
þarna, og fór að leita að rúg-
brauði og fann tvö stykki
uppi á hillu hátt uppi. Ég
klifraði upp og sá að annar
bitinn kostaði 55 krónur en
hinn 164 krónur. Þá mundi
ég að ég var ekki með pen-
inga á mér en fann hálfa
brauðsneið, sem hafði dottið
úr pakka, og tók hana
traustataki. Þegar ég var á
leið út var kona, sem var að
kaupa rúgbrauð, móðguð á
svip er hún sá að ég komst út
með bitann meðan hún
þurfti að bíða í biðröð eftir
afgreiðslu.
Ég var síðan að labba með
hestinn lausan við hlið mér
og A kom með okkur. Ég
mœtti þá bíl sem tvœr
systur, sem ég þekki, voru í
og þótti þeim undarleg sjón
að ég labbaði bara með hest-
inn án þess að halda í hann.
En þá fannst mér hesturinn
hverfa og A spurði, þegar ég
litaðist um, hvort ég hefði
misst hann. Ég segi nei, nei
og þykist halda í hann og
hún tekur það gott og gilt og
heldur áfram.
Þar með var draumurinn
búinn.
71552.
í þessum draumi kemur býsna
margt fram eins og oft áður í
draumum þínum. Svo virðist sem
einhverjir erfiðleikar séu í
vændum í fjölskyldu þinni og ef til
vill er hægt að líta á drauminn
bókstaflega að því leyti að systir
þín eigi þar verulegan hlut að
máli. Til þess bendir margt. Það
er eins og hún (eða sá annar er í
hlut kann aö eiga) valdi
verulegum erfiðleikum með ein-
hvers konar tímabundinni sjálfs-
eyöingarhvöt. Aðrir í fjölskyld-
unni eru að reyna aö koma í veg
fyrir að hún (eða sá sem draumur-
inn á við) fari sér að voða og eitt-
hvaö sem þú gerir verður til að
sópa þessum áhyggjum frá, alla
vega frá þér. Samt sem áður
dregur þetta tímabil ykkur öll
niður en þú reynir að losa þig út úr
þessu og tekst það að einhverju
leyti.
Það er ekki ósennilegt að ástar-
lífiö og karlmenn spili inn í þennan
flótta þinn frá vandræöunum og
þú hellir þér kannski af fullmikl-
um krafti í eitthvert samband. Þú
skalt að minnsta kosti reyna að
hugsa þinn gang á hverjum tíma
og gæta þess að fara ekki of geyst í
ástarmálum. Fleiri tákn ítreka
þaö aö með því að losa þig frá
f jölskyldunni á erfiöri stundu losn-
arðu við vandamál sem að henni
steðja. Þau virðast bæöi vera
vegna þessa erfiða einstaklings og
einnig blandast þar inn í mjög
erfið og vandmeðfarin fjármál.
Það er frá þessu sem þú reynir aö
sleppa og sleppur og þú verður að
vera mjög vandfýsin á hvað þú
hreppir í staðinn. Draumurinn er
sennilega að segja þér að þú
megir ekki ana út í neitt óráðið
bara af því þú ert aö koma þér út
úr öðrum vandræðum á heima-
slóö.
Hjón að
hrekkja
stelpur
Kœri draumráðandi.
Myndir þú vilja vera svo
góður að ráða þennan
draum fyrir mig? Draumur-
inn er svona:
Ég var að ganga niður
götu eina sem er rétt hjá þar
sem ég á heima. Ég var með
blað í hendi. Fyrir framan
mig gengu tvœr stelpur með
dúkkuvagna. Upp götuna
komu svo hjón með barn í
kerru. Þegar hjónin voru
komin í talfœri við
stelpurnar byrjuðu þau að
kasta grjóti i dúkkuvagnana
og sögðu að þetta vœri þeim
mátulegt eftir allt sem þœr
vœru búnar að gera þeim.
En á meðan á þessu stóð
rann barnakerran niður
brekkuna. Þegar ég tók eftir
því byrjaði ég að hrópa og
hlaupa á eftir kerrunni.
Þegar ég var nœstum búin
að ná í kerruna rann hún út í
lœk sem var fyrir neðan göt-
una. Ég reyndi að teygja mig
eftir kerrunni en allt kom
fyrir ekki. Mér tókst það
ekki. Kerran flaut allt í einu
fram hjá mér og undir brú
þarna án þess að ég nœði
henni. Er ég leit eftir barn-
inu sá ég að kerran var tekin
snöggt upp hinum megin og
þegar ég leit á brúna sá ég
hjónin með barnið rennandi
blautt á milli sín. Þá
vaknaði ég.
Ég vona að þú birtir
(ráðir)þennan draum minn.
Fyrirfram þökk.
Ein vongóð.
Þessi draumur bendir til þess að
þú missir af tækifærum sem þú
veist af, það væri kannski full-
djúpt í árinni tekiö að segja aö þér
byðust þau. Þú hikar af einhverri
ástæðu og endar með því að horfa
á eftir þeim öllum. Ef þú hefðir
tekið þann kost að grípa þessi
tækifæri hefði það síður en svo
orðið erfiðleikalaust en hins vegar
er í þér einhver eftirsjá og tregi
þegar þú gerir þér grein fyrir að
þú ert búin að láta þessi tækifæri
fram hjá þér fara. Aðrir hljóta það
sem þú hefðir getað hreppt og þú
munt sennilega alla tíð velta því
fyrir þér hvort þú hafir breytt rétt,
án þess að fá úr því skorið.
36. tbl. Vikan 35