Vikan - 12.12.1985, Síða 6
Jag'
af
ívoru
Umsjón: Hóffý
Ljósm.: Ragnar Th.
LEPPALUÐI
Það veröur nú ábyggilega eng-
inn hræddur viö þennan Leppa-
lúöa. Skeggið hans er úr stærsta
könglinum sem við fundum, hinn
hlutinn af hausnum er útbúinn
þannig aö sniðinn er hringur eftir
diski, matardiski ef köngullinn er
stór. Kanturinn er þræddur með
tvinna og rykktur. Inn í er troðið
vatti eða bómull. Sama aðferðin
er höfð fyrir nefiö, nema þaö er
auövitað miklu minna, og það
síðan saumað á. Tungan er úr filti
og þarf að vera m.jög löng því hún
er saumuð við samskeytin (rykk-
inguna) sem eru lögð á móti
könglinum. Á þessum Leppalúða
var notaður tvinni til að festa efri
hlutann við köngulinn en það er
betra að líma þetta saman með
góðu lími, til dæmis Galdragripi.
Eyrun eru úr þunnum svampi en
ef hann er ekki til má nota filtefni.
Hárið er grátt prjónagarn og
lykkja til að hengja karlinn upp.
Augu, nasir og freknur eru teiknuð
á með tússlit og þá er kominn
ágætis Leppalúði.
JÓLASVEINAR
Jæja, krakkar, nú er farið að
styttast í jólin og tími til kominn
aö fara að útbúa jólaföndrið. Þess-
ir ágætu jólasveinar eru fínir til að
skreyta með jólamatborðið.
Kannski fer vel aö setja einn jóla-
svein við hvern matardisk eða
nokkra í hóp á mitt borðið. Litlu
jólasveinarnir eru úr hólkum inn-
an úr klósettrúllum en sá stóri úr
hólk innan úr eldhúsrúllu. Annað
efni í þá er filtefni og túpulím.
Fyrst er sniðinn bútur af filti sem
passar utan um hólkinn og hann
límdur á. Síðan klippið þiö kringl-
ótt andlit, augu, nef og munn og
límið allt á sinn stað. Þá eru næst
handleggir, vettlingar og tvær töl-
ur á maga jólasveinsins. Það er
erfiðast að sníða húfuna en með
því að brjóta hana niður, eins og á
jólasveinunum á myndinni, má
fela ýmsar misfellur og göt. Dúsk-
urinn er tvöfaldur bútur úr hvítu
filtefni sem búið er að klippa upp í.
Þessa jólasveina gerðu Ólöf,
Dagný og Kristján.
JÓLASOKKAR
Þessir jólasokkar eru undir
servíettur og eru látnir liggja á
matardiskinum eöa kökudiskinum
með kaffinu. Þeir eru úr filti. í
rauðu sokkana er saumað með
silfurlitum þræði en það má líka
klippa út filt og líma eins og sést á
myndinni. Sokkarnir eru
saumaðir saman á réttunni.
6Vikan 50. tbl.