Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 03.04.1986, Qupperneq 53

Vikan - 03.04.1986, Qupperneq 53
Ekkert þeirra mála sem við Poirot höfum rannsakað í langan tíma kemst í hálf- kvisti við þá undarlegu atburði sem héldu athygli okkar vakandi núna um nokkurra ára skeið. End- irinn varð sá að Poirot fékk málið til með- ferðar og leysti ráðgátuna. Áhugi okkar á fjölskyldusögu Lemesurierættarinnar vakn- aði kvöld eitt á árum heimsstyi jaldarinnar fyrri. Við Poirot höfðum þá nýlega endurnýj- að kunningsskap okkar, en við höfðum kynnst í Belgíu nokkrum árum áður. Poirot hafði um þessar mundir verið að fást við smámál fyrir stjórnina og leitt það til lykta á viðunandi hátt. Okkur var þess vegna boðið til kvöldverðar á Carlton hótelinu á kostnað ráðuneytisins. Einn ráðuneytis- manna hafði borðað með okkur en fljótlega eftir matinn neyddist hann til að yfirgefa okkur og fara á mikilvægan fund. Við Poirot ákváðum hins vegar að drekka kaffið í róleg- heitum. Við vorum að búast til brottfarar þegar kallað var á mig kunnuglegri röddu. Ég sneri mér við og stóð þá augliti til auglitis við Vincent Lemesurier höfuðsmann, náunga sem ég hafði kynnst í Frakklandi. Hann var í fylgd með eldri manni sem augljóslega var skyldur honum. Sá kynnti sig sem Hugo Lemesurier, föðurbróður Vincents. Ég var ekki gagnkunnugur Lemesurier höfuðsmanni. Ég vissi aðeins að hann var þægilegasti náungi en svolítið utan við sig. Hann var af eldgamalli aðalsætt frá Norð- imbralandi og þar sem við Poirot vorum ekkert að flýta okkur settumst við aftur niður með hinum nýju kunningjum okkar og röbbuðum saman nokkra stund um dag- inn og veginn. Hugo Lemesurier var um fertugt og hafði yfirbragð fræðimanns því að hann var örh'tið lotinn í herðum. Það kom líka í ljós að hann vann um þessar mundir að efnafræðirannsóknum fyrir stjórnina. Samræður okkar voru truflaðar af ungum manni seni var greinilega mikið niðri fyrir. Hann staðnæmdist við borðið og stundi upp: „Guði sé lof að ég fann ykkur báða." „Hvað er að, Roger?“ „Pabbi þinn, Vincent.. . datt illa.. . ó- temja. .Meira heyrðum við ekki því að hann dró Vincent út í horn. Stuttu síðar, eftir að Vincent og Hugo höfðu kvatt okkur, sagði Roger Lemesurier, en svo hét ungi maðurinn sem hafði flutt fréttirnar, okkur að faðir Vincents hefði orðið fyrir alvarlegu slysi er hann var að fást við ungan ótaminn hest. Vincent hafði orðið náfölur er hann frétti þetta. Mér fannst það skrítið því að hann hafði gefið mér það í skyn er við kynntumst í Frakklandi að þeir feðgarnir ættu ekki vel skap saman. Við gengum nú út af veitingahúsinu ásamt Roger. „Þetta er dálítið skrítið," sagði hann. „Kannski þetta sé á áhugasviði yðar, hr. Poirot? Higgins, þér kannist við hann, sagði mér að þér hefðuð áhuga á öllu sem viðkem- urmannlegu eðli.“ ,,Já, rétt er það. Ég hef áhuga á sálar- fræði,“ viðurkenndi Poirot varlega. „Sáuð þér hvernig frændi minn fölnaði?" hélt Roger áfram. „Hann varð eins og hann hefði séð draug. Vitið þér af hverju? Það liggur nefnilega eldgömul bölvun á fjöl- skyldunni. Viljið þér heyra meira um hana?“ „Ég yrði yður þakklátur ef þér segðuð mér frá þessu,“ sagði Poirot. Roger Lemesurier leit á klukkuna: „Ég hef nægan tíma, ég á að hitta þá Hugo og Vincent á Kings Cross brautarstöðinni. Nú, jæja, hr. Poirot, Lemesurierættin er eldgöm- ul ætt. Fyrir langa löngu, líklega á miðöld- um, grunaði einn Lemesurierinn konu sína um að vera sér ótrú. Hann þóttist finna sönnunargögn þessu aðlútandi en konan hélt fram sakleysi sínu. En Hugo barón hlustaði ekki á hana heldur sór að sonur þeirra væri ekki sonur sinn og skyldi ekki erfa sig. Því næst gerði hann eitthvað and- styggilegt við konuna og barnið, múraði þau inn í vegg eða eitthvað svoleiðis, og létu þau bæði lífið. Allt fram í andlátið hélt konan fram sak- leysi sínu og að lokum lagði hún þá bölvun á fjölskylduna að enginn frumborinn sonur skyldi erfa titil eða eignir ættarinnar. Er fram liðu stundir sannaðist sakleysi konunn- ar og Hugo reyndi að bæta fyrir brot sitt með því að ganga í stranga munkareglu. Hver svo sem ástæðan nú er þá hefur það enn ekki gerst að frumborinn sonur hafi erft aðalstitilinn eða ættaróðalið. Faðir Vincents var til dæmis næstelstur af 5 bræðrum, elsti bróðirinn dó í æsku. Vincent trúði þessari sögu og taldi sig dæmdan mann en svo undarlegt sem það nú er þá féllu tveir yngri bræðra hans í Frakklandi en sjálfur slapp hann óskaddaður úr hverri raun.“ „Þetta er mjög athyglisvert,“ sagði Poirot hugsandi. „Ef faðir hans deyr þá erfir Vin- cent hann og hann er elsti sonur hans.“ „Einmitt. Eitthvað er nú bölvunin farin að ganga úr sér.“ Roger leit á klukkuna og sagðist þurfa að fara. Poirot hristi höfuðið eins og honum sárnaði sú léttúð sem Roger sýndi gömlu fjölskyldubölvuninni. Daginn eftir fréttum við svo að Vincent Lemesurier hefði fallið út úr klefa sínum í lestinni, sem hann ferðaðist með, og látist samstundis. Menn töldu að áfallið vegna slyssins, sem faðir hans hafði orðið fyrir, ásamt stríðsþreytu, hefðu valdið tímabund- inni sturlun. Nokkrir nefndu að vísu álögin á Lemesurierættinni í sambandi við slysið og jafnframt þá staðreynd að Ronald Lemes- urier, erfinginn, hafði misst einkason sinn á vígstöðvunum við Somme. Ég held að það hafi verið kynni okkar af Vincent Lemesurier síðasta kvöldið sem hann lifði sem vöktu áhuga okkar á Lemes- urierættinni. Við veittum því líka athygli þegar Ronald Lemesurier dó tveim árum síðar, en hann hafði nú reyndar verið orðinn mjög heilsutæpur þegar hann erfði titilinn. Bróðir hans, John, erfði hann. John var miðaldra maður við hestaheilsu og átti efni- legan son sem var við nám í Eton. En bölvun fylgdi svo sannarlega Lemes- urierættinni því að skömmu síðar varð drengurinn fyrir voðaskoti og lést. Nokkru síðar stakk vespa föður hans og dró sú stunga hann til bana. Eftir það tók yngsti bróðirinn, Hugo, við ættarsetrinu. Við höfðum aðeins fylgst með þeim at- burðum sem hér hafa verið raktir úr fjarska og ekki tekið á nokkurn þátt í þeim. Brátt kom þó að því að við vorum kallaðir til. Það var morgun nokkurn að frú Lemesuri- er tilkynnti komu sína. Frúin var hávaxin kona um þrítugt og bauð af sér góðan þokka jafnframt því sem hún leit út fyrir að vera greind og ákveðin. Hún talaði með banda- rískum hreim. „Hr. Poirot, það gleður mig að kynnast yður. Eiginmaður minn, Hugo Lemesurier, hitti yður fyrir mörgum árum en þér munið nú varla eftir því.“ „Þvert á móti, frú, það var á Carlton- hótelinu.“ „Það var gaman að heyra, hr. Poirot, ég á í dálitlum vandræðum.“ „Hvers vegna?“ „Ég á tvo syni, Ronald, sem er 8 ára, og Gerald, sem er 6 ára, og ég hef áhyggjur af Ronald.“ „Hvers vegna hafið þér áhyggjur af Ron- ald?“ „Hr. Poirot, á síðustu 6 mánuðum hefur hann þrívegis sloppið naumlega frá bráðum bana. I eitt skipti bjargaðist hann á síðustu stundu frá drukknun. Það var þegar við vorum í sumarleyfi í Cornwall. Einu sinni datt hann út um gluggann á barnaherberg- inu og í eitt skipti fékk hann matareitrun." Líklega hefur vantrúarsvipurinn á andliti Poirots verið einum of áberandi því að frúin hélt strax áfram: „Þér haldið sjálfsagt að ég sé bara fávís kona að gera úlfalda úr mý- flugu.“ „Hreint ekki, frú, hver einasti maður yrði að sjálfsögðu áhyggjufullur vegna atvika sem þessara en ég fæ ekki séð hvernig ég get hjálpað yður. Ég er ekki guð almáttugur, ég stjórna ekki hafinu eða örlögum manna. Ég get aðeins lagt til að þér setjið rimla fyrir gluggana á barnaherberginu og þér eruð án efa fullfær um að sjá um mat drengjanna.“ „En hvers vegna er það þá eingöngu Ronald sem verður fyrir þessu en ekki Ger- ald?“ „Tilviljun.“ „Haldið þér það?“ „En þér og maður yðar?“ Skugga brá yfir svip frú Lemesurier: „Það þýðir ekkert að ræða þetta við Hugo, hann hlustar ekki á mig. Hann trúir bara á ættar- bölvunina, að elsti sonur geti ekki erft eignir eða titil. Hann hefur grafið sig niður í sögu ættarinnar og er í hæsta máta hjátrúarfullur. Þegar ég segi honum frá áhyggjum mínum segir hann bara að svona séu örlögin og við þessu sé ekkert að gera. En ég er frá Banda- ríkjunum og þar um slóðir trúum við ekki á álög og bölvanir. Við viljum að þau liggi á gömlum virðulegum ættum, það skapar ákveðna stemmningi. Ég var gamanleikkona áður en ég hitti Hugo og mér fundust þessi álög á íjölskyldunni bara sniðug, einmitt það rétta til að segja frá á löngum vetrarkvöldum þegar fjölskyldan situr umhverfis arininn. Málin horfa öðruvísi við þegar þetta er farið að bitna á börnum manns. Sko, ég elska börnin mín og ég geri allt sem ég get fyrir þau, hr. Poirot.“ „Svo þér trúið ekki á bölvunina, frú?“ „Geta álög eða bölvun sagað sundur trjá- grein?“ U. TBL. VIKAN 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.