Vikan

Tölublað

Vikan - 24.04.1986, Blaðsíða 5

Vikan - 24.04.1986, Blaðsíða 5
Það er sjálfsagt engin einhlít skýring á því en það gefur mörgum öryggiskennd og eflir sjálfstraustið að skrýða sig „merkjum". Sævar nefndi einnig í þessu sam- bandi að íslendingar væru ólíkir öðrum þjóðum hvað þetta snerti. „Á Islandi aka menn jafnvel á dýr- ustu tegund bíla og búa í villum en klæðaburðurinn er í engu sam- ræmi við gildismatið sem þeir skapa sér.“ Til samanburðar benti hann á mann í Þýskalandi sem æki um á dýrum Benz og ætti villu uppi í sveit. „Sá maður er undan- tekningarlaust klæddur dýrum fötum - í samræmi við bílinn og húsið að sjálfsögðu.“ Sævar sagði að margir teldu það ákveðið stöðu- tákn að ganga í fötum frá sér. „Eg þverneita að því sé þannig háttað hér á íslandi og ég fæ alla þjóð- félagshópa inn í mína verslun. Þegar fólk hefur einu sinni keypt hjá mér föt kemur það ævinlega aftur.“ MARTA BJARNADÓTTIR, sem rekur meðal annars verslunina Evu, tók í sama streng og sagði að engin ein stétt manna verslaði meira hjá sér en önnur. Marta flyt- ur inn fatnað frá franska fyrirtæk- inu Chacarel og auk þess má nefna Stephen Marks og Katharine Ham- nett. Hún segir þessar vörur ódýrari hér heima en erlendis og með auknum ferðalögum Islend- inga hafi vöruþekking þeirra aukistmjög. „Fólk veit hvað það er að kaupa - þess vegna á ég fastan hóp við- skiptavina," segir Marta. GARÐAR SIGGEIRSSON, eig- andi Herragarðsins, hefur mikla og langa reynslu af að selja Islend- ingum föt. Hann segir stórkostlega breytingu hafa átt sér stað undan- farin ár. Vöruþekking fólks hafi aukist gífurlega. Eins og Marta þakkar hann það ferðalögunum. Garðar segir að það sé að vaxa upp ný kynslóð sem sé mjög sjálfstæð. „Fyrir um það bil fimm árum þýddi ekki að bjóða mönnum bleikar peysur eða sægræna jakka. Allir báðu um grá föt og hvíta skyrtu - og voru eiginkonurnar jafnan með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.