Vikan


Vikan - 24.04.1986, Page 16

Vikan - 24.04.1986, Page 16
KONULÆRIN SPURNING: LÆKNISVITJUN Hér á síðunni birtast svör læknanna Gests Þorgeirssonar, Helga Kristbjarnarsonar, Jóhanns Ágústs Sigurðssonar, Leifs Bárðarsonar, Óttars Guðmundssonar og Sigurðar Guðmundssonar við spurningum lesenda og mun þetta verða reglulegur þáttur hér á síðum Vikunnar á næstu mánuð- um. Við bjóðum lesendum bæði að senda bréf með vandamálum sínum og hringja. Hringja má á þriðjudags- og miðvikudagsmorgnum frá níu til tólf. Bréfin, sem við fáum, verða að vera stutt, skýr og málefnaleg. Við birtumþau gjarnan undirdulnefni en nafn og heimilisfang verður að fylgja. Utanáskriftin er: Læknisvitjun Vikan Frjáls íjölmiðlun hf. Pósthólf 5380 125 Reykjavík ÓÞÆGIIMDI VIÐ LYFJA- TÚKU SPURNING: Ég er nýbyrjuð að taka lyf við of háum blóðþrýstingi og heimil- islæknir minn segir að ég verði sennilega að taka það alla ævi. Eftir að ég byrjaði á þessum lyfj- um hef ég haft höfuðverk og einnig ónot i maganum. Er líklegt að ég þurfi að þjást af þessum kvillum þaðsem eftirerævinnar? SVAR: Nei, örugglega verður auðvelt að finna lyf við of háum blóð- þrýstingi sem er við hæfi fyrir þig i framtiðinni, enda þótt slíkt geti tekið nokkurn tíma. Eins og kunn- ugt er er of hár blóðþrýstingur mjög algengur kvilli i nútímaþjóð- félagi en ætla má að 10-15% af fullorðnu fólki hafi of háan blóð- þrýsting og stór hluti þessa hóps þarf á lyfjameðferð að halda. Síð- ustu árin hafa orðið geysilegar framfarir i meðferð háþrýstings og ný lyf hafa stöðugt verið að koma á markaðinn. Hin svokölluðu þvagræsityf, eða bjúgtöflur, hafa verið notuð í tugi ára og eiga enn- þá fullan rétt á sér, bæði við of háum blóðþrýstingi og einnig þegar bjúgur safnast á líkamann. Annar lyfjaflokkur, svokallaðir betablockerar, hefur nú verið í notkun i rúmlega áratug og reynst vel. Á síðari árum hefur einnig komið til fjöldi annarra lyfjaflokka með öðruvísi verkunarmáta en hinir lyfjaflokkarnir tveir hafa. ÖU lyf við of háum blóðþrýst- ingi eiga það sameiginlegt að lækka blóðþrýstinginn og geta einnig haft i för með sér tímabund- in eða langvinn óþægindi. Þar eð of hár blóðþrýstingur i langan tíma er hættulegt fyr/rbær/ er nauðsynlegt að fylgst sé vel með þrýstingnum og þess gætt að hann sé undir skilgreindum hættumörkum. Fylgikvillar eða aukaverkanir blóðþrýstingslyfja eru mismun- andi og einstaklingsbundnir. Maður þarf oft að þreifa sig áfram í byrjun og taka ákveðin lyf til reynslu i einhvern tima. Ftann- sóknir hafa sýnt að i flestum tilvik- um er hægt að stilla inn lyfjameðferð á viðunandi hátt þannig að blóðþrýstingslækkunin sé nægileg og að fylgikvillar eða aukaverkanir verði í lágmarki. i stórum hóprannsóknum hefur þannig ekki verið hægt að greina á milli aukinna kvartana eða van- h'ðunar hjá þeim sem eru stöðugt i háþrýstingsmeðferð, borið sam- an við kvartanir viðmiðunarhópa á sama aldri sem ekki taka nein slík lyf. Ég er allt of feit og búin að reyna alla mögulega megrunarkúra. Er ekkert nýtt að gerast í þessum málum? SVAR: Frá aldaöðli hafa konulær/n verið mikið umhugsunarefni. Á 19. öldinni má sjá í málaralistinni túlkun Renoir á kvenlegri fegurð. Á þeim tima speglaðist fegurðin i bústnum, þéttholda konum með stórar rasskinnar og gild læri. Á tima tækni og velmegunar hafa gildu lærin hins vegar orðið kon- um áhyggjuefni og þær talið gildleikann vera í öfugu hlutfalli við yndisþokkann. Um álit karl- manna á þessu máli verður ekki fjallað að sinni. Á siðustu árum hafa augu rann- sóknarmanna meðal annars beinst að fitudreifingu Ukamans og þá ekki síst þessu sérstaka fyrirbæri, einkennum konunnar að hafa til- hneigingu til að safna fitu á neðri hluta líkamans. Það er þvi ekki úr vegi að skýra i örstuttu máli frá helstu niðurstöðum þessara at- hugana. Sýnt þykir að fita, sem safnast á rasskinnar og læri, /ýtur öðrum lögmálum en fita annars staðar á líkamanum og þetta á sérstaklega við um konur. Fita á þessum stöð- um á það til að aukast með aldrin- um og sérstaklega eftir að konur hafa eignast börn. Einnig er það sérstakt við þessa fitu að það virð- ist mjög erfitt að ná henni af aftur, til dæmis með megrun eða iþrótt- um. Einnig hefur komið i Ijós að þessi fita er ekkert sérlega hættu- leg hvað varðar hjarta- og æða- sjúkdóma eða sykursýki. Hún virðist einnig meira háð öðrum efnaskiptum en önnur fita. 77/ dæmis kemst mikil hreyfing á þessa fitu þegar konur hafa börn á brjósti. Það hefur þvi verið sett fram sú kenning að orkan i þess- ari fitu sé einhvers konar næring- arforði fyrir mjólkurframleiðslu. Þessar staðreyndir gætu ef til vill orðið nokkur huggun fyrir þær konur sem berjast við aukakílóin sem staðsett eru á þessum stöðum og jafnfram ábending til karlanna um að þessi fita er mun hagstæð- ari en sú sem þeir safna stundum sem bjarghring i kringum miðjuna. Frekari upplýsingar um offitu kvenna má fá i timaritinu Heil- brigðismál, númer4 1984, bls. 28. 16 VIKAN 17. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.