Vikan

Tölublað

Vikan - 24.04.1986, Blaðsíða 19

Vikan - 24.04.1986, Blaðsíða 19
PÓKER Við erum nú komin að febrúar- mánuði árið 1978. Við sjáum fyrir okkur tvo íslenska poppara á leið til New Orleans með upptökur af tónlist Pókers í farangrinum. „Við, það er Björgvin Gíslason og ég, komumst fljótlega í samband við tvo lögfræðinga sem vildu meira en endilega gera við okkur samning, við skulum bara segja að þeir hafi verið alveg ólmir í það.“ Það er enn snillingurinn hann Pét- okkur eins og stjörnur, við fengum fyrirtaks ljósa- og tæknimenn og upphitunarhljómsveit. Þú getur rétt ímyndað þér hvort þetta hafi ekki verið kitlandi. Því þó stjörnu- líf sé án efa þreytandi til lengdar þá er smjörþefurinn algjört dúnd- ur.“ „Ilmurinn erindæll..en af hverju urðuð þið af smjörinu? „Við fengum tilboð frá Bob Ed- lund. Hann ætlaði að kaupa réttinn á Litlu flugunni og gefa hana út í Ameríku. En þá kom babb í bátinn. Það var ekki nóg með að tónleika- ferðalagið yrði hálfgerður labbitúr heldur keyptu þeir ekki svo mikið sem eitt umslag af plötunni Upp- teknir. Við urðum auðvitað hund- fúlir og tilkynntum að við ætluðum ekki að borga krónu fyrir upptök- urnar. Og með það varð allt vit- laust og okkur var tilkynnt að það yrði einfaldlega okkar vandamál, við fengjum þá einfaldlega ekki neinar upptökur. Það var mikill hiti í mönnum og ósköpin enduðu svo með því að ég var rekinn úr PELIKAN." Varstu hvað? „Ég var rekinn en ég ætla ekk- ert að segja þér frá því hér, allt hefur sinn tíma og líka sannleikur- inn.“ Svona ykkur að segja var ég ekki alveg tilbúin til að gefast upp. Varðstu ekki sár? Pétur hlær. „Ekki orð, viltu meira kakó?“ Ég þigg það, pínulítið skömm- ustuleg yfir að hafa búist við að ' verða æsifréttablaðakona svona í fyrstu tilraun. Og svo er hinu við að bæta að þetta hefði aldrei orðið æsifrétt því Pétur kom svo sannar- lega standandi niður eftir flug- ferðina og það er ekki í samræmi við mannlega harmleiki - eða hvað? Hann settist að í Paradís um stund - hugsaði sín mál, stokkaði spilin einfaldlega upp á nýtt- gaf og nú hvorki i löngu vitleysu né maríasheldurí... ur sem hefur orðið. „Allt í einu virtust öll mál ætla að ganga upp og við fengum Hörð Ólafsson lög- fræðing í lið með okkur svo engin svik og prettir voru möguleg." Ég er orðin virkilega spennt og fæ mér enn meira kakó. „Ertu nokkuð mikil grenjuskjóða?" - Ekkert rosalega, svara ég, steinhissa á spurningunni. „Þetta er nefnilega dálítið grátleg saga sem kemur á eftir." Ég lofa að herða upp hug- ann, minnug þess að það þykir lítt sæmandi ef ekki beinlínis glæp- samlegt að gráta á kaffihúsum. „Samningurinn, sem við gerðum, var til þriggja ára og við vorum með hann í höndunum. Þar var kveðið á um að laun hljómsveitar- innar yrðu 900.000 dollarar og það sem meira var, snjöllustu lögfræð- ingar gátu ekki fundið neina gúmmílykt hvernig sem þeir þef- uðu. Það voru því bjartsýnir menn sem undirbjuggu brottför til Amer- íku árið 1978.“ Það ætti ekki að vera erfitt fyrir okkur sem látum okkur dreyma að gera okkur í hugarlund hvernig strákunum leið. Ilmur frægðarinn- ar var að breytast í áþreifanlega staðreynd. En svo kom þetta stóra EN sem virðist endalaust vera að flækjast fyrir þeim sem hugsa stórt. „Aðallagasmiðurinn okkar guggnaði á þessum glæstu gylli- boðum og hætti við allt saman. Við skulum ekkert vera að rifja upp nein nöfn en svo mikið er víst að þetta fannst þessum bandarísku lögfræðingum allt annað en snið- ugt. Og værum við án þessa manns vildu þeir ekki skrifa undir. Og nú skaltu ekki spyrja hvort ég hafi verið sár. Þetta er liðið og verður aldrei endurtekið." Ansi grátleg saga og ferlega svekkjandi en minnug loforðsins um að halda tárunum á sínum stað herti ég upp hugann og spurði hvort draumurinn hefði þar með verið búinn. „Já, ætli við getum ekki sagt það. Við fórum reyndar út síðar, fengum styrk til fararinnar, ágætis húsnæði úti og fín laun. En gæsin var flogin, við komnir með fjöl- Pétur Kristjánsson með samninginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.