Vikan - 24.04.1986, Síða 23
Ein nýjasta kvikmynd Anthony Perkins er
hin umdeilda kvikmynd Ken Russells Crimes
ofPassion. I þeirri mynd leikur Kathleen Turn-
er gleðikonu sem verður fyrir áhrifum frá
tveimur niönnum. Annar er hreinleikinn upp-
málaður. Hinn er hálfbrjálaður prestur sem
haldinn er óhugnanlegri ónáttúru. Það þarf
ekki mikla hæfileika til að geta upp á hvaða
hlutverk Anthony Perkins fer með í þessari
mynd. Hans sérgrein er og hefur um árabil
verið að le";a geðveika menn sem þó að öllu
jöfnu eru heilbrigðir á yfirborðinu.
Frá því 1953 hefur Anthony Perkins leikið í
yfir fjörutíu kvikmyndum. Samt er eitt hlutverk
snemma á leikferli hans sem hann hefur orðið
að lifa með, enda ógleymanlegur karakter
hverjum sem séð hefur. Er það Norman Bates
í hinni frægu hrollvekju Aifreds Hitchcocks,
Psycho, er gerð var 1960. Það gleymir enginn
einstökum leik hans sem geðveikur morðingi í
þessari klassísku hrollvekju.
Sjálfsagt hefði verið betra fyrir leikarann
Anthony Perkins hefði þetta hlutverk komið
seinna á ferli hans. Perkins segir sjálfur að
þegar ókunnugt fólk ávarpi hann þá segi það
oftast einhvern tímann í samtalinu: „Þú ert svo
góður að leika geðveika morðingja." Því er það
sjálfsagt að flest hlutverk, sem honum eru boð-
in, eru einmitt þess háttar karakterar. Sjálfur
segist hann þrá að leika rómantískar hetjur.
Ekki það að hann hafi ekki leikið hetjuhlut-
verk en árangurinn hefur ekki verið jafngóður.
Anthony Perkins er sonur þekkts sviðsleik-
ara, Osgood Perkins. Hann var mjög ungur
þegar hann hóf að leika í skólaleikritum. Það
leiddi til þess að hann fór á puttanum frá heim-
ili sínu í New York til Hollywood. Þar fékk
hann fljótlega smáhlutverk í kvikmynd er nefn-
ist The Actress. Það leiddi svo til fleiri hlut-
verka sem urðu stærri og stærri. Hann vakti
fljótt athygli fjölmiðla. Drengjalegt og heilbrigt
útlit hans gerði það að verkum að það var far-
ið að líkja honum við James Stewart og Gary
Cooper þegar þeir voru yngri.
Hann keppti við James Dean um hlutverk í
Austan Eden og tapaði þeirri baráttu eins og
öllum ætti að vera ljóst. En þrátt fyrir heilbrigt
útlit voru lifnaðarhættir Anthony Perkins ekki
í samræmi við lifnaðarhætti kvikmyndaleikara
á þessum tíma. I frítíma sínum klæddist hann
eingöngu gallabuxum og snjáðum skyrtum og
sást aldrei öðruvísi á götum Hollywood en ber-
fættur. Þetta þótti algjört siðleysi á sjötta
áratugnum þótt tíu árum síðar hefði ekkert
þótt sjálfsagðara.
Anthony Perkins gafst þvi í bili upp á
Hollywood og fór aftur til New York. Þar
keypti hann sér stórt hús, ekkert sérkennilegt
við það. En Perkins var ekki eins og aðrir í
New York frekar en í Hollywood. Hann leigði
út öll herbergin í húsinu sínu en bjó sjálfur í
tveimur smákytrum, þakti gluggana með hvítri
sápu og skildi aðeins eftir smágat svo hann
gæti séð hvernig veðrið væri utandyra.
Þrátt fyrir ýmsa sérvisku í einkalífinu var
ferill hans sem leikara orðinn tryggur. 1961
vann hann verðlaun sem besti leikari á kvik-
myndahátíðinni í Cannes fyrir leik sinn í
frönsku kvikmyndinni Aimez Vous Brahms.
Þessi kvikmynd var byrjunin á árangursríkum
ferli hans í frönskum kvikmyndum. Er hann í
dag einhver þekktasti bandaríski leikarinn í
Frakklandi. Hann lék þá jöfnum höndum í
frönskum og bandarískum kvikmyndum. Má
nefna myndir eins og The Trial sem Orson
Welles gerði í Evrópu og Catch iöundir stjórn
Mike Nichols. Var hann á sjöunda og áttunda
áratugnum afkastamikill leikari, þótt ekki væri
hann alltaf í aðalhlutverkum, og lék undir
stjórn helstu meistara kvikmyndanna. Einn
eftirminnilegasti leikur hans á þessum árum
var í Pretty Poison er gerð var 1968. Þar leikur
hann ungan og sérvitran mann sem kemst í
kynni við unga stúlku sem er jafnvel enn
skrýtnari en hann.
Það er svo 1983 sem Anthony Perkins lætur
tilleiðast að leika Norman Bates aftur í fram-
haldsmynd sem fær nafnið Psycho 2. Þrátt fyrir
að sú mynd væri nokkuð langt frá fyrirrennara
sínum að gæðum varð hún mjög vinsæl. Fannst
áhorfendum að Anthony Perkins hefði ótrúlega
lítið breyst þótt tuttugu og þrjú ár væru á milli
myndanna. Psycho 2 var tekin á sama stað og
fyrri myndin og allt gert til að sömu áhrifin
fengjust og í fyrri myndinni. En allt kom fyrir
ekki. Þótt Psycho 2 væri nokkuð fyrir ofan
meðallag var hún langt frá að vera eins ógn-
vekjandi og meistaraverk Hitchcocks.
Og þær fréttir berast nú af Anthony Perkins
að þriðja myndin um Norman Bates sé í bígerð
og muni Perkins auk þess að leika aðalhlut-
verkið leikstýra myndinni sjálfur. Verður
fróðlegt að sjá hver útkoman verður.
17. TBL VIK A N 23